Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 12.11.1999, Page 21

Víkurfréttir - 12.11.1999, Page 21
Margrét og Sigurður með börnunum sínum. F.v. Albert Karl, Sylvía Rós og Sigríður. stration, sem er mastersnám í viðskiptum og stjómun. Flutti til Norður-Karólínu „Ég fór í skóla sem heitir Westem Carolina University, en í Karólínu eru margir góðir háskólar. Þetta var ekki mjög stór skóli, 6700 nemendur. Ég fór út þremur mánuðum á undan fjölskyldunni, því ég þurfti að finna hús, skóla fyrir drenginn, kaupa bíl og húsgögn og koma mér af stað í náminu. Þetta var eiginlega langerfiðasti tíminn og ég myndi aldrei skil- ja fjölskylduna svona lengi við nrig aftur. Það hafði samt l£ka sína kosti að gera þetta svona því ég gat undirbúið allt áður en þau komu.“ Margrét fann fljótlega hús í litlum og vinalegum bæ, Waynesville, sem var hálftímakstur frá skólanum. „Þetta var eins og að búa í Njarðvík. Maður var farinn að þekkja marga í bænum. Þetta var svona 10.000 manna bær og umhverfið var mjög fallegt", segir Margrét og á greinilega góðar minningar tfá þessum tíma. Gekk vel í náminu „Fyrsta árið var ég eingöngu í viðskiptafræði og það byggðist aðallega á fyrirlestrum, verkefnum, prófum o.þ.h. Þeg- ar ég fór í masterinn varð námið raunverulegra. Við fórum mikið í fyrirtæki að vinna að ýmsum verkefnum og þurftum svo að kynna þau fyrir bekknum. Einnig vorum við látin gera rannsóknir og setja upp fyrirtæki. Háskólinn sem hún var í var mjög tölvuvæddur og mikið lagt uppúr tölvunámi. Hún fór að vinna hjá tölvufyrirtæki í tengslum við verkefni sem hún var að vinna fyrir skólann. Þetta var fyrirtæki sem veitti ráðgjöf um verslun, viðskipti og námskeið í gegnum inter- netið. Eftir að verkefninu lauk fékk hún að vera áfram hjá fyrirtækinu til að öðlast meiri reynslu og um leið að undirbúa sig fyrir heimkomuna. „Mér gekk vel í náminu, fyrst og ffemst vegna þess að ég ein- beitti mér algerlega að því og eiginmaðurinn sá um heimil- ið“, segir Margrét og viðurken- nir að hún hafi varla gert hand- tak á heimilinu í þrjú ár. Akvörðunin Akvörðunin um að fara út í nám vafðist ekki fyrir Margréti. Hún segist vera þannig gerð að ef hún tekur eitthvað í sig þá er það bara þannig og ekkert öðruvísi. „Þetta var það sem mig langaði til að gera og það tók mig ekki fimm ár að taka ákvörðun. Mér fannst eiginlega fyndið hvað fólki í kringum fannst þetta mikið mál og hafði miklar áhyggjur af mér en þetta var sameiginleg ákvörðun okkar hjónanna. Ég var lfka svolítið hissa á hvað fólk var að draga úr manni. Svo var einn sem sagði við mig áður en ég fór: „Ertu ekkert hrædd við að falla?“ Ég hafði bara ekki hugsað út í það enda gengið vel í háskólanámi fram að þessu. Maður fer líka með því hugar- fari að standa sig. Það fólk sem er næst mér hefur liins vegar alltaf haft trú á mér og bakkaði mig uppi“. Margrét segir að hún hafi strax viljað fara í góða vinnu.„Þegar maður er orðinn 35 ára gamall þá hefur maður ekki mikinn tíma til að vinna sig upp. Ef maður hefur áhuga á að komast lengra þá er fljótle- gasta leiðin að mennta sig meira.“ Mörgum fannst ekki rétt að rífa börnin upp en Margrét er á öðru máli og segir að þau hafi bæði haft mjög gott af að búa erlendis. Þar lærðu þau bæði að tala góða ensku og hún segir að drengurinn hafi þroskast mikið af þessari reynslu. Rétt sem snöggvast hvarflar að blaðamanni, að viðbrögð fólks hefðu e.t.v. verið önnur, hefði það verið heimilisfaðirinn sem hefði ætlað í nám. Margrét jánkar og segir að það gæti verið eitthvað til í því. „Börnin höfðu föðurinn sem var heimavinn- andi og með þeim allan daginn. Hvað var svona slæmt við að ég færi í nám“, spyr hún. Auðvelt að fá vinnu Fjölskyldan flutti til Islands vorið 1999 og Margrét fór strax að leita að vinnu. Hún þurfti samt ekki að leita lengi því eftirspurnin eftir manneskju með hennar menntun, var mikil.