Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 12.11.1999, Síða 15

Víkurfréttir - 12.11.1999, Síða 15
 aldri og þau heimsækja hvert annað oft. Bömin okkar ganga í sem flest störf á bænunt. Vtð kennum þeim að bera virðingu fyrir eldhúsverkum jafnt sem fjósastörfum. Hér em öll störf jöfn hvort sem maður er stelpa eða strákur". Heimili þeirra hjóna er alls ekki eins og maður ímyndar sér með sveitabæi. Stór sólpallur er fyrir utan glæsilegt húsið með heitum potti. Það er allt nýmóðins og snyrtilegt. Næstum engin sveitalykt! Það berst einmitt í tal hvað nú- tímafólk er orðið afhuga sveitinni og lyktinni. Það er í raun leitt til þess að vita að sumt fólk vill t.d. alls ekki fara á hestbak því það lyktar svo illa á eftir. Fyrir náttúrubarn eins og Björgu þá er þetta tepruskapur og ekkert annað. „Sú ánægja sem dýrin og náttúran veita okkur er svo mikils virði. Sumir s vilja ekki eignast hund vegna óþrifnaðar. Hárin sem fylgja hundahaldi eru ekkert miðað við þá gleði sem hundurinn veitir heimilisfólkinu. Það er fólki nauðsynlegt að hverfa öðru hvoru til nátt- úmnnar og losa sig við stress n ú t í m a n s . Hlaða batteríin. Hvers vegna heldurðu að svona margt fólk sækir í sumarhús? Því fólk veit það innst inni, að maður og náttúra em sköpuð hvort fyrir annað. Við megum ekki aftengja okkur frá náttúrunni. Ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir því að það er ekki allt fengið með því að búa í þét- tbýli.” Samhent hjón Björg og Bjössi eru með sit- thvora hestaræktunina. Þó lána þau hvort öðru merar til undaneldis. Sprengihvellur, hesturinn hans Bjössa varð heimsmeistari í skeiði árið 1997 í Noregi. Björg á 1. verðlauna stóðhest, sem heitir Erpur Snær. Lífið í sveitinni einkennist af heilmiklu félagslífi sveitung- anna. Það er mikið sungið í Laugardalnum og öflugur kór er á svæðinu. Húsfreyjan er í tónlistamámi eins og dætumar. Hún er að læra á harmonikku. Bjössi segist ætla að gera út á hana og nikkuna á sveitaböll- unum! Björg segir að hver ein- staklingur skipti miklu máli í sveitinni. Hún komst ekki hjá því að taka til hendinni eftir að hún flutti hingað. Bjösst er einntg mjög virkur í félagsstörf- unum í sveitinni. Hann er í hreppsnefnd og situr í stjórn hesta- mannafélagsins. Hjónin vita nákvæm- lega hvað er að gerast t sveitmm. Þau vinna saman allan daginn og fara síðan á fund eða sækja félagsstörf einhver kvöld í viku. Þau eru í haustverkum núna. Það þarf t.d. að laga girðingar. Landið er um 600 hektarar, svo það er að nógu að hyggja. Þau segjast sjaldan fara í burtu. Það eru föst verk kvölds og morgna í fjósinu við að mjólka kýrnar. Þau eru y, metnaðarfullir bændur og sjá nú fram á rólegri tíð þar sem vinnan f í, undanfarin ár er að byrja að skila sér. AÐ OFAN: HLUTI FJÖLSKYLDUNNAR VAR HEIMA, BJÖRG 0G BJÖSSI 0G DÆTURNAR 0G UNNUSTI ELSTU DÓTTURINNAR. SONUR ÞEIRRA VAR EKKI HEIMA ÞEGAR MYNDIN VAR TEKIN. Njarðvík gat maður horfið inn í fjöl- dann og lát- ið lítið á sér bera. Héma var ég drif- in í Kven- félagið sveitinni, Ferðamála- nefnd og Ungmenna- félagið. í dag er ég formað- ur skemmti- nefndar Ung- mennafélagsins og sit þar einnig í stjórn. Ég hef þurft að halda ræður og stjórna þorrablóti, svo eitt- hvað sé nefnt. Hér ei það ekki fötin sem skapa manninn. Hér nýtur hver manneskja sín út frá eigin verðleikum.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.