Víkurfréttir - 13.01.2000, Síða 9
Ungt myndlistarfólk með
sýningu í Svarta pakkhúsinu
Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ hélt námskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-14
ára. Krakkarnir sýndu afrakstur vinnu sinnar í Svarta pakkhúsinu s.l. laugardag og sýningin
verður endurtekin n.k. laugardag kl. 14-18. Á myndinni eru krakkarnir ásamt leiðbeinanda
sínum, Önnu Maríu, og umkringd listaverkum sem voru hvert öðru glæsilegra.
Enginn skortur á hæfileikum á þeim bænum. VF-mynd: Silja Dögg Gunnarsdóttir
Langar þig í upphlut
eða sérsaumaða flík?
Hafðu samband.
Birna Huld, kjólameistari,
sími 863 3489 eftir kl. 74.
Kínverskt Yoga á Perlunni
Boðið verður upp á kínverskt yoga á
Perlunni í vetur. Matti Osvald er að
fara af stað með nýtt átta vikna
námskeið sem verður á mánudags- og
miðvikudagskvöldum og stendur frá
kl. 19:50 til 21:00 bæði kvöidin.
Matta ættu allir í Reykjanesbæ að þekkja
og hann sagðist í samtali við blaðið fullur
tilhlökkunar að koma aftur í heimabæinn
til að kenna yoga. „Eg hef kosið að kalla
þetta kínverskt yoga en ég hef kennt
samskonar námskeið í Kópavogi undan-
farin ár við miklar vinsældir. Þetta er
ekkert hopp og læti, heldur skemmtileg
blanda af kínverskum Tai chi æfing-
um,sem flestir ættu að kannast við , Chi
kung og liðkandi teygjum í róandi
andrúmslofti“.
- Fyrir liverja erþetta yoga?
„Kínverskt yoga hentar öllum aldur-
shópum og ég hef verið að fá tíl mín fólk
í tíma á aldrinum 18-70 ára. Þetta hentar
vel bæði stressuðu og eða mjög þreyttu
fólki sem vill stilla sig af. Þessar æftngar
styrkja einnig léleg bök og ýmsa aðra
líkamlega kvilla s.s. verki og vanlíðan.
og er almennt góð líkamleg og andleg
stilling.
Skráning er hafin á Perlunni.
NÝJAR FRÉTTIR ALLA DAGA
á fréttavef Víkurfrétta www.vf.is
afsláttur af verkfærmn
Gerdu góð kuup ú verkfæradögum. Húsasmiðjan selur I litaciii og Kress rafmagnsverkfæri
Skráðu þig 4;
/ vefklúbbinn
www.husa.is
HÚSASMIÐJAN
Sími 421 6500 • www.husa.is