Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 12.11.1999, Síða 9

Víkurfréttir - 12.11.1999, Síða 9
vann þar í mörg ár við eitt og annað. „Margir muna eflaust eftir mér sem litla, feita stráknum sem raðaði í pokana.” Hann tók sér hlé frá Hagkaup í nokkur ár en Hagkaup gat ekki án hans verið og hann fór aftur að vinna þar sem yfirmaður í kjötdeild. „Ég gerði eiginlega allt í Hagkaup, nema vera í fatadeildinni”, segir Kobbi. Hann segist hafa verið ánægður með að hafa alltaf haft vinnu með skólanu þó að það hafi stundum verið erfitt að horfa á eftir félögunum um hel- gar út á lífið þegar hann þurfti að vinna. „En ég átti náttúru- lega alltaf pening og þurfti aldrei að biðja mömmu og pabba um neitt. I dag verð ég líka að eiga peninga því ég er mjög ólaghentur maður svo ég þarf að eiga fyrir iðnaðarmön- num þegar eitthvað bilar”, bætir Kobbi við glettnislega. Honum fannst hann þurfa að breyta til þegar hann var 21 árs og fór að vinna í versluninni Plútó í Reykjavík. „Það var gaman að kynnast því starfi. Ég kunni ekkert inná þetta þegar ég byrjaði, en það var ákveðin áskorun að prófa eitthvað nýtt.” Algjör hugmynda- banki sem framkvæmir hlutina „Mig hefur alltaf langað til að gera eitthvað sjálfur og hef í gegnum árin verið að hripa ýmislegt niður, hvað mér finnst vanta og hvað ekki. Hug- myndabankinn er á við síma- skrá”, svarar Kobbi. Þegar hann er spurður af því hvers vegna hann fór út í að opna herrafataverslun í Keflavík þá segist honum hafa fundist óþarfi að fólk væri að renna í bæinn eftir hlutum sem það gat keypt hér. „Ég hafði aldrei unnið í herrafataverslun þegar ég byijaði og þurfti því að vera æfa mig í að brjóta saman nójt- ina áður en búðin opnaði. Ég varð meira að segja of seinn í opnunina.” Á góða að Það hlýtur að vera fremur óvenjulegt að svo ungir menn mæti til bankastjóra með stofn- un fyrirtækis í huga. Tók fólk mark á drengnum þegar hann mætti á staðinn til að biðja um fjármagn? „Já, þetta gekk nú bara sæmilega. Ég átti sjálfur einhvem pening og hafði líka gott fólk á bakvið mig, það hjálpaði mikið til. Ég fór bara með hugmyndina og talaði við menn og þeir trúðu því og treystu hvað ég var að gera. Það er mikið af góðu fólki sem verslar við mig svo ég get sagt að þetta hafi allt saman gengið vonum framar. Við stækkuðum t.d. búðina um helming núna í mars og fluttum í Stapa- fellshúsið. Þetta húsnæði er mikið stærra og skemmtilegra en hið gamla”, svarar Kobbi. Lærdómsríkt aö reka veitingastað Önnur rós í hnappagatið hjá Kobba er veitingahúsið Mamma Mía, sem hann rekur ásamt fjölskyldu sinni. Hvað kom til að hann fór út í veitingahúsrekstur? „Við feðgamir höfðum stund- um talað um að fara út í viðskipti saman. Að taka við þessu veitingahúsi kom eigin- lega óvart uppá og það var voðalega lítill tími til að hugsa sig um því það vom fleiri sem voru að pæla í að kaupa staðinn. Það var erfiðara að opna veitingastaðinn en búð- ina, því þó ég kynni ekki neitt í fataviðskiptum þá hafði ég unnið í búð og kunni ýmsar grundvallarreglur, að koma vel fram og annað slíkt. Þegar við opnuðum veitingastaðinn var rosalega mikið að gera og við vorum öll græningjar sem stóðurn hérna, hlupum hvert annað niður og vomm að deyja úr stressi. Ég vissi ekki hvort ég ætti að gráta eftir fyrsta kvöldið eða vera rosalega ánægður. Það var auðvitað gaman að fá svona fljúgandi start og mjög lærdómsríkt.” Nauósynlegt aö hafa gott skipulag á hlutunum Kobbi er með margt fólk í vinnu en hann trúir ekki að ein- hver einn eigi eingöngu að vinna við að skipa hinum fyrir. Hann vfiar því ekki fyrir sér að sjá um þrif, svara í síma og sendast sjálfur með matinn. „Við reynum við að hjálpa hvort öðm við að gera hlutina góða. Mikilvægast er að fólkið sé ánægt í vinnunni og vinni í sameiningu að vinna úr hlut- unum sem koma uppá”, sagði Kobbi og hefur greinilega mjög ákveðnar skoðanir á þessum málum. Draumurinn aö verða kerrutæknir Það má segja að Kobbi hafi unnið sig upp út á eigin verðleika. Hann segist