Víkurfréttir - 11.01.2001, Page 22
■ Reykjanesbrautin - Borgarafundur í Stapa í kvöld:
Þú hlýtur að iie!i
Borgarafundur verður
haldinn í kvöld kl. 20:00
í Félagsheimilinu Stapa í
Njarðvík á vegum áhuga■
hóps um tvöföldun
Reykjanesbrautar. Kanna
á möguleika á flýtingu
tvöföldunar Reykjanes-
brautarinnar.
Ekki síðar en 2004
Þegar talað er um Reykjanes-
braut hér er átt við kaflann sem
liggur frá Asbraut í Hafnarfirði
og suður til Njarðvíkur. I dag
gerir langtímavegaáætlun ráð
fyrir að verkinu ljúki árið 2010.
Bent hefur verið á að verkinu
sé tæknilega hægt að ljúka mun
fyrr og í kvöld leitum við svara
við því hvað þarf til að svo
verði. Oskir okkar og vænting-
ar eru að framkvæmdum ljúki
ekki síðar en á árinu 2004.
Umferðarþunginn hefur
fimmfaldast
Ef litið er á staðreyndir um
Reykjanesbrautina var heildar-
fjöldi ökutækja sem leið átti
um Reykjanesbraut árið 1999,
rúmlega tvær og hálf milljón
en umferðarþunginn hefur
fimmfaldast síðan vegurinn var
byggður. Vegagerðin hefur
reiknað slysastuðul Reykjanes-
brautarinnar sem mun vera unt
0,36 slys á hverja milljón ekna
kílómetra. Sömu útreikningar
benda til þess að ef Reykjanes-
braut verður breikkuð í 4
akreinar með mislægum gatna-
mótum lækkar þessi stuðull úr
0,36 og niður í 0,09 eða um
75%.
A tíu ára tímabili námu heildar-
greiðslur tryggingafélaga 1,3
milljarðar fyrir slys á þessum
vegi. Ef slysastuðull er rétt
reiknaður má gera ráð fyrir að
heildargreiðslur tryggingafé-
laganna lækki um tæplega
milljarð fyrir 10 ára tímabil.
Flýting þessarar framkvæmdar
er þjóðhagslega hagkvæm
vegna þess að ekki einungis
kostnaður tryggingafélaganna
Frá vettvangi umferðarslyss
lækkar heldur einnig kostnaður
heilbrigðis- og tryggingakerfis-
ins og félagslega kerfisins þar
sem færri þurfa á örorkubótum
og umönnun að halda.
Vantar löggæslu?
Sumir hafa bent á að aukin lög-
gæsla muni koma í veg fyrir
mörg þessara slysa en um það
eru skiptar skoðanir. Arið 1998
voru að meðaltali 2,5 ökumenn
teknir fyrir of hraðan akstur
daglega, sem gera u.þ.b. 0,04%
af umferðinni. Hvort það er
mikið eða lítið skal ósagt látið.
Öll berum við jafna ábyrgð á
því að koma í veg fyrir slys.
Með því að draga úr ökuhraða
og sýna ýtrustu gætni getum
við dregið verulega úr slysa-
tíðni. Að sama skapi geta
stjómvöld lagt stóran skerf að
mörkum með aukinni lög-
gæslu, bættum vegum og öðr-
um umbótum - og það er okkar
allra að fylgja því máli eftir.
Fteykjanesbrautin ekki verst!
Menn hafa reiknað út að
Reykjanesbrautin sé EKKI
hættulegasti vegakafli landsins
og nota til þess ýmsa tölfræði.
Það er hins vegar ekki þar með
sagt að ekki sé hægt að gera
mun betur og ekki þar með
sagt að íbúar þessa lands, sem
rnjög margir aka Reykjanes-
braut vegna ferðalaga sinna til
útlanda, ætli að láta sér það
lynda að ekkert verði að gert
fyrr en alltof seint.
Svörin við því hvaða vegakafl-
ar eru hættulegastir sveiflast
milli ára eftir slysatíðni á hverj-
um stað. Mörgum er í fersku
minni alvarlegt rútuslys í
á Reykjanesbraut í síðustu viku.
Hrútafirði sem gerði þann
vegakafla svartasta kafla ís-
lenskra jyjóðvega það árið og
ekki þarf nema örfá atvik, jafn-
vel bara eitt, til að breyta jjess-
um tölum. Við biðjum ekki um
rútuslys á Reykjanesbraut til að
komast í efsta sætið á þessum
lista.
Steinþor Jónsson
Merkingum ábótavant
Staðreyndin er hins vegar sú að
Reykjanesbraut er óumdeilan-
lega einn umferðarmesti þjóð-
vegur landsins og ekkert lát er
á aukningu. Gert er ráð fyrir
10-15% aukningu ferðamanna
á næstu árum. Þeir þurfa allir
að aka um Reykjanesbraut.
