Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.01.2001, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 11.01.2001, Blaðsíða 22
■ Reykjanesbrautin - Borgarafundur í Stapa í kvöld: Þú hlýtur að iie!i Borgarafundur verður haldinn í kvöld kl. 20:00 í Félagsheimilinu Stapa í Njarðvík á vegum áhuga■ hóps um tvöföldun Reykjanesbrautar. Kanna á möguleika á flýtingu tvöföldunar Reykjanes- brautarinnar. Ekki síðar en 2004 Þegar talað er um Reykjanes- braut hér er átt við kaflann sem liggur frá Asbraut í Hafnarfirði og suður til Njarðvíkur. I dag gerir langtímavegaáætlun ráð fyrir að verkinu ljúki árið 2010. Bent hefur verið á að verkinu sé tæknilega hægt að ljúka mun fyrr og í kvöld leitum við svara við því hvað þarf til að svo verði. Oskir okkar og vænting- ar eru að framkvæmdum ljúki ekki síðar en á árinu 2004. Umferðarþunginn hefur fimmfaldast Ef litið er á staðreyndir um Reykjanesbrautina var heildar- fjöldi ökutækja sem leið átti um Reykjanesbraut árið 1999, rúmlega tvær og hálf milljón en umferðarþunginn hefur fimmfaldast síðan vegurinn var byggður. Vegagerðin hefur reiknað slysastuðul Reykjanes- brautarinnar sem mun vera unt 0,36 slys á hverja milljón ekna kílómetra. Sömu útreikningar benda til þess að ef Reykjanes- braut verður breikkuð í 4 akreinar með mislægum gatna- mótum lækkar þessi stuðull úr 0,36 og niður í 0,09 eða um 75%. A tíu ára tímabili námu heildar- greiðslur tryggingafélaga 1,3 milljarðar fyrir slys á þessum vegi. Ef slysastuðull er rétt reiknaður má gera ráð fyrir að heildargreiðslur tryggingafé- laganna lækki um tæplega milljarð fyrir 10 ára tímabil. Flýting þessarar framkvæmdar er þjóðhagslega hagkvæm vegna þess að ekki einungis kostnaður tryggingafélaganna Frá vettvangi umferðarslyss lækkar heldur einnig kostnaður heilbrigðis- og tryggingakerfis- ins og félagslega kerfisins þar sem færri þurfa á örorkubótum og umönnun að halda. Vantar löggæslu? Sumir hafa bent á að aukin lög- gæsla muni koma í veg fyrir mörg þessara slysa en um það eru skiptar skoðanir. Arið 1998 voru að meðaltali 2,5 ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur daglega, sem gera u.þ.b. 0,04% af umferðinni. Hvort það er mikið eða lítið skal ósagt látið. Öll berum við jafna ábyrgð á því að koma í veg fyrir slys. Með því að draga úr ökuhraða og sýna ýtrustu gætni getum við dregið verulega úr slysa- tíðni. Að sama skapi geta stjómvöld lagt stóran skerf að mörkum með aukinni lög- gæslu, bættum vegum og öðr- um umbótum - og það er okkar allra að fylgja því máli eftir. Fteykjanesbrautin ekki verst! Menn hafa reiknað út að Reykjanesbrautin sé EKKI hættulegasti vegakafli landsins og nota til þess ýmsa tölfræði. Það er hins vegar ekki þar með sagt að ekki sé hægt að gera mun betur og ekki þar með sagt að íbúar þessa lands, sem rnjög margir aka Reykjanes- braut vegna ferðalaga sinna til útlanda, ætli að láta sér það lynda að ekkert verði að gert fyrr en alltof seint. Svörin við því hvaða vegakafl- ar eru hættulegastir sveiflast milli ára eftir slysatíðni á hverj- um stað. Mörgum er í fersku minni alvarlegt rútuslys í á Reykjanesbraut í síðustu viku. Hrútafirði sem gerði þann vegakafla svartasta kafla ís- lenskra jyjóðvega það árið og ekki þarf nema örfá atvik, jafn- vel bara eitt, til að breyta jjess- um tölum. Við biðjum ekki um rútuslys á Reykjanesbraut til að komast í efsta sætið á þessum lista. Steinþor Jónsson Merkingum ábótavant Staðreyndin er hins vegar sú að Reykjanesbraut er óumdeilan- lega einn umferðarmesti þjóð- vegur landsins og ekkert lát er á aukningu. Gert er ráð fyrir 10-15% aukningu ferðamanna á næstu árum. Þeir þurfa allir að aka um Reykjanesbraut. Þá gerir hönnun og lega Reykjanesbrautar ökumönnum erfitt fyrir en óvíða er að finna jafn margar blindhæðir og blindbeygjur ásamt miklum hæðarsveiflur þar sem vegur- inn er lagður eftir landslaginu auk þess sent vegmerkingum virðist ábótavant. . Þar slapp fólk án meiðsla. Hvað er hættulegt við Reykjanesbraut? 