Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 20.07.2000, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 20.07.2000, Blaðsíða 18
íslandsmeistarinn Camilla Petra Sigurðardóttir úr Mána með sigurlaunin á Landsmóti hestamanna á dögunum. að þykir einstakt um land allt árangur krakkanna í Hesta- mannaielaginu Mána á Landsmóti hestamanna sem fram fór í byrjun jútí í Reykjavík. Máni sendi full- trúa frá sér í allar keppnis- greinar á mótinu og í öllum flokkum komust Mána- félagar í úrslit. Bestur var árangurinn í barnaflokki en þar sigraði Camilia Petra Sigurðardóttir, Heiða Rut Guðmundsdóttir varð í fjórða sæti og Róbert Þór Guðnason lenti í því ellefta. Keppendur voru um sjötíu talsins í hverjum flokki. í unglingaflokki kepptu Auður Sólrún Olafsdóttir, Elva Björk Margeirsdóttir og Hrafnhildur Gunnarsdóttir. Þar komst Auður Sólrún í fimmta sæti. Aðrir keppendur stóðu sig mjög vel. I ungmennaflokki 17-20 ára kepptu Arnar Dór Hannesson, Guðmundur Óskar Unnarsson og Gunnar Örn Einarsson. Guðmundur Óskar lenti þar í tíunda sæti. Strákamir stóðu sig allir vel. Meira að segja lentu hestar frá Mána í úrslitum í fullorðins- flokki í A og B flokki gæðinga en slíkt hefur ekki gerst í átján ár. Frábær keppnishópur frá Mána! Hestamannafélagið Máni vakti mjög mikla athygli á þessu landsmóti vegna árangurs félagsins. Yngri deildimar voru okkur öllum til sónia! Þetta sögðu viðmælendur blaðsins, þeir Guðni Grétarsson, Jón B. Olsen og Sigurður V. Ragn- arsson en þeir sitja allir í stjóm Mána ásamt fleirum. Undanfarin tíu ár hefur félagið lagt mjög mikið upp úr bama- og unglingastarfi. Arangurinn var góður árið 1998 og enn betri nú árið 2000. 18 Félagsmönnum hefur fjölgað mikið á þessum árum og nú hefur þetta þróast í fjölskyldu- sport. Ferðanefnd félagsins hefur starfað ötullega og hafa hestaferðir verið mjög vel sótt- ar. M.a. fóru 120 manns í árlega hópferð út í Voga nú í vor. Fólk á öllum aldri kemur saman á Mánagrund og nýtur þess að huga að hestunum. Fara í reiðtúr eða bara kíkja í spjall hjá félögunum. Það er skemmtilegt og vinalegt andrúmsloft í hestaþorpinu út á Mánagrund. Fólk finnur fljótt að það er velkomið í hópinn. Þetta er reynsla eins viðmæl- anda blaðsins. En víkjum nú að hugmyndum stjórnarinnar í félaginu. Hvernig sjá þeir framtíðina? Þeir segjast hafa lagt heilmikið upp úr góðri kennslu og tilsögn á undanförnum árum. Nám- skeið með Olil Amble, heims- meistara í hestaíþróttum, hefur farið fram í reiðhöllinni fyrir alla aldurshópa. Olil var einnig yfirþjálfari hópsins frá Mána sem keppti á landsmótinu. Hópurinn var sendur í æfinga- búðir helgina fyrir keppni aust- ur fyrir fjall í Ingólfshvol. Þar dvaldi hópurinn ásamt foreldr- um sínum, systkinum og keppnishesti. Foreldrar borg- uðu allan kostnaðinn. „Hestamannafélagið Máni er ekki í stakk búið til þess að styrkja neinn fjárhagslega. Það mun vonandi breytast í framtíðinni. Við vonumst eftir stuðningi bæjaryfirvalda. Við erum að byggja upp heilmikið íþróttastarf með ungmennum bæjarins sem skilar sér. Þetta er eitt öflugasta