Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 27.04.2000, Page 4

Víkurfréttir - 27.04.2000, Page 4
REYKJANESBÆR TJARNARGÖTU 12 230 KEFLAVÍK J Vinnuskóli Reykjanesbæjar Vinnuskóli Reykjanesbæjar mun hefja starfsemi 31. maí n.k. Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá skólariturum grunnskólanua og einnig á skrifstofu Vinnuskólans í Kjama, Hafnargötu 5 7. Umsóknarfrestur er til og með 5. maí og skal skila umsóknum til Vinnuskólans í Kjama Hafnargötu 5 7. Unglingar sem em í 8. bekk fá vinnu í 6 vikur cn unglingar í 9. og 10. bekk fá vinnu allan daginn í 8 vikur. Aliar nánari upplýsingar m.a. um vinnutímabil, laun o.fl. fylgir með umsóknareyðublöðunum. Skólastjóri Vitinuskóla Reyltjanesbæjar GERÐAHREPPUR Stúlkur fjölmenntu á vinnustaöi víða um bæinn í síðustu viku í tengslum við verkefnið AUÐUR - í krafti kvenna. Þessar stúlkur heimsóttu íslandsbanka og gengu þar í störf gjaldkera og þjónustufulltrúa. VF-mynd: Silja Dögg Ibúðir til sölu Húsnæðisnefnd Gerðahrepps auglýsir til sölu íbúðir að Lindartúni 1, Silfurtúni 12, Silfurtúni 18cí Garði. Tilboð óskast. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Gerðahrepps, sími 422 7108. Húsnæðisnefnd Gerðahrepps. ■ ■ *■ - ■■ Stúlkurnar fluttu tillögu í uppafi bæjarstjórnarfundarins. Hér má sjá Sonju Kjartansdóttur lesa ípontu. Aðrar á myndinni eru f. v. Ellert og dóttir hans Guðbjörg Ósk, Thelma Theodórsdóttir, Anna María Sanders, Vala Rún Björnsdóttir og Skúli Þ. Skúlason. ■ Auður í krafti kvenna á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ: Ungmeyjarvilja láta drauma rætast! ■Birgitta Róbertsdóttir ritari bæjarstjóra vinsæl! Tólf ungar stúlkur tóku sæti bæjarfulltrúa, á fundi bæjar- stjórnar Reykjanesbæjar, og lögðu fram tillögu um að bæjaryfirvöld kanni mögu- leika á að námsefnið, „Lát- um drauminn rætast“, verði tekið til kcnnslu í grunnskól- um bæjarins. Stúlkur fjöl- menntu á vinnustaði víða um bæinn þriðjudaginn 18. apríl, í tengslum við verkefn- ið AUÐUR - í krafti kvenna. Námsefnið miðar að því að kynna börnum hvað þarf að vera fyrir hendi svo að fyrir- tæki vaxi og ýmis viðskipta- fræðileg hugtök, eins og kostn- aður, tekjur, vextir og fjár- mögnun. Það miðar einnig að því að nemendur þjálfist í hóp- vinnu og að vinna úr hug- myndum sínum og skynji mik- ilvægi nýsköpunar fyrir at- vinnulífið. Bæjarfulltrúar samþykktu til- löguna og Skúli Þ. Skúlason, oddviti bæjarstjórnar, óskaði stúlkunum alls hins besta í framtíðinni og þakkaði þeim fyrir heimsóknina. Síðan var gert fundarhlé og fundargest- um og fulltrúum boðið upp á pizzur og gos. Bæjarfulltrúar lýstu allir sem einn, ánægju sinni með þessa skemmtilegu heimsókn og Kristmundur Asmundsson (J) sagði að dóttur sinni hefði fundist þetta allt of stutt. „Þú getur þá bara farið í framboð og verið hér eins lengi og þú vilt“, svaraði Kristmundur þá að bragði. Ellert Eiríksson (D) bæjar- stjóri, upplýsti fundarmenn um að 35 stúlkur hefðu verið við störf á flestum stofhunum bæj- arins þann daginn. Hann sagð- ist hafa rætt við þær og spurt hvað þær langaði til að verða í framtíðinni. „Engin vildi verða leikskólakennari, en ein vildi verða leikskólakelling“, sagði Ellert og fundarmenn gátu ekki annað en brosað. Stúlkumar vom á aldrinum 3- 16 ára og þeim voru kynntar allar deildir Reykjanesbæjar, áhaldahúsið, tæknideildin o.s.frv. Að sögn Ellerts viður- kenndu þær yngstu „að þær föttuðu nú ekki allt sem sagt var og geispuðu jtegar skattur- inn var útskýrður fyrir þeim“, og lái þeim hver sem vill. „Skemmtilegast þótti þeim að vinna með sínum gestgjafa, fá að svara í síma og svoleiðis", sagði Ellert. Birgitta Róbertsdóttir, ritari bæjarstjóra, vakti mikla lukku og hefur nú heldur betur fjölg- að í aðdáendahópi hennar. Einni stúlkunni fannst lang- skemmtilegast að sjá Birgittu við störf. „Hún er svona tíu sinnum fljótari en ég að „pikka“ og gerir aldrei vitleys- ur!“. Opinn fundur aðildarfélaga Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ verður haldinn á Vífeinni, Hafnargötu 80, þriðjudaginn 2. maí kl.20:30. Fundarefni: Kosning fulltrúa á stofnfund Samfylkingarinnar 5. - 6. maí nk. Stjórnir aðildarfélaga Samfylkingarinnar í Reykjanesbce. Samfylkingin 4

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.