Víkurfréttir - 13.01.2000, Síða 11
Starfsfólk umboös Happdrættis Háskóla íslands í Keflavík. VF-mynd: Silja Dögg
Happdrætti Háskóla íslands:
Sex milljonamæringar
á Suðurnesjum
Umboð fyrir Happdrætti
Háskóla Islands á Suður-
nesjum á sér nokkuð langa
sögu. Þeir bræður Snorri og
Tómas Tómassynir voru
með umboðið lengi vel í
versluninni Hagafell við
Hafnargötu 79. Jón Tómas-
son tók síðan við þegar
hann hætti sem stöðvar-
stjóri Pósts og síma. Næstur
í röðinni var Helgi Hólm
sem á seinni árum flutti sig
um set neðar á Hafnargöt-
una, í hús númer 31. Það
var svo um áramótin 1994
sem umboðið flutti sig yfír
götuna á Hafnargötu 36, og
er þar í góðum félagsskap
happdrættis SLBS og Sjóvá-
Almennra trygginga. Þar
sjá umboðsmennirnir, Geir
Reynisson og Eygló eigin-
kona hans, um að allt gangi
snurðulaust fyrir sig.
Starfsfólk með reynslu
Umboðið hefur verið afar
heppið með starfsfólk og
skipta persónuleg kynni þar
miklu máli. Sama starfsfólk
hefur séð um reksturinn mörg
s.l. ár og það hefur komið sér
vel að geta treyst á þekkingu
þess og reynslu. Eygló segir
að umboðið á Hafnargötunni
hafi lagt áherslu á góða þjón-
ustu í takt við nýja tíma, s.s.
innlegg á reikninga beint í
gegn um heimabanka, og svo
má nefna heimasíðu Happ-
drættisins þar sem allar upp-
lýsingar um vinninga ofl.er
að finna.
22 milljónir í vinninga
A síðasta ári greiddi umboðið
út rúmar 22 milljónir í vinn-
inga og þar af 6 milljón krónu
vinninga til viðskiptavina
sinna. „Ef fólk vitjar ekki
vinninga sinna innan þriggja
mánaða sendir umboðið út
bréf til að láta vita af vinn-
ingnum. Þetta á við um lægri
vinningana, en það er alltaf
reynt að hringja til allra sem
vinna stórar upphæðir. Drátt-
ardagur í HI er alltaf 10.
hvers mánaðar nema hann
beri upp á helgi, þá færist
dráttardagurinn fram á næsta
þriðjudag á eftir“, segir
Eygíó. Allir þeir sem eru
búnir að endumýja á réttum
tíma em með í seinni útdrætt-
inum sem er hálfum mánuði
síðar og kallast heiti pottur-
inn. „Það er alltaf sú hætta
fyrir hendi að fólk gleymi að
endumýja og sé þá ekki með
þegar dregið er. Til að forðast
þetta er mjög gott að láta
draga endurnýjunina af
greiðslukortum eða láta
greiðsluþjónustu bankanna
taka þetta í sínar hendur. Þá
þarf fólk ekkert að gera nema
taka við vinningunum þegar
þeir koma“, segir Eygló.
Mennt er máttur
Hver einfaldur miði kostar
800 kr. en trompmiði kostar
4000 kr. Hægt er að eiga 4
einfalda miða í hvetju númeri
auk trompsins og vera þá
með nífaldan miða og greiða
þá nífalt gjald, þ.e. 9x800 alls
7200 kr. „Vinningamir verða
þá nífaldir og geta verið ansi
myndarlegir í krónum talið.
Með miðakaupunum er verið
að styrkja Háskóla Islands og
það er mjög gott mál. Allar
húsbyggingar og endumýjan-
ir ásamt viðhaldi húsnæðis er
unnið íyrir þessa peninga. Ef
mennt var máttur á síðustu
öld þá er hún nauðsyn á jress-
ari sem er að byrja“, segir
Eygló að lokum.
Maður vikunnar
að jressu sinni er
Ragnar Sigurðs-
son fonnaður
Björgunarsveitar-
innar Suðumes.
Maður
Nafn: Ragnar Sigurðsson
Fæddur hvar og hvenær: 26. apríl 1972
Stjörnumerki: Naut
Atvinna: Rekstrarstjóri tölvu- og
Ijósritunarþjónustunnar Aðstoðar
Laun: Þau sleppa
Maki: Enginn
Börn: Engin
Bifreið: VWGolf‘99
Besti bfll: Golfinn
Versti bfll: Ford Escort ‘84
Uppáhaldsmatur: Kalkúnn
Versti matur: Kjötbúðingur
Besti drykkur: Kók
Skemmtilegast: Að keyra vélsleða
Lciðinlegast: Að taka til
Gæludýr: Engin
Skemmtilegast í vinnunni: Alltaf þegar rnikið er að gera
Leiðinlegast í vinnunni: Leita að tölvuvímsum
Hvað kanntu best að meta í fari fólks: Hreinskilni
En verst: Ohreinlæti
Draumastaðurinn: Þórsmörk
Uppáhalds líkamshluti á konuni: Nefið
Fallegasta konan: Það er ein flott
Spólan í tækinu: The Matrix
Bókin á náttborðinu: Útkall á jólanótt
Uppáhalds blað/tímarit: MAD
Besti stjórnmálumaðurinn: Kristján granni
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Fóstbræður
íþróttafélag: Njarðvík
Uppáhaldskemmtistaður: Ráin, þá sjaldan maður
lyftir sér upp
Þægilegustu fótin: Björgunarsveitargallinn
Framtíðaráform: Fá mér jeppa
Spakmæli: Ef maður sé eða ef maður sé ekki
(To be or not to be)
Nýjar fréttir alla virka daga á fréttavef Víkurfrétta
www.vfJ5