forvarnarstarf sem til er. Hestaíþróttin er í senn ögrandi og skemmtileg. Það krefst mikils sjálfsaga og einbeitningar til að ná langt í greininni. Fyrir þá sem ekki vilja keppa þá er umgengnin við hestana einnig mjög ánægjuleg og gefandi. Þegar maður og hestur ná andlegu sambandi þá er ekki aftur snúið því þetta samband byggir fólk upp á allan hátt,“ segja þeir Jón, Guðni og Sigurður. Aðstaðan á Mánagrund er bágborin Það sem gerir árangur Mána- félaga á landsmótinu mjög sérstakan er bág aðstaða félagsins. Keppendur þurftu m.a. að keyra til Reykjavíkur fyrir mótið og æfa þar á löglegum keppnisvelli. Keppnisvöllurinn á Mánagrund er nánast ónýtur og hættulegur til keppni. Það veldur hesta- mönnum töluverðum áhyggjum að reiðhöllin hefur verið til sölu undanfarið en hún er í einkaeign. Þeir em hræddir um að missa reiðhöllina í hend- ur einhverra sem ekki tengjast hestaíþróttum á neinn hátt. Þá er ljóst að við missum æfinga- aðstöðu segja þeir. Námskeið hafa einnig farið fram þama. Mánafélagar mega ekki til þess hugsa að missa reiðhöllina. Við drögumst þá verulega aftur úr öðmm félögum. Við verðum að hafa tryggan aðgang að reiðhöllinni. Alls staðar þar sem bæjaryfirvöld hafa komið inn í málin hefur tekist að byggja upp glæsilega aðstöðu fyrir hestaíþróttina. Nægir að nefna fyrirmyndarsvæði hesta- mannafélagsins Sörla í Hafnar- firði. Atvinnumenn em einnig starfandi hjá félögunum en þeir halda félaginu í háum gæða- staðli. Þetta eru þá tamninga- menn sem félagamir geta leitað til og fengið leiðsögn. íslandsmót á Mánagrund árið 2003 ! Við erum metnaðarfullir gagn- vart félaginu okkar hér á Suðurnesjum. Við viljum byggja upp nýja löglega keppnisvelli. Draumurinn er að halda Islandsmót í greininni árið 2003. Hestaíþróttin er sífellt að sækja í sig veðrið. íslendingar em oft einkenndir erlendis með íslenska hest- inum. Alls staðar hrífur íslenski hesturinn fólk. Ef við héldum svona stórt mót hérna á Suðumesjum þá kæmu hingað fullt af gestum, bæði erlendum og innlendum. Þessu fylgir mikill ávinningur fyrir alls konar aðila. Þetta mót myndi koma Suðumesjum vel á kort- ið. En það eru blikur á lofti varðandi aðstöðu félagsins. Við erum að skipa framkvæmda- nefnd núna sem á að hafa forgöngu um viðræður við bæjaryfirvöld í sambandi við uppbyggingu félagsins. Það er einlæg von okkar að bæjar- yfirvöld sjái forvarnargildi starfseminnar fyrir æskuna í bæjarfélaginu og styðji við bakið á okkur. Það starf sem fram fer núna hjá Mána er ein- ungis gert fyrir dugnað nokk- urra manna. Það þarf meira til ef starfsemin á að ganga til lengdar. I allflestum bæjar- félögum er boðið upp á reið- námskeið fyrir böm á sumrin. Þar kemur til fjárframlag frá viðkomandi bæjaryfirvöldum svo starfsemin geti farið fram. Hestamannafélagið Máni sá sér ekki fært að standa einn undir sumarnámskeiði nú vegna fjárskorts. Auðvitað viljum við Mánafélagar vera samkeppnis- hæfir á sumrin með námskeið fyrir böm. Vonandi verðum við með í námskeiðspakka bæjar- yfirvalda næsta sumar“.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.