Víkurfréttir - 01.07.1999, Blaðsíða 11
5UDURNE5JA
RíYKIANESTIOINDI
Ologlegar
auglýsingar?
Rannsóknardeild lögregl-
unnar í Keflavík rannsak-
ar þessa dagana lögmæti
auglýsinga Millennium í
RT og Suðumesjafréttunr
undanfamar vikur. Telja
laganna verðir forráða-
menn Millennium vera að
auglýsa áfengi en eins og
öllum landsmönnum er
kunnugt er bannað að
auglýsa áfengi.
Felagsmalastjopi í skóla
Stefna í málefnum eldri borgara var lokaverkefni
Hjördísar Árnadóttur félagsmálastjóra
Reykjanesbæjar sem settist á skólabekk
Hjördís Árnadóttir félagsmálastjóri
Reykjanesbæjar hefur undanfarin
þrjú misseri stundað nám í opinberri
stjórnsýslu og stjórnun við HÍ á
vegum Endurmenntunarstofnunar HI,
Hagsýslu ríkisins og Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Starf félagsmálastjóra er
annríkt en Hjördís lét það ekki aftra sér frá
því að keyra Revkjanesbrautina þrjá daga í
viku á þriggja vikna fresti
og segir nárriið stuðla að betri þjónustu í opin-
bemm rekstri. Alls luku 34 námi og ótskrifaðist
fyrsti hópurinn af þessu námsviði þann 19. júní
sl.
„Það var mikill metnaður lagður í uppbygg-
ingu námsins og eru þeir sem að því standa
mjög ánægðir með árangurinn og mikið kapp
lagt á að kynna námið sem best.
Nemendur vom af öllu landinu en flestir voru
af Vestfjörðum. Eg var ein firá Suðumesjum og
vil ég nota tækifærði og hvetja opinbera starfs-
menn hér, ekki síst þá sem sinna stjórn-
unarstörfum að kynna sér þetta nám.”
Námið var stundað samhliða starfi og var að
sögn Hjördísar tekið á helstu þáttum opinberrar
stjómsýslu. Má þar nefna almenna stjómunar-
fræði, skipulag og löggjöf, áætlanagerð og
reikningsskil, upplýsingatækni, gæðastjómun,
árangursstjórnun auk stefnumótunar og |
breytinga í opinberum rekstri. Hverri lotu lauk
með verkefnaskilum eða prófi.
„Verkefnin gátu verið hagnýt. Lokaverkefni
mitt var t.d. um „stefhumótun í málefnum eldri
borgara í Reykjanesbæ”. Það verkefni vann ég
í samvinnu við félagsmálastjóra Vestmanna-
eyja en bæjarstjóm Vestmannaeyja hefur lrkt j
og bæjarstjórn Reykjanesbæjar ákveðið að
mörkuð skuli stefna í málefnum eldri borgara”.
Auk Hjördísar stunduðu þrír félagsmálastjórar
námið auk sveitarstjóra, sýslumanna,
skólastjómenda, framkvæmdastjóra ýmissa
sviða í opinberum rekstri auk starfsfólks í
almennum störfum.
REYKJANESBÆR
77/ sölu eða
brottflutnings
Suðurgata 10
Tilboð óskast í húseignina Suður-
gata 10, sem er bárujárnsklætt
timburhús byggt árið 1928 um
286m2 að stærð og grunnflötur
44,3m2. Húsið skal flytja á lóð
nr. 10 við Bergveg og koma því fyrir
á steinsteyptum kjallara sem
kaupandi kostar. Fasteigninni fylgir
lóð, greidd gatnagerðar- og
byggingarleyfisgjöld og samþykktar
byggingarnefndarteikningar sem
gera ráð fyrir stækkun hússins.
Húsið verður skv. nýjum teikningum
157,4m2 og 345,7m3. Reiknað er
með að húsið verði lengt um 3
metra og settir á það tveir kvistir.
Kvöð er um að veggir og þak
hússins verði klætt bárujárni.
Flutningi og öllum utanhússfrá-
gangi skal lokið fyrir 1. okt. 1999.
Núverandi húseigandi, sem er
Reykjanesbær mun fjarlægja sökkul
og ganga frá lóð að SuðurgötulO á
sinn kostnað. Húsið verður til sýnis
fyrir bjóðendur eftir samkomulagi.
Allar nánari upplýsingar gefur
Sveinn Númi Vilhjálmsson
ísíma 421 6700.
Tilboð miðuð við staðgreiðslu,
skilist til bæjarstjóra að
Tjarnargötu 12, fyrir kl. 11.
þriðjudaginn 13. júlí nk. og verða
þau þá opnuð að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
Bæjarstóri.
Atvinna
Starfsmaður óskast til að sjá um
viðhald og keyrslu á meiraprófsbíl.
Upplýsingar i símum
423 7375 eða 898 9237.
Sjávargullið ehf, Sandgerði
Víkurfréttir
11