Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.01.2001, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 04.01.2001, Blaðsíða 4
Brunavarnir Suðurnesja: Róleg jól og áramót hjá BS Að sögn Sigmundar Eyþórssonar, slökkvi- liðsstjóra Bruna- varna Suðurnesja, voru þessi jól og áramót þau rólegustu í manna minnum. Brennur fóru allar vel fram um ára- mótinen fresta varð brennu við Heiðargil í Keflavík. Tuttutu flutningar BS sinnti 20 sjúkraflutningum í vikunni og fór í 13 brunaútköll. Þegar brunar á gamlárskvöld og nýársnótt eru teknir saman, kemur í Ijós að kallað var á slökkvilið sex sinnum vegna bmna en þar af vom fjórir stað- festir eldar, allir minniháttar. Ekkert tjón varð á mannvirkj- um né fólki. Þegar litið er á samanlögð út- köll á liðnu ári sést að sjúkra- flutningar voru fleiri en árið 1999, eða 1218, en brunaút- köll færri en árið 1999, eða 189 talsins. Eldur í ruslagámi Tilkynning barst um lausan eld í mslagámi á bakvið verslunina BT í Keflavík seint á gamlárs- kvöld. Að sögn Sigmundar var eldurinn mikill þegar slökkvi- liðið kom á staðinn og gámur- inn stóð mjög nálægt húsinu þannig að illa hefði getað farið. Greiðlega gekk að slökkva eld- inn en gámurinn er lítillega skemmdur. Seinna sama kvöld barst tilkynning um lausan eld á íþróttavellinum við Gmndar- veg í Njarðvík. Kveikt hafði verið í rusli. Ekkert tjón hlaust af. Flugeldur í áramótagleði Aramótagleði sem haldin var í húsi Verkalýðs- og sjómanna- félagsins, náði hápunkti þegar raketta skaust inn um opna svalahurð. Veislugestum var bmgðið en engum varð meint af. Reykurinn frá flugeldanum setti viðvörunarkerfið í gang þannig að harðgerðir slökkvi- liðsmenn mættu á svæðið og voru við öllur búnir. Engin hætta var þó á ferðum þannig að þeir gátu yfirgefið gleðskap- inn með bros á vör. Eldur við bakarí Síðdegis á nýársdag var til- kynnt um eld í rusli á bakvið Valgeirsbakarí í Njarðvík. Slökkvilið BS fór á staðinn og slökkti eldinn en kveikt hafði verið í leifum af notuðum flug- eldum. Ekki er vitað hver var að verki. 16" pízza m/s áleggsfegundum 12" pi22a m/J álegjsfegunúui*) 7" f>i22a m/s áleggsfejurutum tullf af C/nutn CSfum á loCfínu á ío% aCslsff opíá alla <fa<ja fil kl. 21. wn,- WJr in,- PIZZATkOPEZ ARSOL Heiðartúni 2c • Garði Sími 422 7935 8H2222 er fréttasími Víkurfrétta Sorpriti skilað Bæjarmálablað Samfylkingar- innar á Suðumesjum féll í grýttan jarðveg hjá fulltrúum meiri- hlutans og kom það skýrt fram á fundi bæjarstjómar sL þriðjudag. Vildi meirihlutinn meina að í blaðinu væri dregin upp svört mynd af bæjarmálunum og jafnvel farið með ósann- indi. Böðvar Jónsson (D) sagði illa farið með góðan pappír. „A mínu heimili hafa svona blöð verið flokkuð sem sorprit og ég vona að menn vandi sig betur næst“, sagði Böðvar og skilaði sínu eintaki til ritstjórans, Jóhanns Geirdal (S). Hagsmunir hverra? Santmni Hitaveitu Suðumesja og Rafveitu Hafnarfjarðar hefur verið hitamál á bæjarstjómar- fundurn í Reykja- nesbæ á undan- fömum vikum. Ráðamenn í Vog- um hafa nú lagst gegn sameiningu nema að endurmat á íyrirtækjunum fari fram. Önnur sveitarfélög hafa samþykkt samruna. Málið er því í hnút eins og er. A síðasta fundi