Víkurfréttir - 15.06.2000, Blaðsíða 11
Uínsælar loðir í Gpindavíh
Dregið var um byggingarlóðir í
Grindavík í síðustu viku. Tutt-
ugu og tveir einstaklingar sóttu
um átta einbýlishúsaslóðir, þar
af 9 um sömu lóðina, Skipastíg
3. Einnig vom margir umsækj-
endur um Skipastíg 5 og 7.
Byggingaverktakinn Grindin
fékk síðan 29 par- og raðhúsa-
lóðir, en þær eru ætlaðar Bú-
mönnum að stærstum hluta.
Viðar Már Aðalsteinsson,
byggingafulltrúi Grindavíkur-
bæjar, sagði að snemma hefði
verið ljóst að margir umsækj-
endur yrðu um umræddar lóðir.
Ákveðið var að draga um lóð-
irnar og halda sig við gatna-
gerðargjaldskrá, eins og verið
hefur, í stað þess að bjóða þær
út. „Það er nóg af lausum lóð-
um á þessu svæði og stefna
okkar hefur verið að laða að
nýja íbúa. Þess vegna hefur
ekki tíðkast að bjóða út lóðir
eins og gert hefur verið í
Reykjavík, en þar er ástandið
orðið skuggalegt", segir Viðar
Már.
Lóðaúthlutunin hefur tekið
langan tíma en bygginganefnd
ákvað að bíða með hana, þang-
að til búið væri að setja
ákveðnar úthlutunarreglur þar
sem eftirspurn var mikil.
„Verktakar fengu að sækja um
ákveðið svæði, þar sem reisa á
par- og raðhús en einstaklingar
fengu einbýlishúsalóðirnar".
segir Viðar Már og bætir við að
lóðirnar verði væntanlega
byggingarhæfar í júlí á þessu
ári. Enn er ekki ljóst hvenær
raðhúsin sem Grindin sér um
að byggja, verða tilbúin en fyr-
irtækið á nú í viðræðum við
Búmenn. Að sögn Viðars Márs
ætti niðurstaðan að vera komin
innan fárra daga.
í 17. júní í
i í Gapðinum i
! Þjóðhátíðardagurinn, 17. ,
I júní, verður haldinn hátíð- j
I legur við íþróttamiðstöðina |
I í Garði. Dagskráin hefst kl. I
I 14 með setningu og síðan I
| taka við hefðbundnir liðir [
j eins og fánahylling, ávarp
I fjallkonu og skemmtiatriði. .
I Víðfrægur þýskur brúðu- |
I leikstjóri sýnir listir sínar og |
1 hljómsveitin Sveitó leikur I
I undir söngvarakeppni. Þá *
j gefst „sturtusöngvurum'*
bæjarins loksins kostur á að
I slá í gegn. Kvennakór Suð- |
I umesja syngur nokkur lög |
I og hljómsveitin Skítamórall I
I mætir í Garðinn og rokkar I
J feitt.
J Nóg verður um að vera all-
I an daginn fyrir yngstu kyn- .
I slóðina. Boðið verður uppá |
I hestaferðir, bílalestin verður I
I á ferðinni, hoppkastali verð- I
[ ur á svæðinu, skátamir sjá •
um andlitsmálun og trúðar
. gleðja hátíðargesti. Boðið
I verður uppá kaffihlaðborð |
I að venju í samkomuhúsinu. |
I____________________I
■ Bæjarstjórn Reykjanesbæjar:
Hugumfepð yfip byggð
shal tali
Böðvar Jónsson (D), lagði til á
bæjarstjómarfundi Reykjanes-
bæjar í síðustu viku, að bæjar-
stjórn myndi skora á flug-
málayfirvöld og flugvallar-
stjóra að stýra flugumferð um
Keflavíkurflugvöll sem mest
frá byggð Reykjanesbæjar.
Böðvar tók þó sérstaklega fram
að nauðsynlegt væri að
í fáparki
viðhalda flugbrautum og
lagfæra öryggistæki vallarins.
„Flugumferð yfir byggð á að
vera lokaúrræði sem nota þarf
sparlega og varlega og ein-
ungis þegar önnur ráð em ekki
til staðar“, segir í greinargerð
Böðvars. Allir bæjarfulltrúar
Reykjanesbæjar skrifuðu undir
tillöguna.
Til leigu
ú Keflavíkurflugvelli, iónaóarhúsnœði
um 3S-40m2. Var áður nýtt sem verslun.
Upplýsingar gefur Magnús
í síma 892 7107
Naglafræðingar!
Vegna mikilla anna bráðvantar vanan
naglafræðing sem getur hafið störf
sem fyrst. Mjög góð laun í boði.
Allar nánari upplýsingar á staðnum.
^7^-hlíSÍð
Þökkum innilega samúð og
hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, systur og ömmu,
Ólafíu Bjargar Guðmannsdóttur,
Heiðarhvammi 9,
Keflavík
Örn Guðsteinsson, Sigurbjörg Stefánsdóttir,
Lilja Guðsteinsdóttir,
Hilmar Guðsteinsson, Kolbrún Valdimarsdóttir,
Sigríður Guðmannsdóttir, Vilhjálmur Þórhallsson,
Elín Guðmannsdóttir
og barnabörn.
Þökkum innilega samúð og
hlýhug við andlát og útför
föður okkar, tengdaföður, afa,
langafa og bróður,
Óskars Sveinbjörns Pálssonar,
bifvélavirkja,
Hringbraut 136a,
Keflavík.
Guðjón G. Óskarsson, Sigurrós Svavarsdóttir,
Rúnar K. Óskarsson, Lára Sigurðardóttir,
UnnurS. Óskarsdóttir, Viðar Arason,
Steinunn Ósk Óskarsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og systkini hins látna.
Starfsfólk
óskast
Matvælafyrirtæki í Sandgerði
óskar eftir starfsfólki frá og með
1. júlí nk. Snyrtileg vinna og
mjög góð vinnuaðstaða.
Upplýsingar í síma 897 8555
og 896 4596.