Víkurfréttir - 03.06.1999, Page 10
Vilhjálmur Ketilsson, skólastjóri slítur Myllubakkaskóla.
Nemendur hlýddu hugfangnir á
þær Hönnu Björg og írisi Ósk
leika á hljóðfæri sín.
Myllubakkaskóla slitið í
síðasta sinn sem barnaskóla
Síðasta útskrift úp
unglingaskóla í Keflavík
Holtaskóla var slitið í 47 sinn
sl. laugardag. Eins og kunnugt
er verða allir skólar í
Reykjanesbæ langskiptir að
hausti og því hlutverki
Holtaskóla eða Gagnfræða-
skólans í Keflavík, eins og
han hét áður, sem unglinga-
skóla eins þess stærsta á land-
inu lokið. Það voru blendnar
tilfmningar sem bærðust með
starfsfólki og nemendum á
skólaslitunum.
Nú dreifist hópurinn, en
skólastjórinn Sigurður E.
Þorkelsson hvatti nemendur
til að rækja vinasambönd vel
þótt bænum yrði nú skipt í
skólahverfi. „Gleymið ekki
gömlum vin þótt gefist aðrir
voru einkunnarorð hans.
Skólaslitin voru með
hátíðlegum blæ og voru fiutt
tónlistaratriði af nemendum
ásamt því að ræður voru flutt-
ar og að sjálfsögðu fóru fram
hefðbundnar verðlauna-
afhendingar.
Holtaskóli kom í ár svipað og
áður út úr samræmdum próf-
um en skólinn er í kring um
landsmeðaltalið.
Myllubakkaskóla var slitið
fimmtudaginn 27. maí, þar
sem stór hluti eða 30 kennarar
skólans voru að fara í náms-
ferð til Boston í Banda-
ríkjunum þann sama dag.
Kennararnir mun kynna sér
skólastaif í fylkinu, hitta bæði
nemendur og kennara, sitja
fræðslufundi og safna saman
upplýsingum og fræðslu til
þess að nýta hér heima.
Fjöldi nemenda á skólaárinu
var 735, kennarar voru 43
talsins, en nú við breytinguna
fækkar nemendum niður í
410 og kennarar verða um 30
talsins. Þetta er viðamesta
breyting á skólakerfi bæjar-
félagsins frá upphafi, breyt-
ing sem ntun taka til allra er
að skólastarfi koma. Það ligg-
ur fyrir að skólamir í bænum
okkar verða það sem kallað er
heilstæðir tveggja hliðstæðna
skólar, þ.e. skólar fyrir 1. - 10.
bekk með að meðaltali tvo
bekki í árgangi. Holtaskóli og
Heiðarskóli verða báðir ein-
setnir strax næsta skólaár, en
Myllubakkaskóli og Njarð-
víkurskóli verða tvísetnir að
hluta til næsta vetur.
Skólastjóri kvaddi nemendur
nteð því að minna þau á liðin
ár í skólanum, þar sem þau
hefðu þroskast og dafnað,
lifað og lært. Margt sent þau
hefðu öðlast í náminu við
skólann yrði þeim haldreipi
síðar á lífsleiðinni. Stærsti
lykill að frekari námi þeirra
fékkst innan veggja skólans
með hjálp góðra og
áhugasamra kennara, en það
er lesturinn sem notast hvar
sem er og hvenær sem er við
hvaða aðstæður sem er. Það er
ekki lítið sem sú tækni getur
gert nemendum kleyft að
framkvæma og skilja.
Hvatti hann nemendur til að
nýta sér kunnáttuna og leita
þekkingar hvar sem þau teldu
hana að fá.
Þá voru veitt verðlaun fyrir
framúrskarandi námárangur í
2. - 6. bekk.
Ásgeir Erlingsson sem
nemendur völdu
kennara ársins, flytur
ræðu fyrir
hönd kennara.
Ouxinn Ouðný Petrína
Þórðardóttir og íþróttamaður
Holtaskóla Jónas
Guðni Sævarsson.
VF-myndir: Holtaskóli
íþróttakrakkar Myllubakkaskóla að þessu sinni voru þau Þóra
Björg Sigþórsdóttir og Óli Jón Jónsson.
Þessir nemendur í 6. bekk fengu viðurkenningu fyrir góðan náms
árangur, f.v. Elín Inga Ólafsdóttir, Flóra K. Buenano, Sveinn
Þórhallsson, Guðmundur Benjamínsson, María Guðgeirsdóttir,
Tinna Rósantsdóttir, Guðgeir Arngrimsson, Anna María
Ævarsdóttir, Edda Rós Skúladóttir og Valgerður B. Pálsdóttir.
10
Víkurfréttir