Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 03.06.1999, Síða 23

Víkurfréttir - 03.06.1999, Síða 23
Styrktarsamningar við Keflavík Rétt fyrir íslandsmót í knattspyrnu skrifuðu torráðamenn nokkurra fyrirtækja undir styrktarsamninga við Keflavík . Þetta voru fyrirtækin VÍS, Stuðlaberg, Samvinnuferðir-Landsýn og Víkurfréttir. Á mynd- inni má sjá forráðamenn fyrirtækjana f.v. Guðlaug Eyjðlfsson fá VÍS, Egil Olafsson frá SL, Rúnar Arnarsson, formann Kkd. Keflavíkur, Grétar Ólason, stjórnarmann, Pál Ketilsson frá VF og Guðlaug Guðlaugsson, Stuðlabergi. í söng- og messu- ferðalag til Skotlands Kirkjukór Njarövíkur mun, þann 8. júní nk., halda í söng- og messu- ferðalag til Skotlands ásaint sóknarpresti og organista. Einnig verða með í för nokkrir makar kórfélaga og sóknar- nefndarfólk. Dvalið verð- ur fyrstu fjóra dagana í Carberry Towers kastal- anum sem er rétt fyrir utan Edinborg. I*ar mun kórinn halda tónleika í kapellu staðarins. Laug- ardaginn 12. júní verður haldið til bæjarins Tomin- toul, en þar starfar Svein- björn Bjarnason, íslensk- ur prestur. A sunnudegin- um verður sungin á guðs- þjónustu á staðnum, farið á elliheimili og sungið fyr- ir vistmenn og síðan haldnir tónleikar í kirkj- unni um kvöldið. Síðustu tvo dagana verður dvalið í Glasgow. Kórinn mun halda tónleika í Ytri- Njarðvíkurkirkju fimmtudaginn 3. júní kl. 20:30. A efnisskrá er ís- lensk kirkjutónlist, lög eft- ir íslensk tónskáld auk þjóðlaga og ættjarðar- laga. Einsöngvarar eru Birna Rúnarsdóttir, sópr- an, og Haukur Þórðarson, tenór, sem bæði eru kórfé- lagar. Einnig kemur fram karlakvartett skipaður kórfélögum. Stjórnandi kórsins er Steinar Guð- mundsson organisti. Annar sigur Arnar Ævars Öm Ævar Hjartarson, kylfin- gur úr Golfkúbbi Suðumesja sigraði á öðru mótinu í röð á Toyota mótaröðinni í golfi á Hellu um síðustu helgi. Öm Ævar lék 36 holumar á 2 undir pari, 138 höggum en ekki var leikið á sunnudag vegna veðurs. Öm Ævar er að leika mjög gott golf þessa dagana og ætti því að koma sterkur inn í Landsmót í holukeppni sem verður í Leirunni frá föstudegi til sunnudags. A föstudag verður leikinn undankeppni þar sem 16 bestu vinna sér þátttökurétt í holukeppninni sem verður leikin á laugardag og sunnu- dag. Það má því búast við súper- golfi í Leirunni um helgina þegar allir bestu kylfingar landsins reyna með sér í holukeppni. VerðlaunahditíújSí Sportbúðar Oskars-mótinu í golfi. Bræðurnir ogsyslu- manns-lulltrúinn bestir Sportbúðar Óskars-mótið í golfi, þriðja stigamót sumarsins hjá Golfklúbbi Suðurnesja fór fram í fyrradag í sumarblíðu á Hólmsvelli. Ungu strákarnir sýndu af sér kæti og bræðurnir Gunnar og Jón Jóhannssynir voru bestir án forgjafar. Asgeir Sýslumanns- fulltrúi sýndi hvað byrjendur geta orðið fljótt góðir. Besta skor Gerða Halldórsdóttir 84 Með