Víkurfréttir - 10.06.1999, Blaðsíða 6
Minnisvarði um drukknaöa sjómenn var vígður í Hvalsnes-
kirkjugarði á sjómannadaginn. Minnisvarðinn er verk
systkinanna Irisar Jónsdóttur og Þorsteins Jónssonar og var
reistur að frumkvæði Axels Arndal Vilhjálmssonar, for-
manns sjómannadagsráðs Sandgerðis.
Helga Ingimundardóttir gaf
3.40Ó trjájurtir til Skógræktar-
átaks okkar Suðumesjamanna
og Græna hersins. Gjöf Helgu
er ntikil og merkileg fyrir þær
sakir sérstaklega að það eru
hvalirnir sem bera trén að
landi. Helga stofnaði fyrir-
tækið Höfrunga- og hvala-
skoðun Ferðaþjónustu Suður-
nesja og ákváð að gefa eina
trjáplöntu fyrir hvern við-
skiptavin sem sigldi með
fleyi hennar, Andreu, á hvala-
skoðunamtið. „Eg ákváð strax
í upphafi að hver viðskipta-
vinur niyndi stuðla að upp-
byggingu gróðurs á Suður-
nesjum og mjög ánægjulegt
að taka þátt í jafn ntikilvægu
málefni og þessu.“
í Bláa Lóninu
Barist gegn fikniefnunum
Átak gegn sjálfsvígum og vímuefnum
Taktu afstöðu með lífinu!
Dagana 9-14. júní mun Hvíta-
sunnukirkjan standa fyrir
átaki gegn fíkniefnavandan-
um. Atakið ber yfirskriftina
„Átak gegn sjálfsvígum og
víniuefnum/Taktu afstöðu
með lífinu". Hér verða í
heimsókn unglingar frá Nor-
egi sem sumir hverjir hafa
losnað ur fjötrum fíkniefna,
en aðrir fundið bestu forvöm-
ina sem er lifandi samfélag
við Jesú Krist. Þeir munu
ganga unt götur bæjarins,
dreifa boðsmiðum, bækling-
um og segja hverjum sem við
hlusta frá reynslu sinni. Þá
verða samkomur í Hvíta-
sunnukirkjunni og á planinu
að Hafnargötu 88, sbr. auglýs-
ing í VF.
Fararnesti
foreldranna
Virðingarleysi ungmenna
fyrir lífi, limum, eignum
og orðurn annarra hættir
aldrei að konta á óvart.
Rétt fyrir síðustu mánað-
armót var táðist á sak-
lausan símaklefa fyrir
utan höfuðstöðvar póst-
burðarmanna efst á Hafn-
argötunni og talsvert haft
fyrir því að brjóta rúður
klefans. Virðingarleysi
fyrir eignum annarra er
ekki meðfæddur eigin-
leiki heldur áunninn.
Kona lét lífið
Víkurfréttir
koma næst
út miðviku-
dagskvöldið
16.júní
SKÓGI VAXIN
Skógræktarfélag Suðurnesja, Græni her-
inn, Reykjanesbær á réttu róli, Höfrunga-
og hvalaskoðun Ferðaþjónustu Suður-
nesja og hin ýmsu félög og klúbbar á
Suðurnesjum tóku saman höndum í síðustu
viku, plöntuðu trjám og betrumbættu útlit
Reykjanesbæjar. Þessir aðilar fengu til liðs við
sig Vigdísi Finnbogadóttur fyrrverandi forseta
íslands, Hjálmar Amason alþingismann, Ellert
Eirfksson bæjarstjóra, stórhljómsveitina Stuð-
menn og Skógræktarfélag Islands sem studdu
verkefnið, hvert á sinn hátt.
Vatnsholtstankurinn niálaður
Liðsmenn Græna hersins unnu að því hörðum
höndum síðasta föstudag og laugardag að mála
gamla vatnstankinn á Vatnsholtinu.
Léleg þátttaka vngri kynslóðarinnar
Ungir Suðumesjamenn sýndu því lítinn áhuga
að ganga í Græna herinn sl. föstudag en skv.
skipulagi Græna hersins var stflað upp á áhuga
yngri kynslóðarinnar á ballinu það kvöldið sem
ætlað var 16 ára og eldri. Mögulega taka 16 ára
unglingar í Reykjanesbæ því ekki að sinna um-
hverfi sínu né fara á Stuðmannaball. í það
minnsta ekki án áfengis en einnig er möguleiki
að þeim finnist hallærislegt að standa saman
um gott málefni.
Stórgóður lokakatli
Seinni dagur umhverfisátaksins var hins vegar
afbragðsgóður og tókst að Ijúka öllum verkefn-
um þó tímasetningar helstu viðburða Itefðu
mátt vera nákvæmari en eins og einn fotráða-
manna verkefnisins sagði „Stefnan er að ísland
verði skógi vaxið árið 2100 svo til lítils er að
æsa sig yfir nokkrum mínútum". Lokahnykk-
urinn var gróðursetning trájurta við Rósasels-
vötn en Vigdís Finnbogadóttir gróðursetti
fyrstu trén með aðstoð ungra stúlkna og pilta.
Áttunda banaslysið á síð-
astliðnum 15 árum varð í
Bláa Lóninu sunnudaginn
6. júní sl. er 46 ára Taí-
vönsk kona fannst látin í
lóninu kl. 18:10. Dánarör-
sök er enn ókunn en rann-
sóknardeild lögreglunnar í
Keflavík annast rannsókn
nrálsins. Ásgeir Eiríksson
fulltrúi sýslumanns í Kefla-
vík sagði mál af þessu tagi
afar viðkvæm. „Rannsókn
málsins er í ákveðnum far-
vegi og get ég ekki tjáð
mig um stöðu þess. Frá
1984 hafa 8 einstaklingar
látið lífið í Bláa Lóninu, 4
útlendingar og 4 Islending-
ar. Rannsóknir lögreglu á
fyrri slysum hafa ekki leitt í
ljós neinn samverkandi þátt
sem tengdur er starfsskil-
yrðum eða öryggisvörslu
rekstraraðila."
SUÐURNESIN
Svírabryggja loks löguð
Ráðist hefur verið í viðgerðir á Svírabryggju í Grindavík.
Bryggjan sem skemmdist töluvert fyrir allnokkrum árunt síðan
mun nú loks fá viðunandi viðgerð. „Það hefur lengi staðið til að
gera almennilega við þessa bryggju því þetta er aðallöndunar-
bryggja smábáta í Grindavík. Dekkið hefur verið tekið af og
verður skipt um þá staura sem ónýtir em, skipt um bita og að
lokum lagt nýtt dekk á allt saman. Stefnt er að því að ljúka þess-
urn viðgerðum í ágúst nk.
6
Víkurfréttir