Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.01.2001, Side 14

Víkurfréttir - 04.01.2001, Side 14
■ óhannes A. Krist- I bjömsson hyggst taka • I upp fyrri iðju hér á ViKurí'réttuin og ausa vikulcga úr viskulminni sínuni köriúknattleik- sáhugamönnum til ómældr- ar ánægju. Athuga ber að JAK-inn er hættur að nota sterk lýsingarorð til að lýsa óánægju sinni með cinstaka leikinenn og nýtir sér, þess í stað, orðatiltækið „náði sér ekki á strik“. Lesendum er frjáls að skipta þessu út fyrir eigin lýsingarorð og minnt er á skcmmtileg orð eins og „hörmulegur“, „mömmustákur“, „týn- dur“, „otþroskaður“ og svo auðvitað þetta klassíska „arfaslakur“. Lærisveinar Vals komið mest á óvart Fyrstu leikimir í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á þessari öld fara fram í kvöld þegar Njarðvíkingar fá Tindastól í heinrsókn en það er eini Suðurnesjaheimaleikur um- ferðarinnar því Grindvíkingar heimsækja Grafarvog og Keflavík Hafnarfjörð. Valur Ingimundarson hefur stýrt Sauðkræklingum á topp deildarinnar en þar sitja þeir ásamt fimasterku Keflavíkurliðinu sem hneppir verðlaunin „Grísapungar ársins" fyrir valið á Calvin Davis sem útlending. Hann hefur margsinnis borið liðið á herðunum (26,7 stig, 15,8 fráköst og 4 varin skot á leik) þegar skyttumar hafa bmgðist. A milli næstu 8 liða em aðeins 8 stig sem þýðir í raun að óvenju margir leikir verða svonefndir fjögurra stiga leikir, þ.e.a.s sigur breytir stöðu liðsins um 4 súg gagnvart tapliðinu og öfugt. Á botninum hvíla ísfirðingar og Valur/Fjölnir en bæði liðin (2 stig hvort) sýndu batamerki rétt fyrir jólafrí. Tapleikir gegn þessum liðum gætu skilið á milli feigs og ófeigs í toppbaráttunni. Þeir sem duglegir hafa verið að gagnrýna deildarkeppnina verða í vand- ræðum þetta árið því hver leikur sem eftir er nokkurs konar bikar- leikur, eitt tap núna, gæti kostað liðið 3-4. sæti í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. Kellvíkingar cru með Calvin Calvin, Calvin, Calvin. Þessi langi rólyndispiltur er skrímsli undir körfunni. Án hans væri staða liðsins önnur. Næstu fýsilegu sókn- arkostir hafa verið Magnús Gunnars, Guðjón Skúla og Albert Óskars, þegar hann lætur sjá sig, sem allir hafa leikið vel. Guðjón er skytta af guðs náð og miskunn og viðvera hans ein, standandi úti í homi með bros á vör, hefur veitt Calvin það frelsi sem þarf í teignum. Magnús leysir erfiða hluti vel, hikstar ekki við að taka af skarið á úrslitastundu og er framtíð þessa liðs holdi klædd. Hjörtur Harðar hefur stjórnað liðinu í fjarveru Fals Harðar en verið annaðhvort uppi eða niðri, kannski í réttu hlutfalli við hitastigið á skyttum liðsins. Hinn ofurgranni Jón Nordal Hafsteins lék vel framanaf og uppfyllti þá allar þær vonir sem vöknuðu eftir frábæra frammistöðu í Norður- landamótinu en dalaði er á leið og leikur landsliðsmannanna Gunnars Einars og Birgis Birgis hefur valdið „aðdáendum þeirra vonbrigðum". Besti leikmaður 1. deildar á síðasta ári, Birgir Guðfinnsson, hefur ekki náð sér í mínútur svo marktækt sé og sýnir svo ekki verður um villst muninn á deildunum tveimur. Staða Njarðvíkur vonbrigði Njarðvíkurliðinu var spáð titlinum en er úr leik í bikarnum og féll gegn Grindavík í Kjörísbikamum. Það verður því að segja að staða liðsins sé vonbrigði. Brenton (Brjánsson) Binningham er eins og landi (enn um sinn) hans Calvin Davis besti leikmaður síns liðs. Njarðvíkingar fengu einnig til liðs við sig Danann Jes V. Hansen og eru menn ekki á eitt sáttir varðandi frammistöðu hans. Eitt er víst, að „danska skinkan" eins og gámng- amir kalla pilt verður að vera meira en hátíðarmáltíð til að verða ekki sendur heim núna þegar landsliðs- miðherjinn Friðrik Stefáns er snúinn aftur frá Finnlandi. Logi Gunnars hefur reynst hrein skemmtun að fylgjast með, sókn- armegin á vellinum, og skorað 20,2 stig að meðaltali en vömin hefur verið, eins og reyndar hjá liðinu öllu, glopótt í meira lagi. Ragnar Ragnars og Halldór Karls hafa gert góða hluti en þeir félagamir, Teitur Örlygs og Friðrik Ragnars, sem einnig eru þjálfarar liðsins hafa ekki náð sér á strik. Teitur þarf að leita aftur til tímabilsins 1985-1986 (2,7 stig) til að finna tímabil sem hann skoraði jafnfá stig að meðaltali. Að vísu er ósann- gjarnt að benda aðeins á skoruð stig því Teitur stendur sig vel á fjölmörgum öðrum sviðum, en