Víkurfréttir - 04.01.2001, Side 15
HVAÐ SEGJA ÞJALFARARNIR?
EINAR
Maður velur sér ekki mótherja
í þessari deild
„Við vorum lélegir í síðustu þre-
mur leikjunum fyrir áramót,
hreinlega skitum á bitann eins og
sagt er, Meiðsli Kim Lewis áttu
mögulega einhvem þátt í því en
hann spilaði þessa leiki meiddur.
Þegar ljóst var að hann þurfti 4-6
vikna hvíld til að ná sér þá var
ekkert annað að gera en að leita
annað og vonandi getur Kevin
Daley fyllt skarð hans” segir
Einar Einarsson þjálfari
Grindavíkur. Fyrstu þn'r leikimir
núna em á útivelli og byrjum við
gegn Valsmönnum á fimmtudag.
Finnst þér það vera lán í óláni
að fá Valsmenn í fyrsta leik?
„Eg veit ekki hvort það er gott
eða slæmt, maður velur sér ekki
mótherja í þessari deild.
Hópurinn hjá mér er ekki stór og
menn hafa verið að kljást við
smávægileg meiðsl auk þess sem
Kristján Guðlaugs hefur verið ffá
vegna náms í jólafríinu. Þetta er
tíminn til að snúa við blaðinu hjá
liðum, leikmönnum og áhor-
fendum. Hver leikur telur og
heimavinnan verður mikilvæg
þegar upp er staðið, það má
ekkert lið við því að tapa á
heimavelli.”
Nýju leikmennirnir, einn hjá þér
og endurkoma Friðrik Stefáns og
Maurice Spillers til sinna liða?
„Friðrik styrkir Njarðvíkurliðið,
á því er enginn vafi. Þórsarar
hafa mikið talað um hvað þeir
söknuðu Spillers og fá nú tæk-
ifæri til að bakka það upp.”
FRIÐRIK
Takmarkið núna að toppa í
úrslitakeppninni
„Það hafa vissulega skipst á skin
og skúrir hjá okkur það sem af
er, við höfum átt fína leiki en svo
hafa vissulega komið leikir inn á
milli sem hafa verið óásættanle-
gir” segir Friðrik Ragnarsson
einn tveggja þjálfara Njarðvíkur.
„Við höfum aðeins tapað 3
leikjum í deildinni og 3ja sæti er
svo sem í lagi fyrir áramót. Það
sem pirrar mig mest er að sjálf-
sögðu að hafa dottið út úr bikam-
um en þar spiluðum við ágætan
leik í 35 mínútur en þeir eru með
allra þokkalegasta lið,
Vesturbæingar, og tóku þetta af
okkur. Eins og margsinnis hefur
komið fram vitum við að töluvert
svigrúm er til að bæta vamarleik
okkar og ég vona að endurkoma
Friðriks Stefáns hjálpi okkur
þar.”
Hvað með stöðu ykkar þjálf-
arana? Margir telja þjálfun-
arskyldurnar hafa vængstýft
ykkur sem leikmenn!
,J>að er engin spuming að þjálf-
unin hefur tekið orku frá okkur
Teit á vellinum en ég vona að
með tímanum komum við
sterkari inn, helst þó ekki seinna
en í mars. Það er aðeins að einu
að stefna hjá okkur og því er tak-
markið núna að toppa í úrslita-
keppninni en að sjálfsögðu getur
skipt töluverðu máli hvar við
lendum í deildarkeppninni og við
erum svo sem ekkert í slæmum
málum þar.einum leik frá topp-
sætinu.”
HRANNAR
Spilum gegn fimm bestu liðin í
fimm fyrstu leikjunum
„Við byrjuðum gríðarvel og
unnum öll sterkustu liðin nokkuð
örugglega í upphafi. Þá tóku
meiðsli að herja á okkur og liðið
dalaði seinni hlutann. Fjarvera
Fals hefur veikt liðið, en auk
hans hafa aðrir leikmenn átt í
leiðinlegum meiðslum sem gert
hafa Sigga þjálfara lífið erfitt.
Þrátt fyrir þetta erum við efstir í
deildinni og ánægðir með viss
atriði. Calvin er einn allra
sterkasti Kaninn sem sést hefur á
Fróni og ungu strákamir, Maggi
og Jonni, hafa sýnt skemmtileg
tilþrif. Töluverð breidd er í liðinu
og við viljum ná fyrri styrk strax
í upphafi nýs árs og eflast eftir
því sem á líður” segir Hrannar
Hólm formaður kkd. Keflavíkur.
„Fyrstu leikirnir á nýja árinu
skipta öllu máli, en við spilum
gegn fimm bestu liðunum í fimm
fyrstu leikjunum. Ahorfendur fá
því fullt af toppleikjum og
vonandi mæta þeir vel á völlinn
og styðja við bakið á strákunum.
