Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 04.02.1999, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 04.02.1999, Blaðsíða 18
Vidar Þorkelsson, svæðisstjóri Landsbankans á Suðurnesjum og Geirmundur Kristinsson spari- sjóðsstjóri tókust á um bikarinn. Hvoru megin lendir bikarinn? VIÐAR ÞORKELSSON - LANDSBANKANUM Skemmtilegir leikmenn og miklar skyttur Landsbanki íslands liefur verið aðalstyrktaraðili kkd. Keflavíkur ár sjö- unda ár og telur Viðar Þorkelsson, svæðisstjóri Landsbanka Islands á Suð- urnesjum, samstarfið hafa verið gott og báðum aðilum mikilvægt. „Okkur er mikil- vægt að taka þátt í jafn upp- byggilegu íþróttastarfi og á sér stað hjá körfunni í Keflavík og teljum að samstarfið hafi ótvírætt auglýsinga- og mark- aðsgildi.” Viðar er fyrrver- andi landsliðsmaður í körfu- knattleik og knattspymu, lék með Fram á yngri árum, og mætir á alla heimaleiki Keflvíkinga sem hann kemst á. „Eg á von á mjög skemmti- legum leik á laugardaginn enda tvö bestu lið landsins, um þessar mundir, að kljást um titilinn. Eg held að tap Njarðvíkinga gegn KR fyrir skömntu efli þá og styrki í undirbúningnum. I liðunum eru margir skemmtilegir leik- menn og miklar þriggja stiga skyttur. Njarðvíkingar verða að stjórna hraða leiksins og miklu skiptir hvernig þeim tekst upp í vörninni gegn Damon Johnson. GEIRMUNDUR KRISTINSSON - SPARISJÓÐNUM Hlakka til ai sjó skemmtilegan og drengilegan leik Sparisjóðurinn er aðal- styrktaraðili Njarð- víkinga og er Geir- mundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri ánægður með samstarfið. „Við höfum alltaf stutt dyggilega íþróttir á Suðumesjum og talið mikil- vægt að styrkja uppbygg- ingar- og æskulýðsstarf á svæðinu. I gegnum árum höfum við stutt körfuna jafnt í Keflavík sem Njarðvík og glaðst mjög yfir velgengni beggja. Á síðasta ári gerð- umst við aðalstyrktaraðili kkd. Njarðvíkur og eru tengslin orðin sterk og báðum mikilvæg. Við teljum það vera hag okkar að vera í góðum tengslum við sam- félagið sem við búum í og teljum að samstarfið við kkd. Njarðvíkur hafi ótvírætt markaðsgildi. Við erunt heimamenn og náið tengdir öllum hliðum mannlífsins á svæðinu, íþróttum sem annarri félagsstarfsemi. Ég hef fylgst með körfunni alla tíð frá skólaárunum og sótt leiki eftir mætti. Ég hef fylgst grannt með Njarðvíkurliðinu í gegn um tíðina og þrátt fyrir velgengni Keflvíkinga það sem af er tímabilsins þá kemur Njarðvíkurliðið til með að sýna þann karakter sem einkennt hefur leik liðsins síðastliðna áratugi því það er enginn vafi að Njarðvíkingar eiga sigursælasta körfubolta- lið landsins. Ég hlakka til að mæta í höllina á laugardaginn og sjá skemmtilegan og drengilegan leik.” irOÍlÁM*V- RENAULTBIKARINN - www.vf.is

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.