Víkurfréttir - 13.01.2000, Qupperneq 8
Fulltrúar ungu kynslóðarinnar, þau Viktoría Á. Halldórsdóttir frá Grindavík og Garðar Gíslason,
úr Njarðvík ræstu orkuverið. Hér eru þau að taka við viðurkenningarskjölum fyrir verkið trá
þeim Alberti Albertssyni aðstoðarforstjóra og Júlíusi Jónssyni forstjóra Hitaveitunnar.
Ingólfi Aðalsteinssyni, fyrsta starfsmanni Hitaveitu
Suðurnesja og forstjóra til margra ára voru afhent blóm,
sem og Ingibjörgu konu hans.
Þriggja milljarða
orkuver gangsett
Orkuver 5, var tekið í notkun
á 25 ára afmæli Hitaveitu
Suðurnesja, sem haldið var
hátíðlegt um síðustu helgi.
Um er að ræða 30 megavatta
raforkuvirkjun sem fram-
leiðir raforku með gufuafli.
Stöðvarhúsið er rúmlega
þrjú þúsund fermetrar að
flatarmáli og með tengibygg-
ingu er það um fjögur þús-
und fermetrar. Mannvirkið
ásamt tengilögnum og bún-
aði kostar þrjá milljarða
króna.
Framkvæmdirnar gengu vel,
Að ofan: Margt góðra gesta
var í afmælisfagnaðinum.
Til hliðar: Fjölmargir fengu
viðurkenningar frá stjórn
Hitaveitu Suðurnesja.
Margt góðra gesta í afmælisfagnaðinum.
þrátt fyrir nokkra seinkun, og
kostnaður reyndist nærri upp-
haflegri áætlun. Framkvæmd-
urn er ekki að fullu lokið en
orkuverið verður kynnt betur
þegar framkvæmdum lýkur á
vonnánuðum. Það voru fulltrú-
ar ungu kynslóðarinnar, þau
Viktoría A. Halldórsdóttir frá
Grindavík og Garðar Gíslason,
úr Njarðvík, sem ræstu orku-
verið við hátíðlega athöfn í
Eldborg, kynningarhúsi Hita-
veitu Suðumesja í Svartsengi
við Grindavík.
Tónlistarflutningur og ávörp,
ásamt heiðrunum voru áber-
andi í afmælisfagnaðinum og
voru afmælisbarninu færðar
margar kveðjur, enda hefur
Hitaveitan Iengi talsit til eins af
óskabörnum Suðurnesja, þó
fjórðungsaldargömul sé.
Fyrirtækið er vel rekið og
metið á átta milljarða króna en
það er í eigu sveitarfélaganna á
Suðumesjum og rikisins.
Karlakor Keflavikur söng
og Jóna Krlstín Þorvaldsdóttir
fluttl blessunarorð.
Myndir: Silja Dögg
25 ára afmæli Hitaveitu Suðurnesja haldið hátíðlegt um síðustu helgi: