Víkurfréttir - 19.08.1999, Page 19
*
■;" -y&iÍiPJAri&zWk
Þórarinn „bjargvættur“
Kristjánsson átti góðan
þátt í jötnunarmarki
Keflavíkur í leiknum gegn
Leiftri um síðustu helgi.
VF-mynd:
Stebbi í Reis:
Go-Cart braut
Njarðvíkingurinn Stefán Guð-
mundsson, Stebbi f Reis ehf., læt-
ur sér ekki margt fyrir brjósti
brenna og er staðráðinn í að bygg-
ja glæsilega Co-Cart braut og læt-
ur sig jafnframt dreyma um fjöl-
skyldugarð og tívolí á sama stað,
A fundi Skipulags- og byggingar-
nefndar Reykjanesbæjar þann 29.
júlí sl. var umsókn hans um lóð
sunnan Aðalgötu og ofan Iðavalla
hafnað en samþykkt að skoða
önnur svæði undir starfssemina.
,£g er búinn að ganga með þetta í
maganum í rúmlega 2 ár og tel
mig hafa reiknað dæmið til enda.
Við erum að tala uni 10-15 þús-
und fermetra lóð og u.þ.b. 300
400 metra braut.
fermetra húsnæði og geri ég ráð
fyrir að uppsetningarkostnaður
verði á milli 20-30 milljónir. Ná-
lægð við Reykjanesbrautina er
nauðsynleg svo auðvelt verði fyrir
höfuðborgarbúa að rata á svæðið.
Pá er einnig nauðsynlegt að vera
eins nálægt íbúðarbyggðinni og
hávaðamengunarákvæði gera
mögulegt þannig að fólk geti jafn-
vel komið fótgangandi á staðinn.
Svæðið sem ég óskaði eftir er
óræktað en skammt frá tveimur
knattspymuvöllum Keflvíkinga.
Þarna tel ég bæjarstjórn gefast
kjörið tækifæri til að fegra svæðið
auk þess sem bænum myndu ber-
ast umtalsverðar tekjur vegna
framkvæmdanna og rekstursins.
Engin rök fylgdu höfnun Skipu-
lags- og bygginganráðs og bíð ég
þess að fá nánari skýringar á mál-
inu“ sagði Stefán hress í bragði að
vanda.
Ami Stefánsson, formaður Skipu-
lags- og byggingamefndar, sagði
samning bæjarfélagsins við Utan-
ríkisráðuneyti valda því að
óheimilt væri aðúthluta lóðum
þarna undir starfsemi þar sem
fjöldi fólks safnaðist saman.
Astæða þess væri nálægðin við
flugvöllinn. Vtð emm þó alls ekki
mótfallnir hugmyndinn sem slíkri
og tilbúnir til að skoða aðra stað-
setningu með Stefáni.”
i Vífiismenn þunfa að
i snúa bökum saman
I Garðbúar sóttu ekki stig í Arbæ-
I inn síðasta fostudag, töpuðu 2-0
I gegn toppliðinu, og annar tap-
I leikur liðsins í röð staðreynd.
I Víðisntenn, sem sátu á toppi
I deildarinnar í upphafi leiktíðar.
verða hreinlega að taka stig I
gegn FH í Garðinunt í kvöld I
ætli þeir að halda sig af fall- I
svæðinu. Leikurinn í kvöld hefst I
kl. 19. I
I
Koma betri til baka
í Grindavík hefur nokkuð borið á óánægju vegna fjölda útlendinga í
leikmannahópnum. Óánægðir grindvískir knattspymuáhugamenn mega
þó ekki gleyma að bestu leikmennimir hverju sinni skipa liðið og ungir
leikmenn sem sækja leikreynslu annað koma oftast betri til baka og þá
mögulega tilbúnir í slaginn í efstu deild.
Úrslitakeppnin
hefst á laugardag
Njarðvíkingar hefja þáttöku sína í
8 liða úrslitum gegn Þrótti Nes-
kaupsstað í Njarðvík en Reynis-
menn þurfa að fara á Egilstaði og
leika þar gegn sameiginlegu liði
Hattar og Hugins. Báðir leikimir
hefjast kl. 14. Njarðvíkingar hafa
oftar en ekki þurft að bíta í það
súra epli að verða slegnir út í 8
liða úrslitum eftir að hafa unnið
riðil sinn með glæsibrag og for-
vitnilegt að sjá hvort heimamenn
mæti til leiks og styðji sína menn
til dáða að þessu sinni.
