Víkurfréttir - 11.03.1999, Qupperneq 2
hROSKAH|ÁLP Á SUÐURNESjUM
''V'
Aðalfundur
verður haldinn í sal
Njarðvíkurskóla í kvöld',
fimmtudaginn 11. mars kl. 20.30
Dagskrá:
Venjuleg adalfundarstörf
Onnur mál.
Kaffiveitingar
Félagsmenn og velunnarar eru
hvattir til að mæta
Stjórn Þ.S
Áhugavert
Starfskraftur óskast til starfa hjá
Krabbameinsfélagi Suðurnesja
5-8 tíma á viku. Viðkomandi
verður að vera hugmyndaríkur
og áhugasamur um forvarnir og
getað starfað með unglingum. Góð
aðstaða fyrir hendi.
Umsóknir sendist til
Krabbameinsfélags Suðurnesja,
Hringbraut 99, Keflavik.
vörum!
fínebfl
~Verdwmi
§>irvýs
Hafnargötu 7b - Grindavík - sími 426 9888
Opið mánudaga til fóstudaga kl. 13-18 og 20-22
Laugardaga kl. 13-18
Bensínafgreiðslan íVogum flytur íVogasel:
Allt vitlaust i Vogum
Hreppsnefnd Vatnsleysu-
strandarhrepps veitti, á
hreppsnefndarfundi 3. mars
sl„ Olíufélaginu heimild til að
starfrækja matarverslun og
bensínstöð í Vogaseli. Greiddi
minnihluti atkvæði gegn
framgangi málsins og all-
margir bæjarbúar undirrituðu
mótmælaskjal gegn fyrirhug-
aðri bensínafgreiðslu. Grennd-
arkönnun bygginga- og skipu-
lagsnefndar kallaði á tvo mót-
mælalista og íbúar Fagradals
13 og 14 mótmæltu bréflega.
Matvaran kostar
bensínafgreiðslu
Jóhanna Reynisdóttir, sveitar-
stjóri, sagði það mest um vert
að með þessu væri komin
matarverslun í bæjarfélagið en
slíkt hefur ekki verið í boði í
nokkum tíma. Eflaust væri til
heppilegri staður fyrir bensín-
dælur en eldvarnareftirlitið
setti sig ekki gegn staðsetn-
ingunni og bensínstöðin verð-
ur byggð skv. öllum reglum
um útloftun og mengun. Þá
_f| VOG&EL
nrnr'tm mciff
Þjóiiustumiöstöáin Vogasel i Vogum
þar sem Esso opnar bensínstöð og verslun.
sagði hún fyrirhugað að reisa
skjólvegg fyrir íbúa Fagradal
13 sem búa næst fyrirhugaðri
bensínafgreiðslu. Hún kvaðst
ekki hafa þá trú að umferð
yrði mikil og mestu skipti að
fólk hefði aðgang að matvöm-
verslun í byggðarlaginu.
Kjartan Hilmisson, sem býr
að Fagradal 13 er ósáttur við
afgreiðslu sveitarstjórnar.
„Þessi væntanlega bensínstöð
er við hliðina á heimili mfnu
og svefnherbergisgluggi í
u.þ.b. 2 metra fjarlægð frá
lóðarmörkum. Þótt ég sjái
nauðsyn þess og hag bæjarfé-
lagsins í komu matvömversl-
unar er staðsetning bensínaf-
greiðslu svo nærri íbúðar-
byggð ómöguleg lausn á þess-
um vanda. Þá er ég þakklátur
útsýnishugmyndum sveitar-
stjómar en þeir em tilbúnir að
reisa skjólvegg fyrir fjölskyld-
una að horfa á. Sveitarstjórn
ætti að sjá sóma sinn í að
breyta þessari ákvörðun sinni
enda tel ég 80% Vogabúa á
móti þessum gjöming. Hef ég
leitað aðstoðar lögmanns hús-
eigandafélagsins varðandi rétt
minn og annarra nábúa fyrir-
hugaðrar bensínafgreiðslu Ol-
íufélagsins.“
Margir gefa nkinu goðærið
Síðasta vika var að mestu
slysalaus í umdæmi lögregl-
unnar í Kellavík og eru lög-
reglumenn því almennt mjög
þakklátir. Margir hétu þó sín-
um hluta góðærisins beint á
ríkissjóð aftur þvf 44 voru
kærðir fyrir of hraðan akstur
og fjórir eru gmnaðir um ölv-
unarakstur. Þá vom 30 kærðir
fyrir að vanrækja að láta skoða
bifreiðar sínar, tveir ökumenn
misskildu stöðvunarskildu-
merkin og 7 töldu ekki ástæðu
úl að festa sig í öryggisbeltin.
