Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.01.2001, Page 13

Víkurfréttir - 11.01.2001, Page 13
Nj arðvíkurmálinu með dómssátt lokið ✓ tgerð Njarðvíkur GK hefur faliist á dóms- sátt og greitt 350 þús- und norskar krónur í sekt vegna meintra ólöglegra veiða á smáfiski í norskri landhelgi í október í fyrra að því er fram kemur í frétt Fiskaren. Forsaga málsins er sú að eftir- litsmenn frá norsku strandgæsl- unni fóru um borð í Njarðvík úti á miðunum og á meðan þeir voru um borð í bátnum var nokkrum smáfiskum, sem komu upp með línunni, hent í sjóinn. Utgerð og skipstjóri skipsins héldu því fram að um einstakt atvik hefði verið að ræða og hefði nokkrum fiskum verið sleppt lifandi í hafið. Norska strandgæslan féllst ekki á þessi sjónarmið og voru skip- stjóri og útgerð ákærð fyrir stórfellt smáftskadráp. Magnús Daníelsson, útgerðar- maður Njarðvíkur, hélt því statt og stöðugt fram að kæran ætti ekki við rök að styðjast og sagðist myndu fara með málið fyrir dómstóla. í samtali við InterSeafood.com sagði hann að eftir að hafa skoðað málið þá væri skynsamlegast að fall- ast á dómssátt. Magnús ítrekaði að kæra norsku strandgæslunn- ar ætti ekki við rök að styðjast og það væri blóðugt að þurfa að sitja undir þessari ákæru en kalt mat segði honum að réttast væri að ljúka málinu hér og nú. Reynslan sýndi að íslenskar út- gerðir ættu erfitt með að sækja rétt sinn til norskra dómstóla. MUNUM EFTIR LÖGGÆSLU- MYNDAVÉLUNUM Löggæsla á Reykjanes- braut og tvöföldun Undirritaður man vart eftir jafn mikilli sam- kennd meðal Suður- nesjamanna eins og hugur fólks er gagnvart tvöfölclun Reykjanesbrautar. Segja má að samhugur þessi sé einstak- ur enda um að ræða gífurlegt öryggismál fyrir alla lands- menn. Svo einkennilega sem það hljómar þá hefur sex sinnum verið flutt þingsályktun um málið - studd öllum þingmönn- um kjördæmisins - en ekki náð framgangi í meðförum þings- ins. Fyrst með síðustu vegaá- ætlun tókst að fá verkið viður- kennt! Ekki fyrr en s.l. vor! Þar náðist í raun fyrsti áfangasigur í málinu. Næsta skref má segja að hafi náðst þegar samgöngunefnd af- greiddi vegaáætlun með þeim athugasemdum að stefnt yrði að því að ljúka verkinu 2006/7. Þriðji áfanginn má segja að hafi náðst við ítrekuðum spum- ingum til samgönguráðherra um vilja hans til að flýta verk- inu enn frekar. í bæði skiptin svaraði hann fyr- irspumum undirritaðs á Alþingi Hjálmar Árnason jákvætt. í þessu felast pólitískar viljayfirlýsingar. Þær opna fyrir möguleika á frekari fram- kvæmdahraða. Við útboð verksins í byrjun árs 2002 er því mikilvægt að séð verði fyr- ir verklokum með fjárveiting- um á Alþingi. Að því verki vinnur þingmannahópur Reykjaneskjördæmis. Sam- staða almennings á Suðumesj- um og eindreginn vilji sveitar- stjóma á svæðinu hljóta að létta mönnum þá vinnu. Ég tel því ástæðu til að vera bjartsýnn á að tvöföldun ljúki innan ásætt- anlegra tímamarka. Stóraukin löggæsla á Brautinni Að frumkvæði sýslumanna á Suðumesjum hefur náðst sam- komulag milli embættanna tveggja um að leggja til sér- stakt lið til eftirlits á Reykja- nesbraut. Hygg ég að margur sem ekur reglulega um veginn hafi tekið eftir því að lögreglu- bílar sjást nú oftar þar en nokkru sinni. Fyrir vikið er é'g ekki frá því að heldur hafi dregið úr umferðarhraða. Ástæða er til að fagna þessu frumkvæði sýslumanna á Suð- umesjum. Embættið á Vellin- um á einungis að sinna vamar- svæðinu og FLE. Með góðu skipulagi og einbeittum vilja gerðu embættin tvö með sér gagnkvæman samstarfssamn- ing sem miðar að þessari stór- auknu löggæslu á Reykjanes- braut. Ástæða er til að fagna þesum aðgerðum embættanna og þeirra ráðuneyta er þau heyra undir. Öfiug löggæsla er mikilsverð forvöm í umferð. Hjálmar Árnason, alþingismaður. Viltu hætta að reykja? Komdu í Apótek Keflavíkur og fáöu ítarlega, ókeypis ráögjöf sérfræöinga um leiöir til aö hætta aö reykja. Veittar veröa upplýsingar um reykingavarnir, mismunandi leiöir til reykleysis og lyf gegn reyk- ingum. Þú færð einnig upplýsingar um námskeiö og aöra meðferðarmöguleika. Apótek Keflavíkur á morgun, föstudaginn 12. janúar kl. 15 - 18. Fagmennska í fyrirrúmi Apótek Keflavíkur Sími: 421 3200 GlaxoSmithKline Samtök hjúkrunarfræðinga og Ijósmæðra gegn tóbaki íbúð óskast Heilbrigðisstofnun Suðurnesja vantar litla íbúð eða herbergi með sér baðherbergi frá 1. febrúar nk. fyrir hjúkrunarfræðing. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Heilbrigðisstofnunar í síma 422 0580. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is 13

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.