1. Framúrakstur er mjög hættu- legur á Reykjanesbraut þar sem vegsýn er mjög víða skert. Blindhæðir og blindbeygjur eru margar og þess vegna erfitt að gera sér grein fyrir því hvort óhætt er að taka fram úr eða ekki. Ekki eru allir ökumenn sem fara um Reykjanesbraut daglega sammála því hvemig staðið er að vegmerkingum og margir telja að þeir kaflar þar sem framúrakstur er bannaður, þurfi að vera lengri en þeir eru merktir í dag og þessar merk- ingar geri ókunnum ökumönn- um erfitt fyrir þegar meta skal hvort framúrakstur er ömggur. 2. Umhverfi Reykjanesbrautar er talsvert frábragðið umhverfi annarra þjóðvega. Úfið hraunið og brattir fláar meðfram vegin- um gera það að verkum að við- tökumar utan vegar eru heldur hvassar. Þetta umhverfi kallar á mikið eignatjón sem og al- varlega áverka á farþegum bif- reiðanna. 3. 136 milljónum lítra af elds- neyti var ekið eftir Reykjanes- braut árið 1999 í 3359 ferðum. Flugfarþegar þurfa flestir að fara eftir brautinni og margir í stóram rátum. Allar vörar sem koma inn í landið með flugi, sem og póstur, er fluttur eftir Reykjanesbrautinni, varlega áætlað má gera ráð fyrir að þar liggi 20-30 þúsund tonn. Fiskflutningar til og frá Suður- nesjasvæðinu eru töluverðir svo þungaflutningar eru býsna miklir. 4. Einhverra hluta vegna virðist eðli umferðarinnar á Reykja- nesbrautinni vera annað en víða annarsstaðar. Aksturslag sem við verðum vitni að dag- lega, eins og t.d. þar sem þrír bílar mætast á tveimur akrein- um, sést ekki í jafn miklu mæli á öðram þjóðvegum. Klárum málið með sóma Þegar Reykjanesbrautin var lögð upphaflega var haft eftir Ólafi Ketilssyni, f.v. sérleyfis- hafa „Reykjanesbrautin er ágæt en það vantar veginn til baka“ og segir þessi skemmti- lega setning meira en mörg orð. I dag viljum við veginn til baka. Eg vil sérstaklega þakka Körfuknattleikssambandi Is- lands, og forráðamönnum körfuknattleiksdeildar Kefla- víkur og KR fyrir þann skiln- ing og samstöðu sem þeir sýndu með því að fresta stór- leik kvöldsins sem mun í stað- inn fara fram annað kvöld klukkan 20:00. Þeim skulum við sýna þakklæti okkar og fjölmenna annað kvöld. Það er mér persónulega mikill heiður að hafa fengið að vinna með þeim kraftmikla hóp sem með ómældri vinnu síðustu vikur hefur sýnt stuðning sinn við tvöföldun Reykjanesbraut- ar í verki. Það er ekki nóg að styðja málefnin, það þarf að VINNA og FRAMKVÆMA. Og við - þessi hópur munum vinna áfram og fylgja ntálinu til enda. Því get ég lofað ykkur. Þessi borgarafundur er vissu- lega ekki fyrsta skrefið í átt að tvöfaldri Reykjanesbraut, og vissulega ekki það síðasta. En ég trúi því og veit að þessi fundur er og verður eitt af stóra skrefunum jjegar upp er staðið. Kæru landsmenn. Það er hrein- lega skylda okkar sem styðja flýtingu á tvöföldun Reykja- nesbrautar að sýna samstöðu og mæta á borgarafundinn í kvöld. Samstaða kjósenda hlýt- ur að hjálpa þingmönnum okk- ar og ráðamönnum til að fylgja málinu eftir og klára það með sóma. Þá minni ég einnig á undirskriftalistann á www.vf.is. F.h. áhugahóps unt örugga Reykjanesbraut, Steinþór Jónsson. FLÝTUM tvöföldun Reykjanesbrautar 22

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.