Víkurfréttir - 12.11.1999, Blaðsíða 18
„Þeir bræður eru ótrúlegir. Félagsbíó-
dæmið sýnir það að fáir slá þeim við í
útsjónarsemi í viðskiptum hér á Suður-
nesjum“, sagði ónefndur maður í við-
skiptalífinu við helgarblaðið. Þeir
„bónbræður11, Sverrir og Eyjólfur Sverris-
synir hafa enn einu sinni komið á óvart en
þeir hafa gert samning við verslunar-
keðjuna Nóatún um leigu á helmingi
Félagsbíós til næstu tíu ára.
BONBRÆÐUR
L; GODUM MALUM!
Það kom ekki mörgum á óvart
þegar þeir bræður náðu samn-
ingum við Verkalýðs- og sjó-
mannafélag Keflavíkur um
kaup á Félagsbíói og stórri lóð
við húsið. Verkalýðsfélagið var
búið að reyna í nokkum tíma
að selja bíóhúsið án árangurs.
Félagið setti upp 30 milljónir
fyrir húsið og lóðina sem er
stór og á góðum stað, býður
m.a. upp á viðbyggingu við
bíóhúsið. Samkvæmt áreiðan-
legum heimildum blaðsins
fengu þeir bræður húsið og
lóðina fyrir rétt rúmar 20 millj-
ónir króna sem mönnum þótti
ekki stór upphæð fyrir svo stór-
an pakka. Það sem vafðist fyrir
mönnum var hvað hægt væri
að gera við húsið en þeir
Eyjólfur og Sverrir eru klókir
og sjá oft eins og skákmenn
marga leiki fram í tímann. En
áður en þeir gerðu neitt í sölu-
málum máluðu þeir húsið hátt
og lágt og snyrtu í kring. Það er
þeirra stíll. Ef þeir eru ekki að
bóna og þrífa bflana em þeir að
snyrta umhverfið.
Súpersamningur
Samningur þeirra við Nóatún
um leigu á helmingi bíóhússins
kom hins vegar mörgum á
óvart. Helgarblaðið hefur hins
vegar fyrir víst að þeir bræður
náðu súpersamningi við Nóa-
túnseigendur sem ætla sér hlut
á Suðumesjamarkaði. Það hef-
ur kvisast út að Nóatún greiði
75 milljónir króna fyrir tíu ára
leigusamning og það fyrir
helming af húsinu. Inn í þeim
samningi er klausa um að hann
sé ekki uppsegjanlegur fyrstu
fimm árin. Fyrir reiknings-
glögga er fljótt hægt að sjá að
hér er á ferðinni mjög góður
samningur fyrir keflvísku at-
hafnamennina. Þeir þurfa að
vísu að grófinnrétta bíóhúsið
en þeirra hugmynd er að efri
hæðin verði leigð út fyrir skrif-
stofur. Ef við gefum okkur það
að þeir fái svipaða leigu fyrir
hana er Nóatúns-talan búin að
tvöfaldast þ.e. u.þ.b. 15 til 20
milljónir á ári. Þeir keyptu hús-
ið á rúmar tuttugu og kunnugir
segja að breytingarnar muni
kosta nálægt 30 milljónum
króna eða samtals um 50 millj-
ónir kr. Ef þeir ná að leigja alla
efri hæðina út þá verða þeir
búnir að fá fyrir húsinu eftir
u.þ.b. 3 ár!! Auðvitað má ekki
gleyma viðhaldi, fasteigna-
gjöldum og fleira smotteríi sem
týnist til á kostnaðarblað
bræðranna en það dylst engum
að þetta er gullsamningur. Því
er til að bæta að verkalýðsfé-
lagið er búið að kaupa af þeim
bræðrum tvo sumarbústaði fyr-
ir litlar 15 milljónir króna.
Verðið á þeirn skagar hátt í
kaupverðið á bíóinu!!!
Búa flott
Velgengni þeirra hefur komið
fram ýmsum sviðum. Þeir hafa
ekki farið leynt með það að
þeir vilji búa flott en það hafa
ekki þótt tíðindi að þeir aki
flott.
Eyjólfur t.d. hefur átt tvö af fal-
legustu og stærstu húsum
Keflavíkur. Fyrir nokkrum
árum bjó hann við hlið Spari-
Félagsbíó í Keflavík þar sem
Nóatún mun opna fljótlega á nýju ári.