Víkurfréttir - 13.01.2000, Blaðsíða 4
■ Djúp lægð olli usla í Grindavík:
Milljónatjón varð í Grindavík á
mánudagsmorgun þegar lönd-
unarbryggja stórskemmdist í
miklum sjógangi. Að ofan sést
bryggjan og til hliðar eru það
gámar og kör um allt og bílar
umflotnir sjó. VF-myndir: hbb
Milljónatjón
Milljónatjón varð í Grinda- vík á mánudagsmorgun þegar löndunarbryggja stór- skemmdist í miklum sjó- gangi. Einnig urðu skemmd- ir á sjóvarnargarði við höfn- ina. Allar bryggjur vom á kafi og þung alda inni í höfnina. Fjöl- margir bílar á hafnarsvæðinu urðu umflotnir sjó. Þang og grjót voru upp um allar götur við höfnina og gámar og fiski- kör höfðu skolast til og vom í haug við björgunarstöðina. Bryggjan sem skemmdist var endurbyggð sl. sumar og þar hefur orðið um 16-20 milljóna tjón.
- , .v-i'. 4 •■■■ 'íA. ■: P,f .
: ~. i - . . t 1 # a- f |
Allar bryggjur voru á kafi á morgunflóðinu.
Völvan spáin góð-
æri á Suðuraesjum
í völvuspá Vikunnar fyrir
árið 2000 er spáð um að mik-
ill uppgangur muni verða á
Suðumesjum. Þar segir m.a.
að mikið blómaskeið sé nú á
Suðurnesjum og þangað
muni fólk flytjast. „Mér sýn-
ist Landhelgisgæslan vera að
flytja þangað. Suðumesin em
á uppleið og þar er mikil
ónýtt orka“, segir völvan.
Hún spáir því einnig að hús-
næðiskortur verði á Suður-
og Suðvesturlandi vegna
fólksflutninga þangað og því
verði áfram hátt verð á hús-
næði á þessum stöðum.
íþróttaáhugamenn munu
gleðjast ef völvan reynist
sannspá urn gengi knatt-
spymuliðs á Suðumesjum á
árinu. „Knattspyrnulið frá
Suðurnesjum mun skjótast
upp og ganga mjög vel á ár-
inu“, segir völvan. Hvað lið
ætli hún eigi við?
L
J
BOGENSE KYNNING 14.01. í APÓTEKI KEFLAVÍKU R
rennri
Minni matarlyst • Hraðari brennsla • Regla á meltingunni
Ef þú kaupir Bogense pilluna færðu 20% afslátt og ef þú kaupir Borgense
sápuna færðu 10% afslátt og viku skammt af Borgense pillunni. Tilboðið
gildir til 21. janúar eða meðan byrgðir endast.
Dreifing JHS
Fagmennska f fyrirrúmi
Apótek Keflavíkur
Slmi: 421 3200
MEIRI HOLLUSTA
MEIRA HEILBRICÐI