svona er þetta nú samt. Leikstjómandinn Friðrik skilar, líkt Hirti kollega sínum í Keflavík, stoðsendingunum í hús en skotin er of mörg sem enda úti á túni í stað hlöðunnar hlýju. Þeir Sævar Garðarsson og Ásgeir Guðbjartsson eru í of tak- mörkuðum hlutverkum til að telja þó Sævar hafi nú náð inn á óskalista DV í „ef allir spiluðu nú 40 mínútur á leik leiknum1' og skákað þjálfara sínum Teiti á því svellinu. Ó, hve lífið væri auðvelt ef þessi formúla gengi upp. Friðrik „Trölli" Stefáns heimtu Njarðvíkingar úr Finnlands-helju og hver veit nema piltur komi fieim á bragðið, vamarbragðið það er að segja, en þá yrði Njarðvíkurliðið hættulegt. Grindavík neðar en vanaiega Grindvíkingar urðu Kjörísbikarmeistarar í fyrsta sinn, em enn í bikarkeppni KKI og eiga því einir liða möguieika á að landa öllum titlum ársins. Stóm titlunum. Þeir gáfu þó eftir í deildinni rétt fyrir jólafrí og sitja í 7. sæti deil- darinnar, nokkuð neðar en þeir eiga að venjast. Sjávarþorpsbúarnir sjálfir segja töp liðsins í síðustu ieikjunum tengjast að mestu meiðs- lum erlenda leikmannsins Kint Lewis. Þegar jólafríið hófst var ljóst að meiðsl Lewis yrðu of langvinn til að hægt væri að bíða og náðu Grindvíkingar sér í stað- gengil, Kevin Daley. Daley er 24 ára bandaríkjamaður og 197 cm á hæð. Páll Vilbergs (stigahæstur íslenskra leikmanna með 21,5 stig að meðaltali) og Guðlaugur Eyjólfs hafa verið stöðugastir Grindvíkinga og þarf liðið á góðum leik þeirra að halda til að vinna leiki. Fyrirliðinn Pétur Guðmunds skilar ávallt sínu en hefur fært sig upp á skaftið í sóknarleiknum og liðið oft misst hann úr hefðbundnu sirkushlut- verki sínu, sem er að halda öllum hinum í jafnvægi, fyrir vikið. Bergur Hinriks hefur reynst Einari þjálfara góður skyndibiti og sett niður þriggja stiga hraðar en starfs- fólk Kentucky Fried raðar á bakkana en hlutverk hans er ekki stórt. Nýliðarnir þrír, Kefl- víkingarnir Kristján Guðlaugs, Elentínus Margeirs og Davíð Jónsson, hafa ekki spilað eins stór hlutverk og margir ætluðu þeim og Dagur Þóris hefur ekki náð sér á strik. Það verður erfitt fyrir nýja útlendinginn Kevin Daley að taka við hlutverki Kims Lewis og erfitt fyrir kröfuharða grindvíska áhor- fendur að sætta sig við nokkuð minna. VF-spáin Keflvíkingar með Fali Harðars heiltrn heilsu og þá Gunnar Einars og Birgi Birgis „á strikinu" reynist ofjarl króksara (4 .sæti, vesturbæ- inga (3. sæti) og austurbæinga (2. sæti) í harði baráttu um íslandsmeistaratitilinn! Liðin ftnna lausn gegn Calvin en hleypa púkunum af sperrunum (sleppa skyttunum lausum) sem reynist dýrkeypt á úrslitastundu. Grind- víkingar jafna sig ekki af því að missa Kim Lewis á miðju tímabili en taka bikarinn í úrslitaleik gegn KR. Friðrik Stefánsson getur ekki stoppað í öll götin á Njarðvík- urvöminni þótt stór sé og sterkur og Njarðvíkurliðið fellur gegn nágrönnunum í æsispennandi úrs- litarimmu. Kemur úr NIAA deildinni Nýi Bandaríkjamaðurinn í liði Grindvíkinga, Kevin Daley, lék á háskólaferli sínum í einni af neðri deildum bandaríska háskóla- boitans, NIAA. Þar lék hann með Azusa háskólanum og skilaði liði sínu 22,6 stig og rúmiega 8 fráköst- um á leik. Eftir að skólanum lauk hefur hann leikið í Taiwan og í Costa Rica við góðan orðstý. Hann þykir háloftafugl og góð skytta. Hann leikur með Grindvíkingum í kvöld gegn Valsmönnum í Grafarvoginum. Bikarkeppni KKÍ og Doritos Keflavík - Þór, Akureyri. Sunnudagurinn 7. janúar kl. 16. íangbest^þ AND1 L Föstudagurinn 29. desember var merkilcgur dagur hjá kvennfólkinu í körfunni hjá Keflavík. Þann dag var efnt til keppni þar sem allir kvennaflokkar öttu kappi sín á milli. Kdlavík sendir 8 kvennalið til keppni í íslandsmót og bikarkeppnir og kepptu þau öll þennan dag, auk þess sem (jölmennustu flokkunum var skipt í fleirri lið.Stclpurnar gerðu meira en að spila bara því m.a. kepptu þær í „stinger” (skotkeppni) þar sem án efa var sett íslandsmet í þátttakcndat'jölda því alls tóku 47 stelpur þátt og flestar þeirra íslandsmeistarar. Sigun egari varð María Anna Guðniundsdóttir. Um kvöldið var svo haldið uppá litlu jólin hjá yngri stelpuflokkunum. Skipuleggjendur Stóra Stclpudagsins voru Kristinn Óskarsson, Kristín Blöndal og Margrét Sturlaugsdóttir öll þjállarar hjá Keflavík. 14 GLEÐILEGT N Ý T T A R

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.