FÓTBOLTI
•••••••••••••••••
Taplausir í
seinni umferð
■ Keflvíkingar hafa leikið í sein-
ni umferð Landssímadeildarinnar
eins og menn bjuggust við að þeir
gerðu í upphafi leiktíðar. Þeir era
taplausir með 8 stig eftir 4 leiki.
Þeir hafa þó þurft á brattann að
sækja í síðustu tveimur leikjum
en náð jafntefli eftir að hafa verið
tveimur mörkum undir.
Fádæma
klaufaskapur
í vörninni
■ Keflvíkingargerðu 2-2 jafntefli
við Leiftursmenn í leik sem ein-
kenndist af frábærri markvörslu
Jens Martins Knudsen, markvarð-
ar Leiftursmanna, og fádæma
klaufaskap Keflavíkurvamarinn-
ar. Kjartan Másson blés til sóknar
og beitti leikaðferðinni 3-4-3 með
bakvarðarígildin Snorra Má Jóns-
son og Hjört Fjeldsted í hlutverk-
um vængmanna. Leiftursmenn
mættu þessu með 4-5-1 uppstill-
ingu og höfðu Alexander Santos
einan frammi. Gegn gangi leiks-
ins skoraði Santos tvö fyrstu
mörk leiksins og er hælspymu-
stoðsending Gests Gylfasonar á
Santos jafnminnistæð og klobba-
mark hans í bikarúrslitaleiknum
1998, þó ekki fylgi henni jafn-
skemmtileg tilfinning. Mássoninn
setti Rút Snorrason inn fyrir
Hjört á 54. mínútu og skoraði
Zoran Lubicic á sömu mínútu
gott mark með skalla eftir auka-
spymu Snorra Más sem yftrgaf
völlinn á 61. mínútu fy rir Jóhann
Benediktsson sem gerði sér lítið
fyrir og jafnaði leikinn áður en
mínútan var liðin. Fast skot hans
átti viðkomu í hægra fæti Þórar-
ins Kristjánssonar og var markið
skráð á bjargvættinn. Bæði lið
fengu tækifæri til að tryggja sér
þrjú stig en markverðimir beggja
megin reyndust ofjarlar sóknar-
mannanna og því fór sem fór.
Fáar sóknir
gegn toppliði KR
■ Grindvíkingar töpuðu 2-1 gegn
KR í Frostaskjólinu og áttu löng-
um erfitt uppdráttar gegn toppliði
Landssímadeildarinnar. Vöm
Grindvíkinga var sterk en langt er
síðan Albert Sævarsson hefur lát-
ið klobba sig f úthlaupi en þannig
tókst Bjarka Gunnlaugssyni að
skora sigurmarkið að þessu sinni.
Átta lið berjast enn
um Evrópusæti
■ Neðstu lið Landssímadeildar-
innar eiga enn möguleika á Evr-
ópusæti þó vissulega séu mögu-
leikar IA mestir (17 stig eftir 13
leiki) og Víkinga minnstir (10
stig/13 leikir).
Grindvíkingar era komnir í botn-
baráttuna eftir ósigurinn gegn
toppliði KR á meðan Keflvflcing-
ar lúra í 6. sæti rétt fyrir ofan
botnliðin. I Grindavík er engin
ástæða til örvæntingar því þeir
era búnir með toppliðin í seinni
umferðinni og eiga eftir að fá
Vfldnga, Skagamenn og Vals-
menn í heimsókn til Grindavíkur
en útileikimir era gegn Keflavík
og Leiftri. Keflvíkingar enda aftur j
á móti á toppliðunum og eiga að
auki eftir heimsókn í Kópavog-
inn. Bæði lið verða þó að hafa
stig heim úr næstu umferð en þá
fá Grindvíkingar Vflcinga í heim-
sókn á meðan Keflvíkingar mæta j
Valsmönnum að Hlíðarenda.
Landsbankinn og
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur
Körfuboltaskóli
Þjálfarar: Sigurður Ingimundarsson,
Guðbrandur J. Stefánsson, Jón
Guðbrandsson. Gestajpjálfarar: Chianti
Roberts, Leikm. mfl. ka., Leikm. mfl. kv.
í íþróttahúsi Keflavíkur 23.- 27. ágúst
9 ára og yngri, fædd '90 og siðar verða
frákl. 10-11. Verðkr. 1000.-
10-12 ára fædd '87-'88 og '89 verða
frá kl. 11-13. Verð kr. 2000. -
13-15 ára fædd '84-'85 og '86 verða
frá kl. 13-15. Verð kr. 3000. -
Innritun fer fram á staðnum
Mætið tímanlega
KKDK
Víkurfréttir
19