vera mikill draumóramaður og einn draumurinn hafi verið að komast uppí kermmar, en það var á því tímabili þegar hann vann sem pokatæknir í Hag- kaup. „Konan mín er búin að vera alveg voðalega skiln- ingsrík, hlustað á alla mína draumóra og allt sem mér fylg- ir. Sumir draumamir hafa samt ræst”, segir Kobbi og að líkum lætur að fleiri eigi eftir að verða að vemleika. Hefur áhuga á íþróttum Kobbi segist ekki hafa haft mikinn frítíma að undanfömu því fyrirtækin taki allan hans tíma. „Við erum að breyta skipulaginu héma og það er í rauninni núna, í fyrsta skipta í eitt og hálft ár, sem ég stelpumar mínar. Þegar ég á ín þá vil ég helst vera heima með fjölskyldunni. Mér finnst líka voðalega gaman að horfa á íþróttir og ég vona að ég geti sinnt því áhugamáli meira núna og tekið fjölskylduna með.” Hiö alræmda frétta- blaö, Pokahornió Pokahornið þekkja flestir Innri Njarðvíkingar vel. Það kom út í rúmt ár og einn af blaðamönnum þess var enginn annar en Kobbi. „Við tókum okkur til nokkrir félagar úr Innri Njarðvík og stofnuðum blað, þá var ég átta ára. Ég held reyndar að meirihluti þeirra reki fyrirtæki í dag. Þetta var rosalega heitt blað að okkar mati, því það keyptu það allir. Við tókum viðtöl við stóra fólkið eins og Jón Pál og Sigga Sigurjóns, vegna þess að við ætluðum að græða helling á þessari blaðaútgáfu. Við fengum t.d. viðtal við Jón Pál þegar hann var að kynna heilsubótarefni í Hagkaup. Ég held að nánast allir hafi svo fengið leið á okkur því hug- myndaflug okkar var orðið heldur dræmt. Það endaði með því að við þurftum að gera eitt- hvað af okkur til að búa til fréttimar. Við gerðum allt vit- laust í bæjarfélaginu, gerðum at, gerðum rólókonurnar brjálaðar og svoleiðis. Við vomm alltaf fyrstir með frétt- imir því voru búnir að skipu- leggja þær fyrirfram”, segir Kobbi prakkaralega. Þetta hlýt- ur að hafa verið algjört ævin- týri fyrir átta ára gutta. ,Já, ég var mjög ánægður með starfið því maður átti myndir af sér með Jóni Páli og ég tala nú ekki um allar fegurðardrottn- ingamar sem ég hitti. Þrátt fyrir góða viðleitni fór fyrirtækið í gjaldþrotaskipti”, segir Kobbi og hlær. Ætluóu aö græða á útgáfunni Þeir Pokahomsmenn ætluðu að verða stórríkir á blaðinu. Það tókst nú kannksi ekki alveg en þeir áttu allavega alltaf nóg fyrir nammi og pappír. Góðir menn á bæjar- skrifstofunni í Njarðvflc hjálp- uðu þeim við að ljósrita, m.a. hann Baldur. Þeir félagar pren- tuðu blaðið heima, keyptum stafi í bókabúðinni til að gera fyrirsagnir. Bæðumir Villi og Éyvi voru í fullu starfi á blaðinu ásamt Kobba. Auk þeirra komu hinir og þessir að útgáfunni. Kobbi segir að þeir hafi reynt að skipta um nafn á blaðinu þegar fólk hætti að kaupa það af þeim, vegna óhefðbundinna aðferða sem þeir beittu við fréttaöflun. „Þetta var svona alvöru mafíurekstur”, segir Kobbi. Pokahornið var gefið út í stóru upplagi á „innri-njarð- vískan mælikvarða”. „Þau dugðu allavega til að labba í öll húsin í Innri Njarðvík. Sumt fólk var að kaupa af manni tvö til þrjú blöð, við vorum svo litlir og sætir þegar við vorum að þessu”, segir Kobbi, en langar hann aftur út í slíkt ævintýri? ,,Ég myndi eflaust slá í gegn í annað sinn, alltaf með heitar fréttir. Nei annars, ætli mér yrði bara ekki stungið inn ef ég færi aftur í að búa til frétt- ir, maður er náttúrulega komin á þann aldur.” Tekur Palli aö sér Pokahorniö? Kobbi er greinilega stoltur af ferli sínum sem blaðamaður og segir að þeir strákarnir hafi verið mjög seigir í sínu starfi og gefið út ein tuttugu tölublöð. „Það var meira að segja búið að titla einn sem framkvæmd- arstjóra. Ég var bara blaða- maður því ég var yngstur. Helst vildi ég að Pokahomið myndi byrja aftur, því þetta var nátt- úrulega stórglæsilegt blað. Það er spuming hvar við ættum að ljósrita núna þegar bæjarskrif- stofan í Njarðvíkunum er ekki lengur til. Kannski ég fái bara Palla til þess”, sagði Kobbi að lokum. Því er hér með komið á framfæri.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.