Víkurfréttir - 04.02.1999, Page 6
«l/C^ ^4^ Reiki ■ Heilun.
s* j Aromatherapy.
^J^Nudd, Næringarrabgjöf,
fi r* Electric City Sexwear.
Sjálfstæbur dreifingarabili
á Herbalife og Dermajetics
Ymis tilboð í gangi
Visa - Euro - Póstkrafa
Ingibjörg Þorsteinsdóttir
Hraunsvegur 25 - 260 Njarðvík
Sími 421 5989-861 2089
Fasteignaþjónusta
Suóurnesja hf.
Fasteigna-
og skipasala
Vatnsnesvegi 14 - Keflavík - sími 4213722 - fax 4213900
TrfiL
n
Húlabraut 9, Keflavík.
Rúmgóð 150m2 5 lierb. íbúð í
tvíbýli á n.h. ásamt bílskúr.
Sk. á minni eign. 8.900.000.-
°iLP»MPIE
Heiðarholt 18, Keflavík.
Falleg.vel með farin 2jaherb.
íbúð. Einstakl. snyrtileg sam-
eign. Laus strax. 4.600.000.-
Háteigur 21, Keflavík.
Mjög eiguleg 4ra herb. íbúð í
fjórbýli. Skipti á raðhúsi eða
einbýli í Reykjanesbæ.
8.100.000,-
Suðurgarður 8, Keflavík.
Mjög gott raðhús ásamt bíl-
skúr á góðurn stað. Parket á
gólfum, ný eldhúsinnr, frá-
bært skápapl. 12.500.000,-
Eífumói la, Njarðvík.
Eiguleg 2ja lierb. íbúð á
1. hæð. Húsið sprungufyllt
og málað '98. Möguleiki að
taka bíl uppí. 3.900.000.-
Klappabraut 13, Cíarði.
Nýtt 141mieinbýli ásamt
55ml tvöföldum bílskúr, 4
rúmgóð herb.
10.300.000.-
é|.
Njarðvíkurbraut 21,Njarðvík
5herb. einbýli á 3 hæð ásamt
bílskúr. Herbergin 15-20m- á
stærð. Mikið uppgert að innan
sem utan. 8.500.000.-
Lágmói 10, Njarðvík.
Um 170m! nýlegt einbýli
ásamt 45m2 tvöföldum bíl-
skúr. Nánari uppl. á skrifstofu.
Suðurgata 19, Kefla\ ík.
5herb. einbýli ásamt tvöf.
bílskúr og geymsluskúr. Nánast
allt uppg. að innan.
8.900.000,-
Eiinbýli og/eöa
raöhús óskast
Einbýli og raðhús óskast!
Höfum trausta kaupendur
að nýlegum raðhúsum
og/eða einbýlishúsum í
Reykjanesbæ, helst í gren-
nd við Heiðarskóla.
M Garðurinn hefji viðræður við Reykjanesbæ - segir minnihlutinn:
Meirihlutinn vill engar
sameiningarviðræður
Allar tillögur minnihluta
hreppsnefndar Gerðahrepps,
sem er skipaður þeini
Finnboga Björnssyni og
Maríu Önnu Éiríksdóttur frá
H-lista og Viggó Benedikts-
syni frá I-lista, um sam-
einingarmál Gerðahrepps við
annað hvort Reykjanesbæ
eða Sandgerðisbæ voru
felldar 4:3 á hreppsnefnd-
aifundi í Garði f gærkvöldi.
1 framhaldi af skýrslu sem
VSÓ hefur lagt fram um
kosti og galla sameiningar
Gerðahrepps við Reykjanes-
bæ og/eða Sandgerði lögðu
fulltrúar minnihlutans fram
eftirfarandi tillögu á fund-
inum í gær: „Hreppsnefnd
Gerðahrepps samþykkir að
hefja vinnu samkvæmt 90.
grein sveitarstjómarlaga nr.
45 frá 3. júní 1998 og ræða
við bæjarstjórn Reykjanes-
bæjar og kanna vilja hennar
til sameiningar Reykjanes-
bæjar og Gerðahrepps."
Tillagan var felld 4:3 með
atkvæðum meirihlutans.
Samskonar tillaga um
viðræður við Sandgerðisbæ
var einnig felld 4:3. Þá felldi
meirihlutinn einnig tillögu
fulltrúa minnihlutans unt að
skýrslu VSÓ verði dreift inn
á öll heimili í Garði.
