Víkurfréttir - 27.04.2000, Blaðsíða 15
■ Heilsutengd ferðaþjónusta á Suöurnesjum:
Hröð uppbygging en
víða vantar aðstöðu
Heilsutengd ferðaþjónusta
hefur verið á Suðurnesjum
frá 1983 þegar Hótel Bláa
Lónið var opnað með það að
markmiði að þjónusta psori-
asis sjúklinga og aðra þá er
leituðu sér lækninga við Bláa
lónið. Bláa lónið er nú orðið
heilsu- og afþreyingarþjón-
ustufyrirtæki með geysimikla
fjárfestingu á bak við sig.
Onnur stoðþjónusta hefur
einnig byggst upp á svæðinu
síðan.
Samstarf þjónustufyrirtækja
á svæðinu
Johan D. Jónsson, markaðs- og
ferðamálafulltrúi Reykjanes-
bæjar, segir að það skipti ferða-
þjónustu á Suðumesjum afar
miklu máli að taka þátt í þess-
ari uppbyggingu heilsuferða-
þjónustu. „Aherslutími heilsu-
tengdrar ferðaþjónustu ætti að
vera rétt utan háartna þannig að
full nýting náist á þjónustuþátt-
um. Með samstarfí gisti- veit-
inga- og heilsuræktarstaða, ætti
að skapast möguleiki fyrir
ferðaþjónustufyrirtæki, að
byggja sig upp í samræmi við
þá þróun sem verður við Bláa
lónið. Markaðs- og atvinnu-
málaskrifstofa Reykjanesbæjar
hefur undanfarin ár lagt áherslu
á að kynna ferðaþjónustu á
Suðumesjum og Bláa lónið í
einum pakka til styrktar og efl-
ingar hvom öðru. I stefnumót-
un þeirri, sem verið er að vinna
að, verður sérstaklega komið
inn á þann þátt. Framtíð ferða-
þjónustu á Suðumesjum verður
mikið undir því komin hvemig
til tekst með þau verkefni sem
nú eru í gangi“, segir Johan.
Hröð uppbygging
Önnur afþreying verður að
sjálfsögðu að vera til staðar
fyrir ferðamenn, að sögn Jo-
hans, eins og styttri gönguferð-
ir í námunda við hótel, veit-
ingastaðir með heilsurétti, gott
upplýsingastreymi og fleira.
, j>að er nokkuð hröð uppbygg-
ing afþreyingar á svæðinu eins
og í hvalaskoðunar- og sjó-
veiðiferðum. Búið er að opna
skagann fyrir útivistarfólki
með merkingu gönguleiða, þó
svo að þar sé enn ærið verkefni
fyrir höndum. Það vantar víða
aðstöðu við áfangastaði, tjald-
svæði, skála og salemi svo eitt-
hvað sé nefnt. Einnig þarf að
gera sér ljóst með hvaða hætti
og hvaða svæði verða ætluð til
útivistar fyrir kynslóðir fram-
tíðarinnar. Allt hefur þetta áhrif
á það hvemig þjónustan bygg-
ist upp og þróast og í hvemig
umhverfi", segir Johan og
leggur áherslu á að Reykjanes-
bær muni bjóða upp á heilsu-
tengda ferðaþjónustu og byggja
hana upp til framtíðar.
Uteeðarmenn
s i J
r* £
RutivistarroiK
Vantarykkur
áreiðanlega þjónustu? W
Abót
Sökkur
Krókar
Baujur
Belgir
Vinnuflotgallar
Sjófatnaöur
Vettlingar
Stígvel
Hnífar
Burstar
Ýmis hreinsiefni
ofl. ofl.
Saumum fortjöld á
allar geröir fellihýsa
Tjaldaviðgerðir
Yfirbreiðslur
Allar gerðir segla
Setjum kósa
á gardínur
Sérsaumum
Eigum margar
gerðir rennilása
Netaflögg
Línuflögg
Vimplar
Opið alla virka
daga frá 8:00 -18:00
Segjs
VEIÐARFÆRAGERÐ - VERSLUN - SEGLAGERÐ
Tjarnargötu 6 • Sandgerði • Sr'mi 422 7928 • Fax 421 7928
Atvinna
Sandgerðisbær auglýsir starf aðalbókara
á skrifstofu Sandgerðisbæjar.
Umsóknarfrestur er til 5. maí n.k. en ekki
15. maí eins og auglýst var í síðasta blaði.
Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri á
skrifstofu Sandgerðisbæjar alla
virka daga frá kl. 9-12
Bæjarstjóri Sandgerðisbæjar
Sigurður Valur Ásbjarnarson
5 SANDGERÐISBÆR
15