forgjöf 1. Elín Gunnarsdóttir 67 2. Rut Þorsteinsdóttir 70 3. Valdís Valgeirsdóttir 71 Meistara teigar - Án forgjafar 1. Gunnar Þór Jóhannsson 71 2. Jón Jóhannsson Yngri 72 3. Bjöm Víkingur Skúlason 74 Gulir teigar - Með forgjöf 1. Asgeir Eiríksson 59 2. Rúnar Guðmundsson 61 3. Gunnar Þór Ásgeirsson 62 4. Amar Freyr Jónsson 63 aiubjWG Orn Ævar með regnhlífina á lofti á hellu sl. sunnudag eftir að seinni keppnisdegi hafði verið aflýst vegna rigningar og roks. Gott golf í Bláa lóns mótinu Kylfingar vom í stuði í Bláa lóns mótinu í golfi sem fram fór á Hólmsvelli í Leiru sl. sunnudag. Eftir að stigamót- inu á Toyota-mótaröðinni hafði verið aflýst vegna rigningar á Hellu skundaði stór hópur bestu kylfinga landsins til Hólmsvallar og lék þar golf í fínasta veðri. Án forgjafar 1. Ottó Sigurðsson GKG 70 2. Pétur Oskar Sigurðs GR 71 3. Gunnar Þór Jóhanns GS 72 Með forgjöf 1. Heimir Sverrisson GSE 65 2. Heiðar Breiðfjörð GR 65 3. Steinar SigUyggsson GS 66 Sumar-körfu- æfingar í Keflavík Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur ákveðið að halda úti reglulegum æfingum fyrir yngri sem eldri leikmenn í sumar. Sigurður Ingimundarson. þjalf- ari meistaraflokks Keflvíkinga, annast þjálfun og æfingagjald verður kr. 1.500 á mánuði. Dag- skrá æfinga er eftirfarandi: Mánudaga: kl. Il-12Ellefuáraogyngri kl. 12-13Tólf til 14ára kl. 16-1914-16 ára kl. 19-21 Meistarafl. karla PriQjudaga: kl. 18:30-20 M.fl.kvenna kl. 20-21:30 1. flokkurkarla Miövikudaga: kl. 11-13 YngriOokkar kl. 16-17:30 Yngriflokkar kl. 17:30-19 Fimmtán ára stúlkur og piltar kl. 19-2IM.flokkurkarIa Fimmtudaga: kl. 19-20:30 M.fl.kvenna Föstudaga: kl. ll-13Yngri flokkar kl. 16-18Yngri ílokkar kl. 18-20M.flokkur karla. Stjórn deildarinnar leggur áherslu á að körfuknattleiks- menn mæti vel á meðan reynsla er að fást á verkefnið því hætta er á að æftngar falli niður verði aðsókn slök. Æfingar hófust miðvikudaginn 2. júní nk. Kvenfélagskonur Skógræktardagur verður fimmtudaginn 3.júní við Rósaselsvötn. Fjölmenn- um í gróðursetningu og tökum t jölskyItlumeðlimi með okkur. Daginn endum við svo með útigrilli. Mæt- ing stundvíslega kl. 17:00 Stjórnin Sjómannadagurinn í Sandgerði Sandgerðingar halda sjó- mannadaginn hátíðlegan með hefðbundnum hætti. Á laugardag hefst dagskrá- in með kappróðri kl. 14 og lýkur með dansleik til kl. 03:00. Sunnudagurinn hefst með messu í Hvals- neskirkju og endar með fótboltaleik ytinnanna og undirmannu bátaflotans kl. 17:30. Leiðrétting I myndatexta með Ijós- mynd al Jóni Pálssyni í síðasla blaði var sagt að liann væri nýverið orðinn áttræður. Þama urðu blaða- manni á mistök því Jón fagnaði 90 ára afmæli sínu þann 4. apríl sl. Beðist er velvirðingar á þessum mis- tökum. Fréttavakt 898 2222 Víkurfréttir 23

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.