Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 04.02.1999, Síða 19

Víkurfréttir - 04.02.1999, Síða 19
Samningar um Seltjörn Bæjan'áð Reykjanesbæjar hefur ákveðið að ganga til samninga við Jónas Pétursson vegna mannvirkja við Seltjöm. Lagt er til að Jónas haldi leigutíma í tvö ár eða út árið 2000 en bæjar- stjóra er falið að semja um verðlag og greiðsluskilmála vegna mannvirkjanna og Ieggja það fyrir bæjarráð. Jónína Sanders ítrekaði við minnihluta bæjarstjómar, sem gerði fyrir- vara um allt málið, að bærinn væri ekki bundinn af einu eða neinu þó sest væri að samn- ingaborði. Samið við Léttsteypuna Framkvæmda- og tækniráð Reykjanesbæjar hefur lagt til við bæjarráð að gerður verði tveggja ára einingaverðsamn- ingur við Léttsteypu Suð- urnesja um hellukaup fyrir bæinn. Einnig hafa verið lagðar fram þrjár tillögur að nýju stöðvarhúsi fyrir dælu- og hreinsistöð fyrir fráveitu í Njarðvík samkvænrt teikn- ingum frá Teiknistofunni Örk. Hefur ráðið komið sér saman unt eina þeirra og hefur tillög- unni verið vísað til bæjarráðs. Ráða bókasafns- fræðing Menningar- og safnaráð Reykjanesbæjar hefur gert athugasemd við að laun skjalavarðar séu á bókhalds- lykli bókasafnsins, þar sem skjalasafnið hefur sér bókhalds- lykil. Ráðið ítrekar þá kröfu sína um að ráðinn verði bókasafnsfræðingur svo safnið geti uppfyllt skyldur sínar samkvæmt nýjum lögum. Undanfarin ár hefur starfsemi safnsins aukist mikið og enn er farið fram á mehi þjónustu án þess að viðbótar starfskraftur fáist. Minnir ráðið á auknar tekjur safhsins vegna hækkunar á gjaldskrá og því séu litlar lfkur á að ráðning bókasafns- fræðings valdi vemlegum halla á bæjarsjóði. Þá var einnig samþykkt erindi íþrótta- og tómstundafulltrúa þar sem óskað var eftir því að tómstundastarf aldraðra fengi afnot af eldhúsinu á Vesturbraut 17 fyrir keramik aðstöðu, svo fremi sem leikfélaginu yrði tryggð aðstaða í kjallara hússins. Bæjarstjónn hlíft Tómstunda- og íþróttaráð Reykjanesbæjar þakkaði bæj- arstjóm nýverið fyrir að hlífa ráðsmönnum fyrir ákvarð- anatöku um breytingar á gjald- skrá íþróttamannvirkja og félagsmiðstöðva. Bæjarstjómin fékk og sérstakar þakkir fyrir að veita ráðsmönnum og þá bæjarbúum öllum væntanlega, rúman tíma til kaupa á afsláttar- og árskortum á eldra verði en sá tími rann að vísu út nú um mánaðarmótin. Námskeið í málmsmíði Fyrirhugað er að halda námskeið í málmsmíði ef næg þátttaka fæst, kennt verður í Grunnskólanum Sandgerði. Efni sem verður notast við er: nýsilfur, messing, kopar o.fl. Hvert námskeið er 15 tímar að lengd og kostar kr. 12.000- fyrir einstakling og kr. 18.000.- fyrir hjón. Allt efni er innifalið í kostnaði. Leiðbeinandi verður Sigurður Friðjónsson. Upplýsingar í símum 423 7610 og 421 2385. Tilboð óskast í flutninga Um er að ræða flutning á 6-800 rúmm. af timbri á ári úr Hafnarfirði í Garðinn. Nánari upplýsingar í síma 893 2944 eða 421 7450 A tvinna / Oska eftir vönu fólki í fiskvinnslu Upplýsingar ísíma 421-7106 Gerðahreppur Garður - Reykjanesbær Eins og fram hefur komið hefur SBK ákveðið að haetta akstri til okkar í Garðinum. I framhaldi af því verður breyting á fyrstu ferð Aðalstöðvarinnar. Farið er úr Reykjanesbæ kl. 07.00 og úr Garðinum kl. 07.15. Unnið er að frekari breytingum sem kynntar verða innan tíðar. Sveitarstjóri. Reykjanesbær Húsvörður í Heiðarskóla Óskað er eftir húsverði í 100% starf við Heiðarskóla í Reykjanesbæ frá og með 1. mai 1999. Heiðarskóli er nýr heildstæður grunnskóli sem enn er í byggingu. Skólastarfið hefst í fullbúnum skóla haustið 1999. Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun og/eða starfsreynslu sem iðnaðar- maður. Viðkomandi verður að geta unnið sjálfstætt, eiga gott með að vinna með öðrum og jafnframt annast verk- stjórn. Laun skv. kjarasamningum Reykjanesbæjar og S.T.R.B. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 1999. Umsóknir berist Skólaskrifstofu Reykjanesbæjar, Hafnargötu 57, 230 Keflavík. Reykjanesbæ. Upplýsingar veitir skólastjóri Árný Inga Pálsdóttir eða starfs- mannastjóri Hjörtur Zakaríasson ísíma 42 1 6700. Utboð Húsfélagið Heiðarbraut la-f óskar eftir tilboðum í verkið „ENDURBÆTUR OG VIDGERDIR UTANHÚSS 1999" Verkið felst í að skipta um glugga, endurnýja þakkanta, háþrýsti-þvotti, múrviðgerðum og að setja steiningu utan á húsið. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 12. júni 1999. Útboðsgögn verða seld á Verkfræðistofu Suðurnesja ehf. Hafnargötu 58, 230 Keflavík á kr. 1000.- frá og með mánudeginum 8. febrúar 1999. Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 18. febrúar 1999, kl. 11. Stjórn húsfélagsins FRETTAVAKT VIKURFRETTA í SÍMA 898 VLVí Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.