Víkurfréttir - 27.04.2000, Page 13
Fyrsta skóflustungan
tekin að „Vallarseli"
Framkvæmdir hófust í
fyrradag við gerð nýs leik-
skóla í Reykjanesbæ, en þau
Eirdís Inga Gunnarsdóttir og
Guðlaugur Ari Grétarsson
tóku fyrstu skóflustung-
urnar. Eirdís og Ari eru á
öðru aldursári og eiga bæði
umsókn um skólavist á
hinum nýja Ieikskóla.
Nú þegar em starfræktir 6 leik-
skólar í bænum með samtals
551 barni. Nýi leikskólinn
hefur rými fyrir 120-130 böm á
fjórum deildum og áætlað er að
um 20 starfsmenn muni verða
þar við störf. Þann 1. desember
má því reikna með að um 680
börn verði í leikskólum
bæjarins.
Arkitekt nýja leikskólans er
Kristinn Ragnarsson, en verk-
taki er Hjalti Guðmundsson og
synir. leikskólahúsið er 660 nf
að stærð, en stærð lóðarinnar er
4480 m2. Aætlaður kostnaður
við byggingu leikskólans er 92
milljónir króna.
Með tilkomu nýja leikskólans
munu biðlistar nær hverfa en
stefnt er að því að öll böm í
Reykjanesbæ, 2ja ára og eldri,
hafi leikskólapláss.
t
Elskuleg unnusta mín,
dóttir okkar, systir og frænka
Áslaug Óladóttir,
Skólavegi 2,
Keflavík
verður jarðsungin frá Ytri Njarðvíkurkirkju
29. apríl kl. 14.
Alexander Mavropulo,
Elín Guðjónsdóttir, Óli Þór Valgeirsson,
Ásta Óladóttir, Dorsett David Poul Dorsett,
Valgeir Ólason, Sólveig B. Borgarsdóttir,
Elín María Óladóttir, Örlygur Ö. Örlygsson,
og systkinabörn
V
N QQQ u N
k
KEFLAVIK
Afgreiðslustörf
í boði:
Vegna opnunar nýrrar Nóatúnsverslunar
í Keflavík, aðTúngötu 1 (Félagsbíó),
leitum við að starfsfólki til starfa við
almenna afgreiðslu, í kjötdeild og
ávaxta- og grænmetisdeild.
í boði eru störf fyrir fólk á öllum aldri,
bæði heilan og hálfan daginn.
Einnig aukastörf á kvöldin
og um helgar.
Frekari upplýsingar veitir starfsmannastjóri
Nóatúns, Teitur Lárusson í síma 585 7000.
Ennfremur verður starfsmannastjórinn ásamt
verslunarstjóra til frekara viðtals föstudaginn
14. maí í versluninni við Túngötu 1 (Félagsbíó)
millikl. 15.00- 18.00.
rtannnnnni
Túngötu 1 - Keflavík
Á
'Wtta krtfi i iiniji1j
iuh
eða í áskríft í síma
13