Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 19.10.2000, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 19.10.2000, Blaðsíða 14
1 Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2000 haldinn i Garðinum: r ~i Þarf að tryggja tekjustofna sveitarfélaga Fundurinn krafðist þess að tekjutap og aukin útgjöld vegna lagasetninga, sem reynst hafa íþyngjandi fyrir sveit- arfélögin, verði bætt að fullu. Nefnd á vegum Al- þingis er að endurskoða tekjustofna sveitarfélaga en SSS telur nauðsynlegt að tillögur nefndarinnar liggi fyrir sem fyrst svo Alþingi geti fjallað um málið á komandi haustþingi. Guðmundur Ami Stefánsson (S), alþingismaður, á sæti í nefndinni og hann sagði að mikilvægt væri að tryggja hagsmuni suðvestur homsins þar sem 65-70% íbúa lands- ins búa. Hann sagði að byggðarlög úti á landi fengju ákveðnar fjárhæðir frá ríkinu vegna fækkunar en benti jafn- framt á að það kostaði líka peninga að taka við fólki, eins og að missa fólk úr byggðalaginu. Petta þyrfti að athuga. Alyktunin var sam- þykkt. L J AÐALFUN S.S.S. ---2000 t SAMBAND SVEITARFELAGA ASUDURNESJUM Hinn árlegi aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum var haldinn í samkomu- húsinu í Garði sl. helgi. Nokkrar ályktanir voru lagðar fram meðal annars varðandi tckjustofna sveitarélaga, tvöföldun Reykjanesbrautar, byggingu D-álmunnar, lög- gæslu- og heilsugæslumál. Sveitarstjórnarmenn á Reykjanesi sátu fundinn ásamt þingmönnum kjördæmisins og boðsgestum sem fluttu erindi um ýmis málefni. REYKJANESBÆR TJARNARGÖTU 12 230 KEFLAVfK Atvinna Nýr leikskóli Áætlað erað leikskólinn Hjallatún taki til starfa í desember nk. I Hefurþú áhuga á að vera meðfrá byrjun og taka þátt í að skapa | starfsanda ogvinnubrögð ínýjum leikskóla? jv____________ Þá erþetta tækifæriðfyrirþig. —-ir Auglýst er eftir: • Aðstoðaleikskólastjóra. .•Leikskólakennurum með deildarstjóm. \ / •iLeikskólakennumm. eikskólakennara,þroskaþjálfara eða starfsmanni >neð aðra uppeldismenntun vegna sérkennslu. •Matráði og aðstoðarmanni í eldhús. Viðkomandiþurfa að sjá um rekstur eldhúsa ísamráði við leikskólastjóra, hafa góða þekkingu á næringafræði ogfæmi ígerð matseðla. Starfið hentarbæði konum og körlum. Æskilegterað aðstoðarleikskólastjóri geti hafið störfl S. nóvembernk. en eigi síðaren 1. desember. Ráðið verðurí aðrar stöður um miðjan desember. Upplýsingar veita Gerður Pétursdóttir, leíkskólastjóri og Guðríður Helgadóttir, leikskólafulltrúi ísíma 421 6700. Umsóknarfresturertil ogmeð27. októbernk. Utnsóknir berist Skólaskrifstofu Reykjanesbæjar, Hafnargötu 57,230Keflavík, Reykjanesbæ. Vakin erathygli áþvíaðfáist ckki leikskólaketmarar, verða rdðmrstarfsmenn með aðra uppeldis- mermtwi cða starfsmenn með brennandi áhuga á bania ogleikskólauppeldi ístöðurleikskólakenuara. Launakjöreru skv. kjarasamnitigi Félags íslenskra leikskólakemtara cða viðkomandi stéttarfélags. Staifsmannastjóri. ■ Hallarekstur sveitarfélaga: Halli þrátt fyrir hækkun útsvars Tekjustofnanefnd vinn- ur nú að nýrri skipan tekjustofna sveitarfé- laga. Ingimundur Sigurpáls- son, bæjarstjóri á sæti í nefndinni en hann fjallaði um málið á aðalfundi Sam- bands sveitarfélaga á Suður- nesjum sem haldin var í Garði sl. helgi í ræðu hans kom fram að sveit- arfélögin hafa verið rekin með halla, nánast á hverju einasta ári en hallarekstur sveitarfélaga nú er um 3-4 milljarðar króna. „Nefndin vinnur að því að nálgast tekjuþörf sveitarfélaga með öðrum hætti en áður. Til- lögur okkar fjalla m.a. um að hækka útsvar frá næstu áramót- um um 0,3-04 %, en sú hækk- un ætti að skila sveitarfélögum rúmum milljarði. Einnig er gert ráð fyrir sambærilegri hækkun útsvars 1 .janúar 2002, en hún mun skila 1,2-1,3 milljörðum. Ég tel hins vegar ólíklegt að tekjuskattur verði lækkaður", sagði Ingimundur og ítrekaði að aðeins væri um tillögur að ræða á þessu stigi máls en ákvörðun um hækkun útsvars verður að taka fyrir 1. desem- ber á þessu ári. „Þrátt fyrir hækkun útsvars sjá- um við fram á áframhaldandi hallarekstur", sagði Ingimund- Lögæslan þolir ekki frekari niðurskurð Löggæslan hefur verið undir hnífnum á und- anförnum misserum en aðalfundur SSS skoraði á ríkisvaldið að efla löggæslu á Suðurnesjum. „Fyrir liggur að lögreglan telur sig ekki geta sinn eðlilegri löggæslu nema til komi aukið fjár- magn. Aðalfundurinn mót- mælir harðlega fyrirhuguð- um niðurskurði og telur að þess í stað þurfi að auka fjár- magn verulega“, sagði orðrétt í tillögu fundarin. Ólafur Thordersen (S), bæjar- fulltrúi í Reykjanesbæ, tók und- ir þetta og sagði að ástandið í löggæslumálum f Suðumesjum væri verulega slæmt. Hann óskaði Grindvíkingum og Vogabúum hins vegar til ham- ingju með aukna löggæslu, en nú er alltaf einn lögreglubíll með tveimur mönnum á því svæði. „Hvað með okkur hin, rúmlega þrettán þúsund íbúa. Staðan er oft þannig að aðeins einn bíll er í umferð, sem á að sjá um Reykjanesbæ, Sandgerði og Garð. Þetta er ekki nógu gott og þessu verður að breyta", sagði Ólafur. Tillagan var sam- þykkt. 14

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.