„Mér var boðin staða hjá Deloitte & Touche, sem framkvæmdarstjóri rek- strarsviðs. Starfið felur í sér að hafa umsjón með daglegum rekstri s.s. starfsmannamálum, markaðsmálum.tölvumálum, menntun og fjármálum. Þetta er endurskoðunar- og ráðg- jafafyrirtæki sem er staðsett í Reykjavík og hefur útibú á tíu stöðum á landinu, m.a. gífurlega öflugt útibú í Keflavík þar sem Guðmundur Kjartansson ræður ríkjum. Þannig að það er nóg að gera“, segir Margrét og bætir við að henni finnist mjög gaman að vera í svona fjölbreyttu og kref- jandi starfi. Amerísk þjóðarsál Amerískt sjónvarpsefni og önnur menningaráhrif, tröllríða nú heimsbyggðinni og fólk hefur misjafnar skoðanir á Bandaríkjamönnum, en hvem- ig komu þeir Margréti fyrir sjónir? „Ég kunni mjög vel við Bandaríkjamenn. í Banda- ríkjunum eru 51 íylki og þetta eru mjög ólík svæði. Flórída- fólk og Karóljnu-fólk er t.d. jafn ólíkt og Islendingar og Frakkar. Fólkið þar sem við vorum var t.d. alveg sérlega indælt, og tók okkur vel. Við mættum alveg taka þau til fyrirmyndar hvemig tekið er á móti útlendingum. Drengurinn talaði t.d. enga ensku og hann fékk strax 100% kennslu í málinu og náði því mjög fljótt. Það fór afskaplega í taugamar á mér, þegar t.d. Frakkamir, sem voru í skólanum með mér, töluðu um hvað Bandaríkja- nienn væru heimskir, en síðan vom þeir nógu góðir að fara til Bandaríkjanna og ná sér í men- ntun.“ Áhersla á fjölskylduna Daglegt líf í Karólínu var ólíkt því sem gengur og gerist á Islandi. Margrét segir að áher- slan á fjölskylduna sé miklu meiri þar en hér heima. „Þegar að okkur var boðið í heimsókn var bömunum alltaf boðið með og hvert sem við fórum var alltaf gert ráð fyrir bömunum. Almennt fannst mér bömin líka mikið kurteisari heldur en íslensk böm. Við fórum t.d. á sýningu í skólanum þar sem 7- 11 ára krakkar stóðu uppá sviði í þrjá tíma. Þama stóðu þau og sátu stillt og prúð allan tíma. Það fór enginn að hlægja þó einhver væri að syngja eða söng falskt." Kirkjan miðpunkturinn Kirkjan var miðpunktur sam- félagsins í Waynsville og félagslífið innan kirkjunnar var mjög mikið. Dóttirin var í leik- skóla sem kirkjan rekur. Einnig tók hún þátt í söngleik sem kirkjan setti upp. Margrét og fjölskylda hennar vom þátttak- endur í Meþódistakirkjunni og kynntust þar mörgu góðu fólki sem þau halda góðu sambandi við. „Þar sem við bjuggum voru margar kirkjur. Kirkjan sem við sóttum var með tvær athafnir á hverjum sunnudegi og fullt út úr dyrum í báðar athafnirnar. Þá var á sun- nudögum sunnudagaskóli jafnt fyrir fullorðna og böm og var þetta einnig mikið sótt. Ræturnar eru á íslandi Margréti fannst erfiðast að vera án vina sinna og fjölskyldu þegar hún flutti til Bandaríkjanna, þó fólk hafi verið duglegt við að koma í heimsókn. „Þó maður eignist nýja vini þá er það allt öðmvísi, rætumar eru alltaf hér, og mér finnst mjög gott að vera komin heim.“ Þrátt fyrir að Margrét sé ánægð með að vera kominn heim þá leggur hún ríka áherslu á að hún sakni samt vinanna, veðurfarsins og umhverfisins í Karólínu. Nýtir tímann vel með fjölskyldunni Það hlýtur að íylgja því töluvert álag að vera í krefjandi starfi, keyra til Reykjavíkur á hver- jum degi og eiga tvö ung böm. Hvemig fer Margrét eiginlega að því að samræma starfið og fjölskyldulífið? „Ég fer snem- ma í vinnuna og kem heim á milli klukkan 6 og 7 á kvöldin. Þegar ég kem heim er vinnan alveg búin, ég þarf ekki að fara yfir neina stíla eða neitt slíkt“, segir Margrét og hlær og er hugsað til kennarastarfsins. „Ég er með konu heima sem gefur bömunum að borða og hugsar um þau á meðan ég er í burtu. Þegar ég kem heim á kvöldin get ég alveg einbeitt mér að börnunum. Sá tími sem ég á með þeim er því vel nýttur. Mér finnst ekki skipta aðalmáli hversu miklum tíma maður eyðir með börnunum sínum, heldur hvernig maður nýtir tímann. Helgarnar eru líka alveg heilagar hjá fjölskyldunni og þá gerum við eitthvað skemmtilegt saman“, segir hún og brosir. Horfið jákvæðum augum á lífið Lífið virðist brosa við Margréti í augnablikinu en hvemig lítur framtíðin út í hennar augum? „Ég ætla ekki í doktorsnám", svarar hún að bragði og leggur áherslu á orð sín. „Masterinn nægir mér alveg. Ég geri mér þó grein fyrir því að ég þarf alltaf að vera að bæta við mig svo ég staðni ekki.” Fyrst og fremst stefni ég á að gera betur í því sem ég er að gera og vera ánægð hverju sinni. Þá lítur maður mun bjartari augum á allt og alla í kringum sig.“

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.