Ef við náum hagstæðum úrslitum
í þessum leikjum eigum við góða
möguleika á að halda efsta sæt-
inu í deildinni út leiktíðina. I
bikarkeppninni mætum við
Þórsumm á sunnudaginn, en þeir
hafa fengið Mo Spillers að nýju
og verða betri fyrir vikið en við
stefnum þar á úrslitaleikinn í
Höllinni í febrúar, að sjálfsögðu.”
Meiðsli Fals, eins og þú segir,
settu strik í reikninginn. Hver
er staðan í því málinu?
„Falur er allur að braggast og við
vonumst eftir honum fullfrískum
seinni hluta janúarmánaðar.
Albert Oskars þarf hugsanlega að
fara erlendis vegna starfs síns og
gæti dottið út bráðlega.”
Hvað með breytingarnar hjá
nágrönnum ykkar, Njarðvík og
Grindavík?
„Njarðvíkingar styrkjast vemlega
með endurkomu Frikka Stef og
þeir verða eflaust sterkir í úrslita-
keppninni í vor, ef þeim tekst að
nota öll vopnin í búrinu. Fróðlegt
verður að sjá hvað nýji Kaninn
gerir fyrir Grindvíkinga. Þeir
virðast hafa misst dampinn eftir
Kjörísinn. Kim Lewis var
gríðargóður og ekki er sjálfgefið
að þeir verði betri með þeim
nýja. I dag eru sex sterk lið í
deildinni, en á endanum munu
Keflavík, Njarðvík, KR og
Tindastól! standa uppúr, en
meiðsli (eða meiðslaleysi) og
stemming munu ráða úrslitum í
baráttunni um Islandsmeistaratit-
ilinn í vor.”
Hefur þú faríð á 8 vikna námskeið í
Aðhaldshópur hjá Klddý
- fyrir alla konur og karla. Mán., mið. og fös. kl. 10.10
Barnapössun (kr. 100 fyrir barnið)
Hefst mánudaginn 8. jan. Aðeins 6 pláss laus!
20 + aðhald hjá Guðrúnu Ólafíu
- fyrir þau sem vilja losna við 20 kg. eða meira.
Mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 19.30.
Hefst mánudaginn 8. jan. Nokkur pláss laus \
Innifaliö á námskeiðunum 20+ og kl. 10.10
• Mikið aðhald.
• Mælingar, vigtun 1 x í viku.
• Matarræðið tekið i gegn.
• Fróðleiksmappa og uppskriftir.
• Púlsmælir að láni í hverjum tíma.
• 3 fastir tímar á viku + frjáls aðgangur að öðrum opnum tímum.
• Fjölbreyttir tímar og tækjakennsla.
Kjörþyngdarnámskeió
fyrir börn og unglinga (11-15 ára).
Hjá Melkorku á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum
kl. 16.30. Frábært, fjölbreytt og uppbyggjandi námskeiö. Farið
verður í mikilvægi þess að borða holla fæðu og nauðsyn þess
að hreyfa sig. Þáttakendur fá að fara í spinning, erobik, tröppur,
Fittnessbox, tæ-bó, tæki, afródans, leiki og fl. og fl.
Hefst mánudaginn 15. janúar.
Nýtt á Suðurnesjum!!!!
Aðhald með Gauja litla * Leið til léttara lífs.
Aðhaldsnámskeið sem byggir á spinningtímum hjá Guðrúnu Ólafíu
undir leiðsögn Gauja litla. Hjólað er við notalega tónlist í spinningsalnum,
þar sem engir speglar eru, dregið er fyrir glugga og þægilegt andrúmsloft
er. Það sem innifalið er í námskeiðinu er:
• Lokaðir aðhaldstímar 3 x í viku (mán. mið. og fim.
kl. 20.30), 1 x í viku.
• Frjáls aögangur að öðrum tímum, viktun.
• Ummálsmælingar í upphafi, eftir 4 vikur og í lokin.
• Ýtarleg kennslugögn með mataruppskriftum,
matardagbók og leiðbeiningum.
• Fræðslumolar.
• Fræösludagur - fyrirlestur frá hjúkrunarfræðingi,
næringarráðgjafa og heilsuráðgjafa.
• Simaþjónusta - þegar þig vantar upplýsingar.
• Og að sjálfsögðu ómetandi stuðningur
og fundir með Gauja litla.
Hefst mán. 15. janúar.
Skráðu þig í síma 420 7001.
12 vikna áskorun Lífsstíls og
K-sports hefst með kynningarfundi
fimmtudaginn 11. janúar kl. 20.
GLEEILEGT
N Ý T T Á R
15
n /, /ml