Víkurfréttir - 22.07.1999, Side 6
Ágústa H. Gísladóttir skrifar:
UmferOaröryggis-
fulltrúa svarað
Kæri Jón!
Þakka þér tilskrif þín en verð
þó að segja þér að ekki varð
ég ánægð með það sem ég vil
kalla fullyrðingar þínar, því
ekki rökstyður þú né tiltekur
stað ,tíma né kennileiti bíls
eða bíla né ökumanna sem
ásakanir þínar beinast að. Eft-
ir ítarlega könnun sem fram
fór hér á vinnustaðnum eftir
| að þetta var birt í blöðunum,
því bréf þitt var póstsent 6.
júlí og barst mér því ekki fyrr
en eftir að ég las blöðin, vil ég
taka fram og leiðrétta þessi
atriði sem um var íjallað.
Unt bílbeltanotkun öku-
ntanna og farþega.
Einn af vinnubílunum svo-
kölluðu er árgerð 1986 og eru
j því engin bílbelti fyrir aðra en
bflstjórann og farþegans við
hlið hans.
Einnig vil ég benda þér á
REGLUR unt undanþágu frá
notkun öryggisbeltis.í þar
stendur í 2. gr. „Ennfremur er
ekki skylt að nota öryggisbelti
a. Við akstur í atvinnuskyni
þar sem hraði er jafnan lítill
og hlutaðeigandi þarf að fara
j úr og í bifreiðina með stuttu
millibili."
Þar sem þú hefur reynslu sem
flokkstjóri í bæjarvinnu þá
|tekkir þú vinnulagið og veist
j þar með að þessi regla á hér
við en þegar um lengri vega-
lengdir er um að ræða þá á
hún ekki lengur við. Ekki
mæli ég því bót að aka beltis-
laus og legg það ekki í vana
minn hvorki í vinnu né utan,
enda kveða vinnureglur hér á
um að farið sé að landslögum.
Unt of marga farþega
í bílununt.
Vinnureglumar kveða einnig
á unt að ekki séu fleiri farþeg-
ar f bflunum en tryggðir eru
og eru flokkstjórar sér vel
meðvitaðir um ábyrgð sína og
skyldur varðandi þessi mál. Ef
þessar reglur hafa verið brom-
ar, þar hef ég aðeins þín orð
þar sem þú gafst þig aldrei
fram og taldir farþegana út úr
bílunum, vil ég meina að
menn séu saklausir uns sekt er
sönnuð og það hefur þú ekki
gert.
Um vonir þínar um að við
getum átt samvinnu vil ég
ekki ýta undir ef það eru
svona vinnubrögð sem þú
kallar samvinnu, því þetta
kalla ég einstefnu. Með von
um betri og vandaðri sam-
skipti í framtíðinni kveð ég
þig Jón Gröndal.
Bestu kveðjur
fyrír liönd Unglingavinnu
Grindavíkurbœjar
Agústa H. Gísladóttir verk-
stjóri Ahaldahúss.
I------------------------------------------------
Anita ákvað að reyna Ecstasy... klukku
stundum síðar var hún látin.
-1
Ecstasy deyðír
breskan ungling
Þriðjudaginn 18. maí sl. birt-
ist grein í breska dagblaðinu
The Express um dauða 17
ára gamallar stúlku sem
rekja mátti til Ecstacyneyslu.
Unglingurinn, Anita Gair
lést í kjölfar fyrstu reynslu
sinnar af fíkniefninu Ecstasy.
Anita féll í öngvit úti á dans-
gólfi í næturklúbbi og lést á
sjúkrahúsi þrátt fyrir mark-
vissar aðgerðir heilbrigðis-
þjónustunnar til að bjarga
henni. Ekkert benti til þess
að hún liefði notað fíkniefni
áður, enda var hún bindindis-
manneskja. Anita var líkam-
lega hraust og kenndi sér
einskis meins. Lögreglufull-
trúinn Bani Hill staðfesti að
Anita hefði ekki verið við-
riðin fíkniefnanotkun áður.
„Mér líður hræðilega þegar
ég hugsa til foreldra Anitu“,
sagði Janet Betts, móðir
Keflavíkurkirkja
Sunnudagur Guðsþjónusta
kl. 20. Farið verður í úti-
garðinn milli safnaðarheim-
ilis og kirkju ef veður leyfir.
Molasopi í kirkjulundi að
athöfn lokinni. Eigum notar-
lega stund saman.
Starfsfólk Keflavíkurkirkju
Leah Betts, sem lést af
Ecstasyneyslu á sama hátt á
18 ára afmælisdegi sínum
fyrir tjórum árum. Harmur-
inn er mikill fyrir þá for-
eldra sem fyrir þessari
reynslu verða.
