Víkurfréttir - 20.07.2000, Blaðsíða 8
Fíkniefnaneytendur áberandi í fréttum:
ítalskip dagar á Ránni
Veitingastaðurinn Ráin
í Keflavík verður
með ítalska daga sem
hefjast næstkomandi
fimmtudag og munu standa
til 7. ágúst. Boðið verður upp
á hefhundna en jafnframt
spennandi ítalska matar-
gerðarlist eins og hún gerist
best þar í landi.
ítalskur matreiðslumeistari, hr.
Luca Fasoli, kemur gagngert
hingað til lands til að hafa
umsjón með kynningunni og
verður sérstakur gestakokkur á
Ránni næstu tvær vikur. Hr.
Fasoli er afar virtur matreiðslu-
meistari í sínu heimalandi þar
sem hann starfar við vinsælan
veitingastað við Gardavatn.
Hann hefur skrifað fjölda
matreiðslubóka bæði fyrir
almenning og fyrir skóla. Þá
kemur hann reglulega fram í
einum vinsælasta matreiðslu-
þætti í sjónvarpi á Italíu. Síðan
1992 hefur hann kennt við
virtan hótel- og ferðaþjónus-
tuskóla í Bardolino sem heitir
Luigi Camacina.
Fasoli, sem er að koma til
Islands í fyrsta sinn segir að
það sé mikilvægt að koma fólki
í skilning um að ítalskur matur
sé ekki bara pizzur og pasta.
„ítölsk matargerðarlist er í
stöðugri þróun og er mismun-
andi eftir svæðum í landinu.
Það sem ég mun gera hér, er að
taka það besta frá hverju svæði
og setja það saman á glæsi-
legan og spennandi hátt fyrir
gesti okkar hér á Ránni“.
Meðal þess sem verður boðið
upp á má nefna bakaðan lax
með basilíke, gufusoðið nauta-
kjöt polenta, og nýstárlegan rétt
sem nefnist spjót fiskimannsins
sem samanstendur af 5 fisk-
tegundum sem eru grillaðar og
reiddar fram með sérstakri
kryddsósu.
Boðið verður upp á ítalskt
hádegishlaðborð fimmtudag og
föstudag. Sérstakur ítalskur
kvöldmatseðill verður síðan frá
og með föstudagskvöldi. A
föstudags- og laugardagskvöld
verður matargestum boðið upp
á sérstaka vínkynningu á vel
völdum ítölskum víntegundum
frá Pasqua.
Móttaka
Viltu vinna í hrödu og krejjandi alþjóðlegu umhverfi?
Okkur á Hótel KefLavík vantar starfsmann í liðið okkar.
Við leggjum áherslu áfaglega en þó jafnframt
persónulega þjónustu og erum við að leita að einstaklingi
sem erjákvœður og kurteis, hefur gott vald á íslenskri
tungu, ensku ogjafnvel þriðja tungumáli.
Ef þú ert vanur tölvunotkun, vinnur vel undir álagi
og ert ákveðinn þá hvetjum við þig að slá til og sækja um.
Farþegar í annarlegu
astandi og fíkniefni
finnast viö líkamsleit
Aðfaranótt þriðju-
dagsins 18. júlí kl.
00:56 stöðvaði lög-
reglan á eftirliti á Reykja-
nesbraut bifreið vegna van-
búnaðar og sem í voru of
margir farþegar og þar sem
tveir farþeganna voru greini-
lega í annarlegu ástandi, var
bifreiðin ásamt ökumanni og
farþegum færð á lögreglu-
stöðina í Keflavík. Þar fór
fram leit í bifreiðinni og á
ökumanni og farþegum.
I aftursæti fannst poki með
meintum fíkniefnum í og síðan
fannst við líkamsleit á einum
farþeganna tafla og hvítt duft
sem líklegast er amfetamín.
Tekin var skýrsla af ökumann-
inum og þrem farþeganna, en
tveir gistu fangageymslur
vegna frekari rannsóknar. I
fórum þessara tveggja voru
hlutir sem grunur leikur á að sé
þýfi og í framhaldsrannsókn
fór fram húsleit á heimili þeirra
kærðu. Þar fundust lítilsháttar
fíkniefnaleyfar og síðan ýmsir
hlutir sem grunur leikur á að
séu þýfi.
Maður sem ók á Ijósastaur við Voga er grunaður um fíkni-
efnaneysiu og fíkniefni koma víðar við sögu í fréttum
vikunnar eins oo siá má á bessari síðu oo víðar í blaðinu.
Oh á hús og blóma-ker undir
áhrifum fíkniefna eöa lyfja
Tilkynnt um að ekið hefði
verið á blómaker á Iðavöllum í
Keflavík sl. mánudag og hafi
ökumaður ekið af vettvangi.
Lögreglumenn fundu bifreið-
ina fljótlega og handtóku öku-
manninn, en hann var grunaður
um að vera undir áhrifum
fikniefna og eða lyfja. Seinna
kom í ljós að bifreið þessari
hafði einnig verið ekið á hús
við Aðalgötu.
Byggmgarvinna
Oskum eftir að ráða byggingaverkamenn til starfa
við stœkkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Einnig vantar okkur mann d byggingarkrana.
Mikil vinna.
Ahugasamir hafi samband við Sigurð Kjartansson
ísíma 899 5510.
Allar nánari upplýsingar gefur
Steinþór Jónsson, hótelstjóri á staðnum.
ÍSTAK
THE CONTRACTOR TO RELY ON
8
Vatnsnesvegi 12 • 230 Keflavík • Sími 420 7000 - Fax 420 7002
www.hotelkeflavik.is • stay@hotelkeflavik.is