Sé gert ráð fyrir vægustu sekt-
un vegna hrað- og ölvun-
araksturs getur ríkissjóður
þakkað ökumönnum á Suður-
nesjum a.m.k kr. 507.000
framlag þessa vikuna.
Grindvíkingar lögðu einnig sitt
af mörkum og nam framlag
þeirra a.m.k. kr. 181.000 í
ýmsustu umferðarlagabrotum
þ.m.t einum kærðum ölvun-
arakstri. Þá tókst tveimur bif-
reiðum að lenda í hörðum
árekstri á gatnamótum Ránar-
götu og Mánagötu þrátt fyrir
að hafa báðar verið á leið í
sömu átt. Varð þar mikið
eignatjón en enginn slasaðist
sem skiptir ítuðvitað mestu. Þá
sá einhver sig knúinn til að
skemma bifreið á Miðgarði og
laumast burt.
Umferðarlagabrotin
dýrkeypt
Blm. Víkurfrétta verður bara
að taka það á sig að verða tal-
inn furðufugl en honum fannst
áhugavert að lesa reglugerð frá
ríkinu. Um er að ræða reglu-
gerð nr. 280/1998. krossi sig
hver sem vill. uni sektir og
önnur viðurlög vegna brota á
umferðarlögum og reglum
settum skv. þeim. Þar eru upp-
talin öll hugsanleg brot gegn
umferðarlögunum og nokkur
sem fæsmm hefði dottið í hug
að til væru, Sekta má veitinga-
menn, þjóna og bensínaf-
greiðslumenn um kr. 6000 fyr-
ir að reyna ekki að koma í veg
fyrir ölvunarakstur og bændur
um sömu upphæð fyrir að reka
búfé á vegi án leyfis lögreglu-
stjóra, eru jretta kannski sams
konar brot? Sérstaka athygli
vöktu sektir gegn þeim sem
gripnir eru við að aka sviptir
ökuréttindum, litlar kr.
50.000,- við fyrsta brot og
heilar kr. 100.000,- sé maður
hirtur tvisvar. Blm. ætti líkleg-
ast ekki bifreið eftir fyrra brot-
ið en jú það eiga margir nýlega
jeppa hér suðurfrá.
I næstu viku hellum við okkur
síðan í spennukaflann um gerð
og búnað ökutækja - get ekki
beðið. jak.
Fermingaskeyti
Munið skeytasölu Skátafélagsins
Víkverja í Njarðvík.
Q it verðurí Opnunartímar:
sLðar&úðW' J4. mars 10-19
«1 5966.
S tapa
yísa/Eurj
símgrel
iðslur
21. mars 10-19
28. mars 10-19
1. apríl 14-16
Jóhann og
séra Jóhann
Víkurfréttum varð það á að
gera Jóhann Geirdal að fram-
kvæmdastjóra Heilbrigðis-
stofnunar Suðumesja í síðasta
tölublaði. Þetta leiðréttist hér
með en rétt nafn fram-
kvæmdastjórans er Jóhann
Einvarðsson. Eru þeir nafnar
hér með beðnir afsökunar á
nafnabrenglinu.
2
Víkurfréttir