Víkurfréttir - 12.11.1999, Blaðsíða 29
hummel
Fjölmargir áhorfendur voru á handboltaleiknum m.a.
fyrrverandi handboltahetja frá Keflavík sem lék meö KA
um tíma, Einvaröur Jóhannsson. Honum til hliöar er kör-
fuboltaskyttan Guöjón Skúlason og móöir hans Grethe
Iversen. Hún er gömul handboltahetja og skoraöi fleiri
mörk á sínum ferli en Einvaröur
Handboltahátíð í Njarðvík þegar KA kom í heimsókn:
Á myndunum hér á síðunni
sjáum við Frey Sverrisson
bæöi sýna töfrabrögö meö
bolta í munni og meö bolta á
línu. Reyndar mark í hvorugt
skiptiö. Hafsteinn
Ingibergsson er þótt ótrúlegt
sé hin skemmtilegasta skytta
og skoraöi nokkur mörk.
en fengu á sig 51 mark!
Það er óhætt að segja að það hafi verið mikið fjör í
I jónagryfjunni í Njarðvík sl. laugardag. Það var ekki
körfubolti í gangi eins og oft er á fjölum hússins held-
ur handbolti af skemmtilegustu gerð. KA frá
Akureyri, eitt af stórliðuni landsins og fyrrum
íslandsmeistarar voru mættir til að taka á móti hug-
gulegri, þyngri en algjörlega óþreyttum Njarð-
víkingum. Því er skemmst frá að segja að Njarð-
víkingar komu norðanmönnum algerlcga í opna
skjöldu með fjörlegum og skcnuntilcgum leik. Okkar
menn náðu að halda í við KA-menn, þannig lagað,
þ.e.a.s. þeir skoruðu alla vega eitt á meðan gestirnir
skoruðu tvö. Það er alveg eðlilegt samkvæmt öllum
kokkabókum handboltafræðinnar. Freyr Sverrisson
reyndi að trufla KA-menn með töfrabrögðum í
leikhléi en án árangurs. Áður en yfir lauk höfðu
Njarðvíkingar skorað 27 mörk á móti 51 hjá KA.
Norðanmenn komust því áfram í bikarkeppninni.
Uppákoma okkar manna var hins vegar skcmmtileg í
haustrigningunni!