Víkurfréttir - 12.11.1999, Síða 24
HELGARBLAÐ VF
listir
OG MENNING
VINNUR VERK
FYRIR KÍNVERfA
Halla var nýkomin úr þreki í
Perlunni þegar blaðamann bar
að garði. Hún segist fara á
hverjum morgni, fimm daga
vikunnar, í líkamsrækt til að
halda sér í formi. Hún segir það
vera sér nauðsynlegt, því ann-
ars gæti hún ekki unnið svona
mikið. „Þegar ég kem heim úr
ræktinni, um tíu-leytið á
morgnana, sinni ég heimilis-
verkunum og hringi nokkur
símtöl. Stundum get ég byrjað
að mála fyrir hádegi og mála
fram að kvöldmat", segir Halla
þegar hún er spurð að því
hvemig dæmigerður dagur í lífi
hennar sé.
Kemst ekki úr
drullugalianum
Halla er vinsæl listakona
og árið 1998 hélt hún þrjár
sýningar; á listahátíð í Ed-
inborg á Skotlandi, Eld-
borg í Svartsengi og á
Heilsugæslustöðinni í
Keflavík.
„Það fylgdi því mikið álag að
halda svona margar sýnining-
ar á einu ári og ég var búin að
ákveða að taka mér gott frí
þegar að síðustu sýningunni
lyki. Svo var hringt í mig frá
Akranesi og ég beðin um að
halda sýningu þar og ég sló til.
Mér
finnst stundum sem
ég hafi ekki komist uppúr bfl-
skúmum og úr drullugallanum
í mörg ár“, segir Halla en bros-
ir samt af öllu saman því hún
elskar það sem hún er að fást
við.
Breytt staða kvenna
Halla segist vera mikil fjöl-
skyldumanneskja. I gegnum
tíðina hafa margir undrað sig á
því hvemig henni takist að
samtvinna líf listamannsins og
húsmóðurhlutverkið, en Halla
á þrjá syni.
,,Eg hef aldrei getað unnið í
óhreinindum og ástæðan fyrir
því er kannski gamla góða
samviskubitið yfir að láta
heimilið ekki sitja á hakanum.
Þegar ég var ung kona, þá
þekkti ég engan sem málaði og
fólk vorkenndi oft Hjálmari og
strákunum vegna þess að ég
þurfti stundum að fara í burtu
til að vinna.
Ég hef því
alltaf lagt
mig fram við
að sinna
heimilinu
vel. I dag
þurfa kon-
ur ekki að
afsaka sig
íyrirað
vera
konur“,
segir
htatia aKveðin. Hún
segir að sumir hafi bent sér á
að fá sér stúlku til að sjá um
heimilið, svo að hún gæti ein-
beitt sér að listsköpun. Hún
segist aldrei getað
hugsað sér það, því
hún verði alltaf að
hafa fólk í kring-
um sig.
Mörg verkefní í
bígerð
En hvað er
Halla að fást
við þessa stund-
ina?
,JSÍú er ég að
gera hugmynd
að mósaíkverki
fyrir banka,
steinda kirkju-
glugga í kirkju
úti á landi og
stórt glerlista-
verk fyrir litla
kapellu,
ásamt smærri
verkefríum”, segir Halla. „Ég
var líka að fá mjög skemmti-
legar fréttir. Ég gerði einu sinni
risastórt glerverk, um 60 fer-
metra, fýrir PKL, sem er þýskt
pappírsfyrirtæki. Þetta fyrirtæki
er nú orðið alþjóðlegt og heitir
Siccombiblock. Fólk frá því
fyrirtæki sá teikningar eftir mig
hjá Dr. Oidtmann og pantaði
þær allar í gler. Ætlunin er að
gefa forstjómm ýmissa fyrir-
tækja í Kína þessi verk”, segir
Halla brosandi og býþur blaða-
manni meira kaffi. „Ég hef
alltaf nóg að gera og þá líður
mér lflca vel.”