Víkurfréttir - 18.02.1999, Síða 15
Klárir tipparar
með 13 rétta
Tipparar í Keflavík höfðu
heppnina með sér um síðustu
helgi en þá fék hópurinn
„Kláramir" þrettán rétta í get-
raunum.
Þetta eru starfsfélagar úr Frí-
höfninni í Leifsstöð og voru
þeir með eina röð með 13 rétt-
um, eina með tólf og fimm
ellefur. Gaf þetta þeim samtals
hálfa miiljón króna.
Þess má geta að hópnúmer
Kláranna er 34 en einhver
lukka virðist vera þama í stöð-
inni með þessa tölu því fyrir
nokkmm ámm kom stór vinn-
ingur í happdrætti sem bar
þessa tölu, stuttu seinna
vannst bíll og nú síðast get-
raunavinningur. Þá má geta
þess að einn meðlimur Klár-
anna sett 500 kr. á lengjuna og
náði sér í 400 þús. kr. Sannar-
lega góð helgi hjá |x:im.
Nú eru liðnar sex leikvikur af
tíu í núverandi hópleik og er
staða efstu hópa þessi:
1. Gámngar 64 stig
2. A-Vík 62
3. -6. Þorrinn 60
3.-6. FeðgamiróO
3.-6. Öfugalínan 60
3.-6. Trixarar 60
7,-11. Leicester 59
7.-1 l.Gó
7.-11. Southampton 59
7.-11. Ber 59
Forráðamenn Keflavíkur-tipp-
ara vildu minna tippara á að
lámarksfjöldi í hópleik er einn
og að hópnúmerið er 230.
Grindvikingar niður a jörðina
Njarðvíkingar halda sínu striki
Grindvíkingar sem luku síðustu
viku á sigri á toppliði Keflvíkinga
lágu 90-71 á Sauðarkróki. Liðið
tapaði þai' sínum fyrsta leik undir
stjóm Einars Einarssonar. „Við
náðum aldrei að komast í takt við
leikinn hverju sem um er að
kenna. Nú er bara að vera tilbúnir
að mæta Þórsumm á fimmtudag á
Akureyri” sagði þjálfarinn sigur-
sæli Einar Einarsson.
Kellvíkingar upp á jörðina
Keflvíkingar, eftir 2 tapleiki í röð,
sigruðu Jón Arnar og Hafnfirð-
inga hans auðveldlega 107-82 og
em vonandi komnir í gang aftur
eftir bikarleikinn. „Eftir mjög
slakan leik gegn Grindvíkingum
náðum við okkur á strik og unn-
um nokkuð ömgglega án þess þó
að eiga stórleik” sagði Sigurður
Ingimundarson þjálfari Keflvík-
inga.
Njarðvíkingar halda sínu striki
Njarðvíkingar sem komust með
bæði stigin frá ísafirði í síðustu
viku, sendu Borgnesinga aftur
heim í Boigames með 107-77 tap
á bakinu. „Við vomm með 16
stiga forystu í seinni hálfleik þeg-
ar einum Borgnesingnum varð
það á að slá til Friðriks Stefáns-
sonar án Jiess að dómaramir veit-
tu því eftirtekt. I kjölfarið settu
mínir menn upp flugeldasýningu
og komu muninum í 40 stig á
skömmum tíma” sagði Friðrik
Rúnarsson þjálfari Njarðvíkinga.
KVENNABOLTINN
Skilduverkefni hjá Keflavík
Einu leikimir sem einhverju máli
skipta í VlS-deildinni eru inn-
byrðisviðureignir efstu þriggja
liðanna og svo neðstu þriggja lið-
anna. Efri 3 sigra neðri 3 svo
auðveldlega að varla er hægt að
tala um keppni. Keflavíkurstúlk-
ur sigruðu IR-inga auðveldlega
40-76 eins og við var að búast.
Enn áföll hjá Njarðvík
Njarðvíkingar, sem berjast við
Grindvíkinga um síðasta sætið í
úrslitakeppni VÍS-deildarinnar,
hafa misst helstu máttarstólpa
liðsins. Bandan'ska stúlkan Kerri
Chatten er farin til sín heima, óá-
nægð með vistina, og Rannveig
Randversdóttir er hætl. Njarðvík-
ingar töpuðu 53-67 gegn toppliði
KR í síðasta leik jieiira stallsystra.
Grindvfldngar með 7 í fyrri hálf-
leik
Þau eru ekki burðug liðin sem
berjast um síðasta sætið í úrslita-
keppni VÍS-deildarinnar. Grind-
víkingar hljóta að hafa sett ein-
hvers konar met gegn IS er þær
skomðu aðeins 7 stig í fyrri hálf-
leik á eigin heimavelli. Að
leikslokum var rúmlega helm-
ingsmunur á liðunum 32-66 og
þurftu Stúdínur engan stórleik til.
Það verður að segja að Alexandra
Siniakova er enginn akkur, nema
akkeri væri, fyrir Grindavík, í
mesta lagi efnileg fyrir stærðar
sakir. örindvísku stúlkurnar
hittu aðeins úr 13 af 51 skotum
liðsins í leiknum og töpuðu bolt-
anum í 21 skipti.
Maranþonkaifa í Njarðvík
11. flokkur Njai'ðvfkinga er á leið á Scania Cup í Svíþjóð í apríl
næstkomandi og var í fjáröflunarskyni leikinn maraþonkörfu-
bolti laugardaginn 30. janúar í 12 klst samfellt. Tókst maraþon-
ið með miklum ágætum og fóm piltamir heim að moigni sunnu-
dags, þreyttir en ánægðir. Stjóm unglingaráðs UMFN og 11.
flokkur drengja þakkar stuðningsaðilum kærlega fyrir veittan
stuðning.
Jón Ingi með tvo sigra
Jón Ingi Ægisson sigraði á 10. Langbest ásamótinu á
Knattborðsstofu Suðumesja í lýrrakvöld. Jón Ingi var einnig í eldlí-
nunni um sl.helgi í höfuðborginni jiegar hann sigraði í 1. flokki á
stigamóti snókersambandsins.
Jón Ingi lagði Þormar Viggósson í úrslitum Langbest-mótsins 3:1 en
í 4ra manna úrslitum vann hann Jón Ólaf Jónsson og Þormar vann
Guðmund Stefánsson. í stigakeppninni er Jón Óli efstur með 560
stig, Þormar annai' með 440 og Guðmundur þriðji með 390.
Þrír efstu í Langbestmátinu, Jón Oli, Jón Ingi og Þormar.
KEFLAVIK
'lfináttar oc*tyme*ut<z£éi<%ct,
Aðalfundur
verður haldirtn í sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja
miðvikudaginn 24. febrúar 1999 og hefst kl. 20:00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Verðlaunaafhending.
íþróttamenn deilda heiðraðir og síðan
einn af þeim útnefndur
Jþróttamaður KEFLAVÍKUR 1998"
Iðkendur og félagar eru hvattir til að mæta.
Kaffiveitingar.
Stjórnin.
DHL deildin
fimmtudagirm 18. febrúar kl. 20
KEFLAVÍK - KR
Landsbankinn
1. deild kvenna
laugardaginn 20. febrúar kl. 17
KEFLAVÍK - ÍS
Bfitness centerM
Lanebest&f}
<ii
Hafnargötu 62 • 230 Keflavík • Sími 421 4777
Víkurfréttir
15