Þá gerir hönnun og lega
Reykjanesbrautar ökumönnum
erfitt fyrir en óvíða er að finna
jafn margar blindhæðir og
blindbeygjur ásamt miklum
hæðarsveiflur þar sem vegur-
inn er lagður eftir landslaginu
auk þess sent vegmerkingum
virðist ábótavant.
. Þar slapp fólk án meiðsla.
Hvað er hættulegt við
Reykjanesbraut?
1. Framúrakstur er mjög hættu-
legur á Reykjanesbraut þar sem
vegsýn er mjög víða skert.
Blindhæðir og blindbeygjur eru
margar og þess vegna erfitt að
gera sér grein fyrir því hvort
óhætt er að taka fram úr eða
ekki. Ekki eru allir ökumenn
sem fara um Reykjanesbraut
daglega sammála því hvemig
staðið er að vegmerkingum og
margir telja að þeir kaflar þar
sem framúrakstur er bannaður,
þurfi að vera lengri en þeir eru
merktir í dag og þessar merk-
ingar geri ókunnum ökumönn-
um erfitt fyrir þegar meta skal
hvort framúrakstur er ömggur.
2. Umhverfi Reykjanesbrautar
er talsvert frábragðið umhverfi
annarra þjóðvega. Úfið hraunið
og brattir fláar meðfram vegin-
um gera það að verkum að við-
tökumar utan vegar eru heldur
hvassar. Þetta umhverfi kallar
á mikið eignatjón sem og al-
varlega áverka á farþegum bif-
reiðanna.
3. 136 milljónum lítra af elds-
neyti var ekið eftir Reykjanes-
braut árið 1999 í 3359 ferðum.
Flugfarþegar þurfa flestir að
fara eftir brautinni og margir í
stóram rátum. Allar vörar sem
koma inn í landið með flugi,
sem og póstur, er fluttur eftir
Reykjanesbrautinni, varlega
áætlað má gera ráð fyrir að þar
liggi 20-30 þúsund tonn.
Fiskflutningar til og frá Suður-
nesjasvæðinu eru töluverðir
svo þungaflutningar eru býsna
miklir.
4. Einhverra hluta vegna virðist
eðli umferðarinnar á Reykja-
nesbrautinni vera annað en
víða annarsstaðar. Aksturslag
sem við verðum vitni að dag-
lega, eins og t.d. þar sem þrír
bílar mætast á tveimur akrein-
um, sést ekki í jafn miklu mæli
á öðram þjóðvegum.
Klárum málið með sóma
Þegar Reykjanesbrautin var
lögð upphaflega var haft eftir
Ólafi Ketilssyni, f.v. sérleyfis-
hafa „Reykjanesbrautin er
ágæt en það vantar veginn til
baka“ og segir þessi skemmti-
lega setning meira en mörg
orð. I dag viljum við veginn til
baka.
Eg vil sérstaklega þakka
Körfuknattleikssambandi Is-
lands, og forráðamönnum
körfuknattleiksdeildar Kefla-
víkur og KR fyrir þann skiln-
ing og samstöðu sem þeir
sýndu með því að fresta stór-
leik kvöldsins sem mun í stað-
inn fara fram annað kvöld
klukkan 20:00. Þeim skulum
við sýna þakklæti okkar og
fjölmenna annað kvöld.
Það er mér persónulega mikill
heiður að hafa fengið að vinna
með þeim kraftmikla hóp sem
með ómældri vinnu síðustu
vikur hefur sýnt stuðning sinn
við tvöföldun Reykjanesbraut-
ar í verki. Það er ekki nóg að
styðja málefnin, það þarf að
VINNA og FRAMKVÆMA.
Og við - þessi hópur munum
vinna áfram og fylgja ntálinu
til enda. Því get ég lofað ykkur.
Þessi borgarafundur er vissu-
lega ekki fyrsta skrefið í átt að
tvöfaldri Reykjanesbraut, og
vissulega ekki það síðasta. En
ég trúi því og veit að þessi
fundur er og verður eitt af stóra
skrefunum jjegar upp er staðið.
Kæru landsmenn. Það er hrein-
lega skylda okkar sem styðja
flýtingu á tvöföldun Reykja-
nesbrautar að sýna samstöðu
og mæta á borgarafundinn í
kvöld. Samstaða kjósenda hlýt-
ur að hjálpa þingmönnum okk-
ar og ráðamönnum til að fylgja
málinu eftir og klára það með
sóma. Þá minni ég einnig á
undirskriftalistann á www.vf.is.
F.h. áhugahóps unt örugga
Reykjanesbraut,
Steinþór Jónsson.
FLÝTUM
tvöföldun
Reykjanesbrautar
22