Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.01.2001, Síða 6

Víkurfréttir - 04.01.2001, Síða 6
r ~i L Nesfiskur kaupir eignir HB í Sandgerðl Raraldur Böðvarsson hf. hefur samþykkt kauptilboð í megin- hiuta fasteigna fyrirtækisins í Sandgerði ásamt vertíðar- bátnum Jóni Gunnlaugs GK 444 með nokkrum veiði- heimildum. Tilboðið er frá eigendum Nesfisks hf. í Garði. Bergþór Baldvinsson fram- kvæmdastjóri Nesfisks sagði að fyrst og fremst hafi fyrir- tækið verið að tryggja sér góða frystiklefa en fyrirtækið hafi vantað frystiklefapláss. Þá fær Nesfiskur einnig góð hús fyrir vinnslu uppsjávarfisks. „Þetta eru fyrst og fremst frystihús, verbúðin og Jón Gunnlaugs GK sem við kaup- um“, sagði Bergþór. Hann vildi ekki gefa upp kaupverðið né hvort reglubundinni fisk- vinnslu verði komið á í húsun- um í Sandgerði. Það yrði tím- inn að leiða í ljós. j Atvinna Starfsfólk óskast á kassa og í sérvöru. Vinnutími er frá kl. 10 eða 13 virka daga og annann hvern laugardag. Upplýsingar og umsóknarblöð fást á staðnum. HAGKAUP Meira úrval - betri kaup Lokað verður kl. 19 laugardaginn 6. janúar, opnum aftur kl. 13 sunudaginn 7. janúar. Atvinna Starfsfólk óskast til afgreiðslustarfa. Vinnutími er ffá kl. 13-18 alla virka daga. Upplýsingar í síma 421 1695. AfflZT 4. BAKARIIÐ ■ferskara en allt! Hafnargötu 31 - Sími: 4211695 Lobo kominn heim eftir sjö vikur í óbyggöum: Hljóp í fangið á„pabba“ Heimiiishundur fjöi- skyldu Davids Art- zitsel, yfirmanns varnarliðsins á Keflavíkur- flugvelli kom í leitirnar eftir sjö vikur sl. laugardag. Hinn lágfætti Lobo varð viðskila við fjölskylduna eftir að hún lenti í bílslysi við Nesjavallaveg fyrir sjö vikum. Bíllinn rann út af Nesjavalla- vegi og valt fjórum sinnum. Allir fjölskyldumeðlimir sluppu ónteiddir en hundurinn hvarf. Hans var leitað en án árangurs strax eftir slysið og reglulega næstu vikur á eftir. Margoft sást til hans í nágrenni Elliðavatns sem er um 8 km. frá slysstaðnum. Bjöm Knúts- son, flugvallarstjóri var nálægt því að ná hundinum 29. des. og lét fjölskylduna vita af því að Lobo litli væri á svæðinu en einnig höfðu margar aðrar ábendingar borist. Þrjátíu manna leitarflokkur vina og vandamanna aðmírálsfjöl- skyldunnar hófu leit snemma dags 30. des. Eftir hádegi kom hundurinn í leitimar og hljóp í fangið á „föður“ sínum. David sagði hundinn horaðan og skelkaðan en að öðru leyti hressan. Hann var ánægður að vera kominn í faðm fjölskyldu sinnar á Keflavíkurflugvelli og var hinn rólegasti þegar tíðindamaður Víkurfrétta heimsótti hann og smellti af honum mynd með fjölskyld- unni daginn sem hann kom heirn. Lífsstíll: Gauji litli til Suðurnesja Hinn eini og sanni Gauji litli, sem gerði garðinn frægan með því að taka sig taki og losa sig við all nokkur kíló, með stuðningi allrar þjóðarinnar, býður Suðurnesjamönnum upp á 8 vikna aðhaidsnámskeið í lík- amsræktarstöðinni Lífsstfl. Gauji litli er aðalmaðurinn á bak við félagasamtök feitra, og hefur unnið geysilega gott starf í baráttunni við vambarpúkann. Námskeiðið er hannað af Gauja litla og hefur verið mjög vel sótt í Reykjavík. Meira að segja hafa Suðumesjamenn gert sér ferð til Reykjavíkur 3 x í viku í 8 vikur, til að sækja námskeið hans. Tímarnir fara fram á spinn- inghjólum stjórnuðum af Guðrúnu Olafíu sem hefur séð um 20+ námskeiðin á Lífsstíl, við góðar undirtektir. Ásamt Gauja litla og Guðrúnu Olafíu standa einnig að baki nám- skeiðsins, hjúkrunarfræðingur, næringarráðgjafi og heilsuráð- fijafi. Þátttakendur fá mikið aðhald, þar sem krafist er góðrar mætingar, vigtað er í hverri viku og skila þarf inn matardagbók 1 x í viku, sem yfirfarin er af næringarráð- gjafa. Einnig fá þátttakendur aðgang að ráðgjafa í gegnum síma, þegar þörf er á. Nám- skeiðið hefst mán,15.jan. Skráning er hafin í síma 420- 7001. Stúdíó Huldu: Bypjenda- námskeið í Hatha-yoga Nú er að fara af stað námskeið í Hatha-yoga hjá Stúdíói Huldu. Námskeiðið hefst 8. janúar og tekur fjórar vikur. Kennt verð- ur á mánudögum og fimmtu- dögum kl. 19:35 og hver tími stendur yfir í eina og hálfa klukkustund. Kennari á nám- skeiðinu verður Ólafía K. Jensdóttir. Hatha-yoga samanstendur af yogastöðum og öndunaræfing- um. Kenndar eru leiðir til að slaka á. Áhrif hatha-yogaiðkunar leiðir til jákvæðrar breytingar og birtast í því að vikomandi losnar við líkamlega vanlíðan, sefur betur og finnur fyrir bættum hæfileika til að einbeita sér. Þessi tegund yoga vinnur einnig bug á kvíða, streitu og annarri tak- mörkun í lífinu. 8 GLEÐILEGT N Ý T T A R

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.