Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 12.11.1999, Qupperneq 19

Víkurfréttir - 12.11.1999, Qupperneq 19
sjóðsstjórans Páls Jónssonar en flutti síðan burt úr því húsi. Ör- fáum árum síðar var hann mættur á skrifstofuna hjá Páli sem þá var búinn að tilkynna að hann væri að hætta í Spari- sjóðnum, - með tilboð í húsið flotta. Páll tók því hér um bil án þess að hugsa sig um. Það eru hins vegar fáir sem muna eftir því að Eyfi átti líka eitt minnsta hús í Keflavík á hans fyrstu búskaparárum við Kirkjuveg í Keflavík. Sverrir hins vegar er talsvert yngri og var því aðeins seinni í að koma sér fyrir. I sumar vildi hann komast í gott hús en framboð af þeim var ekki mik- ið. Hann bankaði upp á hjá góðurn bæjarbúa og spurði hvort hann væri til í að selja honum húsið. Hann var til og Sverrir fékk húsið. Fyrir nokkrum árum átti Sverrir hins vegar um tíma hús sem þótti lengi eitt það glæsilegasta í Keflavík, en það er „kökuhús- ið“ í Baugholti eins og það var oft nefnt og byggt af Ragnari nokkrum bakara á hans gull- aldarámm í bakkelsinu. Útsjónarsamir Til styðja þá staðreynd hversu seigir og útsjónarsamir þeir bræður hafa verið má nefna nokkur dæmi sem hafa gengið vel hjá þeim á undanförnum árum. Þeir keyptu verslunar- húsið á Vatnsnesi þar sem nú eru Mamma Mia og Elegans og gerðu það upp fyrir um fimmtán árum síðan. Það var eiginlega fyrsta „sprikl" þeirra á fasteignamarkaðinum, sem talandi er um. Um tíma voru þeir rekstraraðilar Shell á Fitj- um í Njarðvík og ráku þá sam- hliða bón og þvottastöð rétt hjá gamla Fitjanesti. Veldi þeirra á bílamarkaðnum var mikið á þeim tíma og kom það mörg- um á óvart þegar þeir hættu á Fitjum en þar áttu þeir marga trygga viðskiptavini. Eftir ára- langt „bílabrask“ án þess að eiga bflasölu létu þeir verða af því að eignast eina og þá sömdu þeir við Keflavíkur- verktaka um leigu á gamla hús- næði Tollvörugeymslunnar og stofnuðu Bflasölu Keflavíkur. Eftir nokkurra ára rekstur hættu þeir með hana og skiptu við kaupendur að henni m.a. á iðn- aðarhúsnæði í Gróf sem þeir síðan seldu strax. A síðustu ámm hafa þeir keypt húsnæði við Brekkustíg, næst Hitaveitu Suðumesja og leigja það Bfla- sölu Reykjaness, Elvari vini þeirra og frænda til margra ára úr Grindavík. I lok síðasta árs héldu menn þó að þeir bræður væm að stíga feilspor. Þá keyp- tu þeir gamla Fiskiðjuhúsið. Ekíd vom liðnir margir mánuð- ir þangað til þeir vom búnir að gera það klárt undir leigu auk þess að hýsa bílaleigu þeirra bræðra, SS bílaleiguna. Þeir náðu mjög góðum samningum við nýtt fyrirtæki, Thermo plus, um langtímaleigu. Punkturinn yfir i-ið var síðan þegar þeir fengu umhverfisverðlaun fyrir framtakið. Dæmið með Félags- bíó í framhaldinu hefði því ekki átt að koma neinum á óvart þó þeir hafi verið búnir að lofa sér og sínum að fara að slappa af. Menn gera það ekki á meðan vel gengur! Hvað næst Þeir bræður geta ekki látið hér við sitja. Þeir eiga talsverðar upphæðir fjár sem þeir verða að nota til fjárfestinga. Og hvað veður næst? Einhver laumaði því að blaðamanni að þeir litu hýru auga á Óðinshús- ið svokalla þar sem vélsmiðjan Óðinn var til margra ára og Afengisverslunin, næst Aðal- stöðinni, efst á Hafnargötunni. Gott hús og stór lóð á besta stað. Spumingin er bara hverjir bíta á næstu beitu hjá þeim bræðmm? THE BLAIR WITCH PROJECT Þann 21. október 1994 héldu þrjú bandarísk ungmenni inn í Black Hills skóginn í Maryland, Bandaríkjunum. Ætlunin var að festa á filmu heimildir um 200 ára goðsögn, “The Blair Witch”, eða nornina frá Blair. Ekkert hefur spurst til þeirra síðan. Einu ári seinna fundust upptökur þeirra. Ein mest sótfta myndin í Bandaríkjunum síðustu vikur! NVJA EÍC KEFLAVÍK - SÍMI 421 1170 50 fyrstu sem mæta með úrklippu úr Helgarblaði Víkurfrétta fá ókeypis bíómiða á þessa kvikmynd í Nýja bíói. Miðinn gildir á sýningar í eina viku.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.