bæjarstjómar var málið Samkaup og Matbær samelnast Samkuup hf. og Matbær ehf. (KEA) hafa sameinað rekstur fyrirtækjanna. Þetta var ákveðið á hluthafafundi á nýársdag. Hið nýja félag verður þriðja stærsta matvöru- verslunarkeðja landsins. Samkaup hf. hefur boðað til hluthafafundar mánudaginn 8. jan- úar nk. Fundurinn hefst kl. 17:30 og verður haldinn á Glóðinni í Keflavík. Markmið fundarins er að ná meira hlutafé inn í fýrirtækið. Hlutafé félagsins er nú 250 millj. kr. en tillaga stjómar snýst urn að hækka hlutfé um aðrar 250 milljónir. Einnig leggur stjómin til að núverandi hluthafar falli frá forkaupsrétti sínum. Reykjanesbæ, og víðar, geti ekki lengur kælt áfengi ut- andyra því þyrstur þjófur nemi jafnan veigamar á brott. Þeir sem orðið hafa fyrir barð- inu á þessurn auma einstak- ling óska honum góðrar þynnku á nýja árinu. Dugleg börn Afkvæmi þriggja bæjarfull- trúa í bæjarstjóm Reykjanes- bæjar hafa fengið viðurkenningar fyrir framúrskar- andi frammistöðu í íþróttum. Erla Þor- steinsdóttir, dóttir Þorsteins Erlings- sonar, var valin besta körfu- boltakona ársins þegar íþrótta- maður ársins var valinn á Hótel Loftleiðum á dögunum. Steinþór Geirdal, sonur Jó- hanns Geirdal var valinn keil- ari ársins við sama tækifæri, en hann æfír nú með KR og hampar bæði Islands- og Norðurlandameistaratitli. Jó- hann Kristjánsson, sonur Kristjáns Gunnarssonar, hlaut titilinn íþróttamaður fatlaðrar í Reykjanesbæ og var númer þrjú í vali um íþróttamann ársins í Reykjanesbæ, en hann er frábær borðtennisspilari og stefnir á Ólympíuleikana árið 2004. Svart og sykurlaust tekið til umfjöllunar og vakti það athygli að fulltrúar Sam- fylkingarinnar töluðu máli hreppnefndar Vatnsleysu- strandarhrepps en minntust ekki á hagsmuni Reykjanes- bæjar í þessu samhengi. Sár sannleikur Jóhann lagði áherslu á að þó að Vogar væm lítið sveitarfé- lag þá mætti ekki traðka á þeim. Kristmundur spurði fundarmenn hvort þeir væm hræddir við endur- mat. Auðvitað ætti að framkvæma það undireins. Hann vildi einnig meina að Margeir Pétursson, sem veitti HS og RH ráðgjöf varðandi sammnann og vinnur fyrir sjálfstætt ráðgjafafyrirtæki, væri starfsmaður Hafnarfjarð- arbæjar. Þegar fulltrúum minnihlutans var bent á að málflutningur þeirra hljómaði eins og þeir væm að verja hagmuni Voga- manna frekar en Reyknesbæ- inga, firrtust þeir við. Sann- leikanum verður hver sárreið- astur. Þyrstur þjófur Það er merkilegt hvað sumir leggjast lágt til að fá sér í tána. Heyrst hefur að íbúar í Útgefandi: Vfloirfréttir ehf. kt. 710183-0319, Grundarvegi 23, 260 Niarðvik, sími 421 4717, fax 421 2777 _ ng*g|g» FVitstjóri: Páll Ketilsson, sími 893 3717 pket@vf.is • Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 898 2222. hbb@vf.is Y ||yU|{ Blaðamenn: Silja Dogg Gunnarsdóttir silja@vf.is • Auglýsingar: Kristín Njálsdóttir kristin@vf.is, PRÉTTIR J°nas F1"3112 Sigurjónsson, franz@vf.is Auglýsingagerð: Bragi Einarsson bragi@vf.is • Kolbrún Pétursdóttir kolla@vf.is Útlit, umbrot, litgreining og prentvistun: Víkurfréttir ehf. • Prentvinnsla: Dddi hf. Dagleg stafræn Útgáfai WWW.vf.ÍS Á R 4 GLEÐILEGT N Ý T T

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.