Skýrslan var nýverið kynnt á
borgarafundi í Garði þar sem
mættu rúntlega 80 manns en
kostnaður við skýrsluna er
rúm ein milljón króna.
Finnbogi Bjömsson var að
vonum ekki sáttur við að til-
lögum hans og annarra
minnihlutafulltrúa hafi verið
hafnað, í samtali við VF.
í kosningu samhliða sveitar-
stjórnarkosningum síðasta
vor vildi rnikill meirihluti,
unt 80% ibúa Gerðahrepps,
láta kanna kosti og galla
sameiningar. Skýrslan liggur
fyrir og þar er Reykjanesbær
sagður álitlegri kostur fyrir
Garðmenn. Það er hins vegar
ekki vilji núverandi meiri-
hluta hreppsnefndar, sam-
kvæmt atkvæðagreiðslum í
hreppsnefnd í gær, að fara í
viðræður við Reykjanesbæ,
né heldur að koma niður-
stöðum skýrslu VSÓ til
hreppsbúa á annan hátt en
nteð borgarafundi.
UR SVEITARSTJORNARLOGUM
90. gr. sveitarstjórnarlagu:
Frjáls sameining sveitarfélaga.
Þegar tvær eða fleiri sveitarstjómir hafa ákveðið
að kanna möguleika á sameiningu skulu þær
kjósa samstarfsnefnd til þess að annast athugun
málsins.
Skal hvor eða hver sveitarstjóm kjósa tvo full-
trúa eða fleiri í nefndina eftir samkomulagi.
Nefndin kýs formann úr sínum hópi.
Samstarfsnefnd skal starfa í samráði við ráðu-
neytið og skal það láta henni í té þá aðstoð er
það telur nauðsynlega og úrskurða um vafaamði
er upp kunna að koma.
Þegar samstarfsnefnd hefur skilað áliti sínu urn
sameiningu skulu viðkomandi sveitarstjórnir
taka málið á dagskrá. Skal hafa tvær umræður
um málið án atkvæðagreiðslu.
Að lokinni umræðu sveitarstjóma skal síðan far
fram atkvæðagreiðsla innan sveitarfélaganna um
sameininguna. Viðkomandi sveitarstjórnir
ákveða sameiginlega hvenær atkvæðagreiðsla
fer fram og skal kosið sama dag í sveitarfé-
lögunum.
Samstarfsnefndin eða viðkomandi sveitarstjómir
skulu kynna íbúurn sveitaifélaganna þá tillögu
sem greiða skal atkvæði um með hæfilegum
fyrir vara og með tryggum hætti, svo sem með
dreifibréfi eða almennum fundi.
Sveitarstjóm lætur gera atkvæðaseðil til afnota
við atkvæðagreiðsluna í samráði við ráðuneytið.
Um atkvæðagreiðslur samkvæmt þesari grein
fer eftir ákvæðum laga um kosningar til
sveitarstjóma eftir því sem við getur átt.
Aföstudaginn verður
haldið upp á 35 ára
afmæli Landsbank-
ans í Sandgerði. í
tilefni dagsins verður
viðskiptavinum bankans
boðið upp á kaffl og kökur
auk einhvers góðgætis fvrir
yngri kvnslóðina.
Landsbankinn í Sandgerði hóf
starfsemi sína sem afgreiðsla
frá Grindavíkurútibúi 31.
janúar 1964. Breyting varð
svo 1983 þegar afgreiðslan í
Sandgerði var færð undir
útibú Landsbankans á Kefla-
víkurflugvelli. Þriðja og
Starfsfólk Landsbankans í Sandgerði ásamt Viðari Þorkelssyni
svæðisstjóra og Halldóri J. Krjstjánssyni bankastjóra
Landsbanka íslands.
stærsta breytingin varð 1.
september 1985 er stofnað var
sjálfstætt útibú og var fyrsti
útibússtjóri Jónas Gestsson.
Á þessum tíma hefur vöxtur
og uppgangur á svæðinu verið
mikill sem leitt hefur til
gífurlegrar eftirspumar láns-
fjár, enda sjávarútvegur og
þjónusta í kringum hann
nánast eini atvinnuvegurinn á
staðnum. Til að sinna svæð-
inu varð Sandgerðisútibú oft á
tíðum að lána allt að 3-4 sin-
num meira en það hafði afl til
sjálft. Þannig hefur þetta
tiltölulega litla útibú staðið
undir og stuðlað að hinni
gífurlegu uppbyggingu sem
átt hefur sér stað hin síðari ár.
Víkurfréttir