„Munum að þeir sem fram-
leiða Ecstasy töflur, eru að
framkvæma ólöglegan
verknað og hafa því ekki
gæðastimpil á þeirri fram-
leiðslu frá heilbrigðisyfir-
völdum. Ýmsum óþverra
kann að vera blandað í virka
efnið í töflunni til að auka
þyngd hennar og ummál.
Fyrir nokkru varl9 ára gam-
all, breskur sölumaður á
Ecstasy töflum, dæmdur til
fjögurra ára fangelsisvistar í
Bretlandi. Hann var m.a.
dæmdur að eiga sök að
dauða þriggja ungmenna
hverjir höfðu keypt af hon-
um töflur. ÞVÍ MÁ LÍKJA
ECSTASY VIÐ RÚSS-
NESKA RÚLLETTU MEÐ
LÍFIÐ AÐ VEÐI.“
Reykjaneshœ, íjúlí 1999
Elías Kristjúnsson
Reykjaneshœ.
J
Eigendur bíla með dráttarkúlu og tengitækja:
Þekkið skyldun ykkar í umferðinni
Sektir frá 4000 til 10.000 krónur
Nú þegar fjölmargir eru á ferð
um landið með tjaldvagna,
fellihýsi og hjólhýsi er við
hæfi að rifja upp það sem þarf
að vera í lagi á bílnum og í
eftirvögnunum. Lögreglan
mun á næstunni herða eftirlit
með þessum hlutum. Það er
óþarli að bæta sektum ofan á
ferðakostnaðinn.
Dráttarkúlur þarf að skrá.
Tengibúnaður bflsins þarf að
vera samþykktur af bifreiða-
skoðun til að teljast löglegur.
Þá er hann skráður í skráning-
arvottorð og líka tilgreint
hvað þú mátt draga þungan
eftirvagn nteð eða án hemla.
Ef þú hefur keypt bíl með
dráttarkúlu getur þú séð hvort
hann er samþykktur eða ekki í
skráningarvottorðinu. Sé hann
það ekki verður þú að fara á
skoðunarstöð og láta skoða
hann. Það kostar 1500 kr. Sé
búnaðurinn ekki skráður getur
tryggingafélagið átt endur-
kröfurétt á þig ef eitthvað
kentur fyrir.
Eftirvagnar léttari
en 750 kg
Megin reglan er sú að bíll þarf
að vera helmingi þyngri en
eftirvagninn sem hann dregur
því ekki er krafist hemla á svo
léttum eftirvögnum. Þetta á
við um bfla alít að 3500 kg.
Léttari eftirvagnar en 750 kg.
em ekki skráningarskyldir en
þutfa að vera með lögboðinn
ljósabúnað, stöðuljós, hemla-
ljós, stefnuljós og númerisljós
ef við á. Bretti á að vera yfir
dekkjunt. Bílnúmerið á að
vera aftan á eftirvagningum ef
hlassið skyggir á skráninga-
númer bflsins.
Eftirvagnar þvngri
en 750 kg.
Eftirvagnar ( tjaldvagnar,
fellihýsi og hjólhýsi) sem em
þyngri en 750 kg. eiga að vera
skráðir og hafa skráninga-
núnter. Þá á að skoða eftir
sömu reglu og bíla þ.e.a.s.
fyrst 3 ár eftir l skráningu síð-
an eftir 2 ár og árlega eftir
það. Þeir þurfa að hafa hemla.
Ekki er þörf á neyðarhemli ef
eftirvagninn er undir 1500 kg.
Skilyrðislaust ber þó að hafa
öryggiskeðju.
Auka speglar nauðsynlegir
Skylt er að hafa framlengingu
á speglum ef fellihýsið eða
hjólhýsið byrgir útsýn aftur
fyrir. Svo mun vera raunin á
fólksbflum og sumum minni
jeppum. Sektir fyrir að hafa
ekki spegla ef þú sér ekki í
baksýnisspeglum eru skv. 73
gr. umferðarlaga 4000 kr.
Speglasett kosta til dæmis
rúmar 3.500 kr. í Bílanaust
svo dæmi sé tekið. Lögreglan
mun á næstunni herða eftirlit
með þessum atriðum. Sektir
og afskipti lögreglu eru ekki
skemmtileg sérstaklega ekki f
upphafi sumarferðar nteð fjöl-
skyldunni.
Verum lögleg ! Tökunt ekki
áhættu! Ekkert liggur á!
Munið að það er 80 km. há-
markshraði á þjóðvegum með
fellihýsi, hjólhýsi og tjald-
vagna
Jón Gröndal
uniferðaröryggisfulltrúi
6
Víkurfréttir