Víkurfréttir - 11.01.2001, Page 1
Utsalan hefst
á föstudaginn
kl. 10.
Nýtt kortatímabil.
galleryförðun
K E F L A V ( K
Þú sundir
á þrettándafagnaði!
- sjá bls. 24 og 25
Samtök iðnaðarins segja næstu ár kjörtíma
til tvöföldunar Reykjanesbrautarinnar:
Hægt að
spara 30%
-Reykjanesbrautin mál málanna
á borgarafundi í Stapa í kvöld
Búist er við fjölmenni og
jafnvel fullu húsi í
Stapa í kvöld þegar
borgarafundur um flýtingu
tvöföldunar Reykjanesbrautar
verður haldinn á vegum
áhugamanna um örugga
Reykjanesbraut. Meðal gesta á
fundinum sem hefst kl. 20 er
Sturla Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra. Þingmenn kjör-
dæniisins munu einnig vera
frummælendur.
„Síðustu vikur hefur hópurinn átt
viðræður við þingmenn, verktaka
og fleiri aðila sem tengjast
málinu og í framhaldi af því sett
fram raunhæfar óskir og vænt-
ingar en þær eru að tvöföldun
ljúki árið 2004“, sagði Steinþór
Jónsson, talsmaður áhugahópsins
um ömgga Reykjanesbraut.
Samkvæmt áreiðanlegum upp-
lýsingum m.a. frá Samtökum
iðnaðarins sem fara með málefni
jarðvinnuverktaka er ljóst að
engin þensla er í vegagerð núna
og hafa tilboð síðustu vikna verið
60-80% af kostnaðaráætlun.
Sérfræðingar frá samtökum
iðnaðarins fuliyrða að fram-
kvæmdatími tvöföldunar frá
Njarðvík til Hafnarfjarðar geti
verið mjög skammur og að
hámarki 18 mánuðir. Þar er átt
við vegakaflann frá Njarðvík til
Hafnarfjarðar, um 24 km. Tóku
þeir fram að kjöraðstæður væru
við Reykjanesbraut þar sem hún
liggur lágt og við sjó og í raun
kjörið vetrarverkefni. Næstu ár
væru væru vissulega rétti tíminn
til að tryggja betra verð í fram-
kvæmdina og hugsanlega mætti
spara allt að 30% af kostnaðar-
áætlun.
Steinþór segir að þingmenn
kjördæmisins hafi allir stutt við
málið þó skiptar skoðanir væru
um hve fljótt væri hægt að ljúka
verkinu. Ljóst má þó vera að
væntingar hópsins um að hægt
verði að ljúka verkinu á árinu
2004 eru mjög raunhæfar og vel
innan þess tíma sem sumir þing-
menn og framkvæmdaaðilar telja
að hægt sé að gera. Númer eitt er
að samstaða sé um málið svo
hægt sé að tryggja að fram-
kvæmdin hefjist sem fyrst“,
sagði Steinþór.
Síðdegis í gær voru tæplega átta
þúsund manns búnir að skrá sig á
undirskriftalistann til stuðnings
flýtingu tvöföldunar. Skráningin
fer fram á heimasíðu Víkurfrétta
www.vf.is. Borgararfundinum
verður útvarpað í beinni út-
sendingu á FM 87,7 sem er
sendir útvarpsstöðvarinnar Mono.
vSUBUJRV!
Ferskleiki er okkar bragð.™
40
|
Alhliða fjármálaþjónusta Tjarnargata 12 230 Keflavík Sími 421 6600 Grundarvegur 23 260 Njarðvík Sími 421 6680 Sunnubraut 4 250 Garði Sími 422 7100 Víkurbraut 62 240 Grindavík Sími 426 9000
fyrir þig og þína Fax 421 5899 Fax 421 5833 Fax 422 793! Fax 426 8811