Víkurfréttir

Eksemplar

Víkurfréttir - 04.02.1999, Side 20

Víkurfréttir - 04.02.1999, Side 20
Aðsendar greinar vegna prófkjörs Samfylkingarinnar Samfylkingin á Suðurnesjum Það sannaði sig í prófkjöri Sam- fylkingarinnar í Reykjavík að flokkakerfið er í uppstokkun. Samfylkingin er komin til að vera. Glæsilegur árangur við skipan á framboðslistann þar veit á gott um framhaldið. Lífs- viðhorf félagshyggju og sjónar- mið jafnræðis hafa náð saman í einni fylkingu sem er tilbúin til átaka við sjónarmið sérhyggju, þar sem stjórnarstefnan hefur verið í þágu hinna efnameiri í samfélaginu fyrst og fremst. Annað kvöld og á laugardag fer fram prófkjör Samfylkingarinn- ar hér í Reykjaneskjördæmi. Mikilvægi prófkjörsins felst einnig í þeim sóknarmöguleik- um sem okkur gefst í framhald- inu. Við höfum við tækifæri til þess að stilla saman strengi og velja lista yfir fiokkslínur eins og okkur sýnist best. í sameig- inlegri samfylkingu til framtíðar er samt mikilvægt að við Suður- nesjamenn höldum góðum hlut í þessu prófkjöri. Það skiptir líka máli að til forystu veljist fólk sem þorir að takast á við valdaöflin í samfélaginu, hafi f)or til að stokka upp og standa vörð um velferðarkerfið og sé fært um að fara nýjar leiðir í ný- sköpun atvinnulífsins. Eg býð mig fram til jrjónustu fyrir fólk og hef engra annarra hagsmuna að gæta. Mér þætti vænt um að fá stuðning í 3. sætið. Skúli Thoroddsen. Guðmund í efsta sæflð Það er mikilvægt í fyrsta próf- kjöri nýrrar sameinaðrar hreyf- ingar jafnaðarmanna og félags- hyggjufólks, að vel takist til við skipan hins nýja lista Samfylk- ingarinnar hér í Reykjaneskjör- dæmi. Prófkjörið sem frarn fer 5.og ó.febrúar næstkomandi og er öllum stuðningsmönnum opið, mun ráða því hvemig for- ystusveit okkar mun líta út í kosningabaráttunni í vor. Fjölmargt gott fólk er að finna í hópi frambjóðenda, sem em 19 talsins. Það skiptir miklu máli hvemig forystu verður háttað á listanum. Guðmundur Arni Stefánsson alþingismaður er mjög vel til forystu fallinn og er það mín skoðun að hann sómi sér vel í 1 .sæti listans. Hann er baráttumaður bæði í sókn og vöm og þótt ungur sé að ámm, hefur hann margháttaða reynslu í meðvindi sem mótvindi. í stjómmálum og lífinu almennt. Ég minni líka á, að Guðmundur Arni reyndist okkur betri en enginn þann stutta tíma sem Itann gegndi störfum heilbrigð- isráðherra. Beinn stuðningur hans og handfastur við bygg- ingu D- álmu var meiri og raun- verulegri en flestra annana og Góðærið inn á heimilin Það hringdi í mig ung verka- kona um daginn. Býr í Reykjanesbæ og er gift tvegg- ja barna ntóðir.. Þessi kona spurði eftir góðærinu og þá sérstaklega hvenær þess væri von inn á heimili launafólks í þessu landi. Hjónin ynnu bæði úti en endar næðu ekki saman. Hver mánaðarmót væm einfaldlega höfúðverkur og ergelsi, þegar launatekjur dygðu tæpast fyrir glugga- bréfunum og brýnustu nauð- synjum fjölskyldunnar. Þessi spuming er einfaldlega kjarni íslenskra stjórnmála í dag. Þessunt spumingum almenn- ings verðum við í Santfylk- ingu jafnaðar og félags- hyggjufólks að svara með skýrum og afdráttarlausum hætti. Og það munurn við gera. Við ætlum að jafna óhófiegan tekjumun og koma góðærinu inn á heimilin í landinu. Við viljum jöfnuð, frelsi og réttlæti til öndvegis í íslenska pólitík á nýjan leik. Og með þá lykla að framtíð- inni í höndum okkar, |tessi grundvallarlífsviðhorf. þá munum við koma á réttlátri og eðlilegri skipan í sjávarút- vegsmálum. treysta atvinnu og iífskjör. I prófkjöri Samfylkingar á föstudag og laugardag erum við að leggja grunn að því að hægt verði að taka á þessum stóru málurn. Ég er til í slag- inn. Er reiðubúinn að leiða lista hinnar nýju samfylkingar - vera í l.sæti. Ég vonast eftir því að við eig- um santleið í prófkjörinu nú á föstudag og laugardag. Guðmiwdur Arni Stefánsson alþingisntaður. alntennt