Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 10.06.1999, Page 10

Víkurfréttir - 10.06.1999, Page 10
Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins: Góð þátttaka í hlaupinu Góð þátttaka var í heilsu- hlaupi Krabbaineinsfélags- ins 3. júní sl. þrátt fyrir veðrabrigði og aðrar uppá- komur á sama tíma. Arn- grímur Guðmundsson varö fyrstur karla í 7 km. hlaupi og Una Steinsdóttir fyrst kvenna á sömu vegalengd. Þau Þór Kíkharðsson og Karen Sævarsdóttir tóku heim verðlaunin í 3 km. skemnitiskokki. Samtals voru þátttakendur 87, yngsti keppandi 3 ára og sá elsti 62 ára gamall. Deloitte & Touche & A tvinna Viðskiptafræðingur Deloitte & Touche endurskoðun hf. óskar eftir að ráða viðskiptafræðing til starfa á skrifstofu vora í Keflavík. I starfinu felst endurskoðun, reikningskil og skattskil minni og stærri félaga. Æskilegt en ekki skilyrði er að umsækjendur hafi lokið prófi á endurskoðunarkjörsviði frá Viðskiptadeild Háskóla Islands. Skriflegar umsóknir sendist til Deloitte & Touche endurskoðun hf., b.t. Guðmundar Kjartanssonar, Hafnargötu 29, Pósthólf 90, 230 Keflavík OPIÐ BREF TIL BÆJAR- STJÓRA REYKJANESBÆJAR Ég undirritaður skora á þig að fara ót á körfuboltavöll- inn fyrir neðan skólann í Njarðvík og líta á ástand vallarins. Eg er viss um að þú myndir hætta í körfu eftir smástund, ekki vegna þess að þú sért svo lélegur, heldur vegna þess að aðstaðan þama er ömurleg. Þar eru holur í vellinum og mjög gróft yftrborð sem gertur eyðilagt boltana og maður þyifti ekki nama að stíga ofan í holumar til að stórslasa sig. Þar sem ekki er um marga velli hér í Njarð- vík að ræða, til að spila á, þá skora ég á þig að beita þér fyrir þvf að völlurinn verði lagaður svo við, sem höfum mikinn áhuga á að æfa og spila körfubolta, getum stundað körfubolta án þess að eiga á hættu að slasa okk- ur. Með von um að þú beitri þér fyri bættum aðbúnaði á körfuboltavellinum við Grunnskólann í Njarðvík Virðingarfyllst Helgi Már Guðbjartsson Borgarvegi 48 Njarðvík Fypsta afupð Klamedíu X á mapkað Útgáfa fyrstu geislaplötu hljómsveitarinnar Klamedíu X er nú staðreynd. Ber verkið nafnið 'Pilsner fyrir kónginn' og er væntanlegt á markað undir lok þessa mánaðar. 'Pilsnerinn' samanstendur af 13 alþýðlegum dægurlögum sem öll bera listfengi Klamedíu X fagurt vitni, lögin em prýðisvel unnin og innan um sönghæfa slagara má finna fáein listaverk. Sungið er á íslensku samkvæmt fomri norrænni hefð og er það vel, þó vissulega sé þá óvíst að innihald textanna komist til skila. 'Pilsner fyrir kónginn' var tekin upp í Keflavík, þar sem nú heitir Reykjanesbær. Þar er hljóðverið 60B, sem rekið er af Guðm. Kristni Jónssyni. Þang- að hélt Klamedía X í öllum veðmm frá byrjun janúar fram í lok apríl. Vom meðlimir sveit- arinnar aufúsugestir í rokk- hreiðrinu Keflavík og var það mál heimamanna að indælli rokkstjömur hefðu ekki sést þar í sveit, enda er Klamedía X Gerðahreppur Útboð Gerðahreppur óskar eftir tilboðum í verkið „Gerðaskóli - viðgerðir og endurnýjun glugga 1999". Verkið felst í að skipta um glugga, endurglerja hluta hússins og gera smávægilegar breytingar innanhúss. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 10. ágúst 1999. Útboðsgögn fást gegn 5000.- kr. skilatryggingu á skrifstofu Gerðahrepps, Melbraut 3, 250 Garður. Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 16. júní 1999, kl. 11.15. Byggingarnefnd Gerðaskóla. kurteis með afbrigðum og hvers manns hugljúfi. Velvild þeirra Keflvíkinga í garð Klantedíu X má rekja til þess að sveitin vann hina mætu Rokkstokk hljómsveitakeppni 1998. Þar vann sveitin sér inn ferð til Danmerkur á Mosstock festival, sem er mikil, vegleg og virt útihátíð þar í landi. Vakti Klantedía X þvílíka lukku í landi Bauna að þeir Keflvík- ingar ákváðu um leið að ausa fé í gerð geisladisks. og kynna þar með íslenskri alþýðu stórfeng- lega tónlist Klamedfu X. Það var margmiðlunarrisinn GJOR- BY sem tók hljómsveitina upp á sína arma og afraksturinn er eins og áður sagði 'Pilsner fyrir kónginn’. En hver er hún þessi Klamedía X og hvað er hún að æsa sig? Jú, Klamedía X er sex manna hljómsveit, stofnuð upp úr almennum strákapörum og menntaskólagalsa. Sveitin stökk nokkmm sinnum upp á svið um miðjan þennan áratug og vakti þá þegar fádænta athygli og glimrandi lukku. En jafnvel þótt Klamedía X næði ekki almennri hylli á þessum ámm steig fiægðin sveitinni svo til höfuðs að hún ákvað að draga sig úr sviðsljósinu. Næstu árin hírðist Klamedía X í illa þefjandi æfingarbúðum allt fram á síð- asta sumar að hljómsveitin hætti sér út og vann þá um leið fyrmefnda Rokkstokk keppni. Síðan þá hefur Klamedía X ekki fengið stundlegan frið fyrir trylltum aðdáendum, aðsóps- miklum útgefendum og yfirþyr- mtmdi fjölmiðlafári. Af þessum fáu orðum ættir þú, lesandi góður, að sjá að Klamedía X er engin venjuleg hljómsveit. Ekki bara tískubóla með fallegt nafn. Nei, Klamedía X er nauðsyn, hún er nauðsyn- leg íslensku tónlistarlífi, svo ekki sé minnst á íslenskri sögu og menningu. 'Pilsner fyrir kónginn' er fáheyrt nteistara- verk sem ntun bera fánann, skjaldarmerkið, fjallkonuna og allt draslið á gullstól inn í nýja öld. Hlustaðu bara! fyrir hönd Klantedíu X, Bragi Valdimar Skúlason, offursti. ERTU ORÐIN LEIÐ(UR) A AÐ LEIGJA ? TIL SÖLU 2 herb, 68 m2 íbúð á annari hæð í nýlegu fjölbýlishúsi í Keflavík. Nýjar flísar á gólfum. Fallegar beyki innréttingar á eldhúsi, baði, herbergi og forstofu. Baðherbergi flísalagt i hólf og gólf. Topp íbúð á topp stað. Uppl. í síma: . 898-2203 georg georg@ok.is 10 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.