Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.01.2001, Qupperneq 20

Víkurfréttir - 11.01.2001, Qupperneq 20
Spurningin: Ætlar þú á borgarafundinn um tvöfóldun Reykjanes- brautarinnar í Stapa í kvöld? Erla Helgadóttir, bókavörður: Ég er ekki viss um að ég geti mætt en ég er búin að skrifa mig á undirskriftalistann á heimasíðu Víkufrétta, www.vf.is. Baldur Jóhann Þorvaldsson, nemi í FS: Ég veit ekki hvort ég á heima- gengt en ætli ég skrifi mig ekki á listann næst þegar ég fer á Netið. Mér líst vel á baráttuna fyrir tvö- földun en það þarf líka að breyta hugsunarhætti fólks. Ég hef oft orðið var við að sumt fólk telur sig vera ódauðlegt í umferðinni, en ég veit að það er ekki svo. Árni Einarsson, smiður: Já, ég ætla að mæta á fundinn og að sjálfsögðu skrifa ég mig á undirskriftalistann á Netinu. Valdimar Kristjónsson, smiður: Já, ég ætla að mæta og ég hyggst líka skrifa mig á listann. Mér finnst baráttan fyrir tvöföld- un mjög jákvæð. Áslaugur Einarsson, smiður: Já, ég ætla mæta en mér finnst vera kominn tími til að gera eitt- hvað við Brautina. Mér líst vel á það sem áhugahópur um tvöföld- un hefur verið að gera því það þarf að vekja þingmennina okkar til umhugsunar. „Lítum björtum augum til framtíöar" segir Sigurður Jónsson sveitarstjóri í Garði s Garðinum eru nú íbúar samkvæmt tölum Hagstofunnar frá l.des. s.l. 1209. Þar er um 2,5 % fjölgun að ræða frá síðasta ári. Ef litið er á tímabil- ið frá 1990 til 2000 hefur íbúum fjölgað úr 1074 í 1209 eða um 12,6 %, sem er næst mesta fjölgun í sveitarfélögum á Suðurnesjum. „Við horfum björtum augum til framtíðar- innar og teljum allar líkur á því að þessi þróun í átt til fjölgunar muni halda áífam á næstu árum. Einstaklingar eru að byggja og hafa sýnt áhuga á að fá lóðir til bygg- inga“, segir Sigurður Jónsson sveitarstjóri Gerðahrepps. Verktakafyrirtækið Búmenn eru byrjaðir að byggja í Utgarði og munu rísa þar tíu íbúðir. Bragi Guðmundssdon er með í byggingu nokkrar íbúðir við Lindartún og Hjalti Guðmundsson hefur fengið úthlut- aðri lóð og ætlar að byggja nokkrar íbúðir í fjölbýlishúsum. Ibúðalánasjóður hefur samþykkt að veita Gerðahreppi heimild til úthlutunar viðbótarlána ailt að 23 milljón- um. i-------------------------1 ! Stækkun ! ! Gerðaskóla! ! framundan! i „Stærsta verkefnið sem framundan er | ] hjá Gerðahreppi er að ráðast í stækkun ] i Gerðaskóla til að geta uppfyllt ákvæði i i laga um einsetningu grunnskóia“, segir i ] Sigurður Jónsson sveitarstjóri Gerða- ] ] hrepps þegar hann er spurður um fram- ] i kvæmdir á nýja árinu. „Hönnunarvinna i ] er í gangi og mun hreppsnefnd innan ] ] tíðar taka ákvörðun um framhald verks- j i ins.“ i Atvinnuástand í Garðinum hefur verið i ] nokkuð gott að undanfömu og fáir sem ] j eru á atvinnuleysisskrá. „Komi ekki til ] i verkfalla hjá sjómönnum og sjórinn gefi i i þokkalega ætti atvinnuásandið að geta ] ] orðið gott á árinu 2001“, segir Sigurður. ] i_________________________i Fjölskyldu- og félagsþjónusta Reykjanesbæjar: Hjálpumfólki til sjálfshjálpar Anæstu vikum munu starfsmenn Fjölskyldu- og félagsþjónusta Reykjanesbæjar kynna starf- semi stofnunarinnar í síðum Víkur- frétta. Starfsemi stofnunarinnar er mjög fjölþætt en meðal málaflokka sem þar eru teknir fyrir eru málefni aldraðra, fatlaðra, barnavernd, hús- næðismál o.s.frv. Hjördís Árnadóttir, félagsmáiastjóri, ríður á vaðið í þessari viku og fjallar almennt um starfsemi Fjölskyldu- og félagsþjónustunnar. Gleðilegt ár ágœtu íbúar Reykjanesbœj- ar. Eins og einhver ykkar hafa eflaust tekið eftir, hefur Fjölskyldu- og félagsþjónusta Reykjanesbæjar, lagt á það áherslu á síð- ustu árum með ýmsu móti, að kynna starfsemi sína og þá fjölbreyttu þjónustu sem bæjarbúum gefst kostur á að sækja til hennar. Með því að gera þjónustuna sýnilegri og um leið aðgengi- legri teljum við að með tímanum megi þurrka út aldagamla fordóma sem fylgt hafa einstökum þáttum félagsþjón- ustu, s.s. framfærslu og bamavemd. Við finnum að þróunin er að breytast og fólk leitar til okkar í mun ríkara mæli en áður. Sumir með einföld mál sem auðvelt er að leysa, aðrir með mun erfiðari mál sem geta tekið langan tíma og mikla vinnu, þar til viðunandi lausn er fundin. Eitt aðal markmið félagsþjónustulaganna er að sveitarfélögin hjálpi fólki til sjálfs- hjálpar með skipulögðum hætti og eftir því starfar Fjölskyldu- og félagsþjónusta Reykjanesbæjar. Þar er lögð áhersla á að hjálpa fólki til að finna leiðir til sjálfs- hjálpar. Sem lið í þeirri viðleitni að kynna þjón- ustuna höfum við, starfsmenn Fjöl- skyldu- og félagsþjónustunnar, ákveðið að skrifa stutta pistla, um ýmis málefni tengd starfsemi okkar, sem munu birtast mánaðarlega í Víkurfréttum á þessu ári. Það er von okkar að þið takið vel á móti okkur, en við munum leggja okkur fram um að taka vel á móti ykkur, þegar og ef þið leitið eftir þjónustu. Verið velkomin. Hjördís Árnadóttir, félagsmálastjóri 20

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.