naut heilbrigðisþjón- ustan hér suður ffá atorku hans og velvilja. Samfylking jafnaðarmanna í Reykjaneskjördæmi verður í góðum höndunt undir forystu Guðmundar Ama. Kristmundur Asmundsson yjirlœknir og bœjarfulltrúi. STYÐJUM ÁGÚST Við undirrituð, Suðumesjamenn, styðjum Ágúst Einarsson alþingis- mann til forystu í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjaneskjördæmi þann 5. og 6. febrúar n.k. Hreggviður Hermannsson, lœknir Hermann Ragnarsson, múrari Logi Þormóðsson,fiskverkandi Sigurður Guðbjörnsson, pípulagningamaður Sverrir Magnússon, lilaðmaður Þuríður Sigurjónsdóttir, húsmóðir Jóhannes Hleiðar Gíslason, nemi Isleifur Guðleifsson, hafnarvörður Halldóra Gunnarsdóttir, húsm. Rúnar Júlíusson, hljómlistarmaður Guðmundur Tli. Ólafsson, öryggisráðgjafi Valgerður Magnúsdóttir, verslunatmaður Þorleifur Már Friðjónsson, öryggis\'örður Jónína Olsen, húsmóðir Hrefna Magnea Guðmundsdóttir, nemi Vilhjálmur Vilhjálmsson, hlaðmaður Biynja Jónsdóttir, skrifstofumaður Jóhanna Brynjólfsdóttir, hjúkrunarfrœðingur Sterkari saman Á þeim þrem árum sem ég hefi setið á Álþingi íslendinga hefi ég orðið vitni að því hvernig málflutningur stjórnarand- stöðuflokkanna sem áður reyn- du að finna hver sína sérstöðu í öllum málum hefur orðið samvirkari og fundið í fjölmör- gum málum þar sem undirbúinn hefur verið samstæður málflut- ningur eins og t.d. við afgreiðs- lu frumvatpa um málefni vinnu- markaðarins og í atlögu ríkisstjómarinnar að félagslega húsnæðiskerfinu, hversu mikið sterkari við erum þegar við stöndum sama. Jafnvel [>ó ekki tækist að reka slík mál til baka, þingmeirihluti ríkisstjórnar- flokkanna er auðvitað mikill eins og allir vita, þá tókst þó að hnekkja ýmsum verstu ákvæðum þeirra og gera þau óskaðlegri en ella hefði orðið. Þannig fundum við sem stóðum í eldlínunni að við vorum sterkari saman. Kjör ellilífeyris- og örorkuþega hafa versnað í góðærinu. Ríkisstjórnin lofaði að bæta þeirra hag til samræmis við hækkanir á launamarkaði en sveik það að sjálfsögðu. Ef okkur finnst að þessir hópar samfélagsins eigi betra skilið þurfum við að standa saman til að ná því fram. Heilbrigðiskerfið er komið að fótum fram. Kostnaðarhlutdeild sjúklinga hefur smám saman vaxið þannig að samkvæmt skoðanakönnunum veigrar nú sá hluti þjóðarinnar sem minnst hefur sér til framfærslu sér við að leita læknis. Kostnaðurinn vegna meðferðar á eyrn- abólgutilfelli hjá minnsta bam- inu ríður tjárhag láglaunafjöl- skyldunnar á slig svo að ekki sé nú talað um tannlæknakostnað foreldranna. Hann þurrkar út möguleika fjölskyldunnar á sumarleyfi það árið. Þessu ætlum við að breyta og til þess verks erum við sterkari saman. Við viljum gera góðan skóla betri. Það er knýjandi nauðsyn að búa á þann veg að men- ntamálum að við séum samkeppnisfærir við þær þjóðir sem við viljum standast saman- burð við. Ef það takmark á að nást þarf að verja meiri fjár- munum til skólastarfs. Til að ná því fram erum við sterkari saman. Hluti þjóðarinnar er læstur inni í fátækragildru. inni í vítahring lágra launa, húsnæðiseklu. óhóflegrar skuldsetningar til að komast yfir húsnæði og hárra vaxta. Þetta fólk getur í raun ■ítf’fcs ekki veitt sér nein þau lífsgæði sem annars staðar þykja eðlileg né heldur það sem hjá öðrum telst til nauðsynja. Þetta ástand, meðan aðrir hópar virðast hafa sjálftökurétt um sín lífskjör, er þjóðarskömm. Þessu ætlum við að breyta. Til þess erum við sterkari saman. Sigríður Jóhannesdóttir alþingismaður, býður sig fram í 2. sœti í Reykjanesi. Nýburi í Noregi Stúlka fædist þann 10.01.99 á sjúkrahúsinu í Kongsberg í Noregi. Hún var 3220 gr. á þyngd og 49 cm á hæð. Stúlkan hefur verið néfnd Ástrós. Foreldrar eru Brynjar Steinarsson og Kolbrún Guðjónsdóttir. Á ntyndinni eru Ástrós og bróðir hennar Jón Steinar. Víkuifréttir

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.