Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 12.11.1999, Blaðsíða 27

Víkurfréttir - 12.11.1999, Blaðsíða 27
■ É iHÉÉ llM Vestmannaeyingurinn Páll Guðlaugs- son tók við þjálfun Keflavíkurliðsins á haustdögum eftir tvo ár í brúnni hjá Leiftursmönnum á Olafsfirði. Páll er 41 árs og á að baki rúmlega 20 ára þjálfaraferil, lengstum í Færeyjum. VF ákváðu að komast að því hvað Páll hyggðist fyrir í bítlabænum. Hvers vegna ákváðst þú að koma til Keflavíkur? „Mér fannst það ögrandi verkefni að koma Keflavík aftur í ffemstu röð. Eg hef alltaf borið mikla virðingu fyrir Keflavík sem knattspymufélagi, bæði sem leikmaður og síðar sem þjálfari. Á fyrra tímabili mínu sem þjálfara Leifturs fann ég hve sterkan heimavöll Keflvíkingar höfðu. Maður fann fyrir spennu og sigurvilja er maður kom á völlinn, bæði frá áhorfendum og leik- mönnum. Á síðasta sumri fann ég aðeins fyrir einhverju sem mætti lýsa sem lognmollu, hér var engin ógn. Ljónagryfjan sem ég þekkti svo vel var ekki til staðar. Þetta frekar en nokkuð annað var áhrifavaldurinn að komu minni hingað.“ Þú átt fangan þjálfaraferil að baki? ,Já, það má segja það. Þó ég sé fæddur í Reykjavík þá ólst ég upp í Eyjum og á þar mína heimahöfn. Þar hófst þjálf- araferillinn 1975 en þá þjálfaði ég m.a. Birki Kristinsson og Hlyn Stefánsson í 4. flokk. Síðan þá hef ég numið öll þau þjálfunarfræði sem danska knattspyr- nusambandið býður upp á, er með FA þjálfunarskírteini enska knatt- spyrnusambandsins, hef sótt þjál- faranámskeið til Kölnar á vegum KSÍ og heimsótt og fylgst með æfingum fjölda stórliða og má þar nefna Manchester United, PSV Eindoven, Bröndy, Glasgow Rangers, Everton og Ajax. Stór hluti ferilsins er í Færeyjum? „Það vill svo til að ég fór frá Eyjum í sumarfrí, eftir að ég lauk skóla. Mér bauðst á samning hjá skipasmið í Þórshöfn og ég skellti mér. Ég vann þar í 4 ár og samtals við skipasmíðar í 6 en er í dag ánægður með að vera kominn úr þeim bransanum. í Fær- eyjum þjálfaði ég í hartnær tuttugu ár, félagslið og landsliðið." Á Ólafsfirði hófst þú innflutning á Færeyingum og Brasilíumönnum í íslenskan fótbolta? „Leikmannahópurinn fyrir norðan var lítill og ég tók þá ákvörðun að leita í færeysku deildina eftir leikmönnum. Fyrir síðustu leiktíð fór ég síðan til Brasilíu og sótti þangað 3 góða leik- menn, unga stráka sem vom vaxandi allt sumarið. Brasilía er Mekka knattspyrnunnar en Færeyjar. Attir þú von á að leik- mennirnir þaðan myndu standa sig? „Islenski fótboltinn er fullur af sér- fræðingum sem lítið sem ekkert vit hafa á knattspymu. Ég vissi alltaf að þessir strákar myndu standa sig.“ Mega Keflvíkingar þá eiga von á því að sjá marga útlendinga á vellinum í sumar? „Hér em aðstæður allt aðrar en á Ólafs- firði. í stað 13-15 leikmanna hef ég úr u.þ.b 50 meistaraflokksleikmönnum að velja. Að áliti margra fróðra aðila um knattspymu þá lék Keflavík undir getu síðasta sumar. Mitt fyrsta verk er að koma þeim leikmönnum sem hér em í form, nokkuð sem talsvert vantaði upp á í fyrra. Það em mjög margir strákar í yngri flokkunum sem eru sterkir og þeir koma til með að fá tækifæri á næstu mánuðum. ég hef fulla trú á þeim. Þurfi að bæta við leikmönnum til að tryggja nægilega sterkan leikmanna- hóp mun ég líklegast nota sambönd mín í Brasilíu og leita þangað eftir leikmönnum. Aðalmálið þessa dagana er að ganga frá samningum við leik- mennina í núverandi leikmannahóp og ánægjulegt að heimamennimir Jakob Jónharðsson og Guðmundur Stein- arsson eru komnir aftur. Nýlega var gengið frá samningi við Bjarka markvörð og vonandi tekst okkur að semja við Garðar Newman í vikunni. Þá á ég aðeins eftir að heyra í Karli Finnbogasyni sem er samningsbundinn félaginu." Nú er mjög algengt að lið um alla Evrópu fái til sín unga og efnilega Brasilíumenn fyrir lítinn sem engan pening og selji þá síðan fyrir stórar upphæðir nokkrum árum síðar. Þetta hefur ekki hvarflað að þér? „Vissulega hef ég fylgst með því sem er að gerast í þessum málum. Menn ættu þó ekki að gera sér neina hugmyndir um hve þetta er ódýrt því þessu fylgir alltaf einhver kostnaður. En ef maður skoðar hvað aðrir eru að gera þá er þetta tilfellið á mörgum stöðum og við getum gert þetta eins og aðrir. Mín tengsl í Brasilíu hefur tekið mörg ár að þróa og á ég blaðamann- inum Denis Menezes mikið að þakka. 1996 spilaði lið mitt gegn finnsku félagsliði sem í voru 4 frábærir Brasilíumenn. I fyrra fór ég síðan til Brasilíu og fylgdu mér þrír Brasilíu- menn heim sem stóðu sig mjög vel með Leiftri.“ Áttu brassarnir ekki í talsverðum aðlögunarvanda, í litlu sjávarþorpi á norðuhjara veraldar? „Það eru brasilískir knattspymumenn um allan heim þannig að þeir hljóta að hafa rika aðlögunarhæfileika. Þeir em þekktir fyrir að tjá sig með fótunum, leggja sig alla fram og vera afar jákvæðir og góðir félagslega. Þeir kunnu ágætlega við sig á Ólafsfirði. Héma í Keflavík er aðstaðan allt önnur og betri en fyrir norðan og því hef ég enga trú á að Brasilíumenn ættu í vand- ræðum hér." Hverju þarf að breyta til að koma Keflavík í hóp efstu liða? „Fyrst og fremst þarf að virkja bæjar- búa. Ólafsfjörður er lítið bæjarfélag en þar stóðu allir að baki knattspyrnu- liðinu. Þetta fundu leikmenn og vilji þeirra til að standa sig efldist. Fótboltinn í Kefiavík hefur verið í öldudal undanfarið og kominn tími til að forsvarsmenn knattspyrnunnar, atvinnulífið og almenningur taki hönd- um saman og komi liðinu á réttan stað. Hér er öll aðstaða fyrir hendi, spark- vellir út um allt og fjölnotahús á lokastigi, auk þess sem nægur efniviður er fyrir hendi.“

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.