Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.01.2001, Qupperneq 30

Víkurfréttir - 11.01.2001, Qupperneq 30
Vinnupartýin eru langskemmtilegust! Maður vikunnar er frainhaldsskólaneininn Helga Guðmundsdóttir en eins og Ilestir hafa orðið var- ir við |)á lauk löngu verkfalli frainhaldsskóla- kennara sl. mánudag. Helga hefur verið að vinna í verslun- inni Fíakaup í Njarðvík með skólanuin og á nieðan verk- lállinu stóð. Hún segist vera sátt við að vera byrjuð aftur í skólanuin en það sé ekki eins gaman að fá ekki lengurað sofa út. Nafn: Helga Guðmundsdóttir Fædd hvar og hvenær: 27. i I 1980, Keflavík en er samt úr Njarðvík. Stjörnumerki: Bogamaður Atvinna: Er á hárgreiðslubraul í FS og starfa í Fíakaup með skóla Laun: Venjuleg lágstéttarlaun Maki: Enginn Börn: Engin Bifreið: Suzuki Swift Besti hfll: Súkkan Versti hfll: Lada Spoit Uppáhaldsmatur: Skata og pizza Versti matur: Túnfiskur Besti drykkur: Fresca Skemmtilcgast í umferðinni: Þegar það eru almennilegir bíl- stjórar á ferðinni sem eru tillitssamir Leiðinlcgast í umlérðinni: Umlérðarteppa og Reykjanesbrautin Gæludýr: Ekkert Skenmitilegast í vinnunni: Fólkið sem cg vinn með og vinnupartýin Leiðinlegast í vinnunni: Þegar það er ekkert að geru Hvað kaiintu hest að meta í fari fólks: Jákvætt og hresst fólk En verst: Óheiðarlegt og neikvætt lólk Draumastaðurinn: Hallormsstaður llppáhalds líkamshluti á konum/kiirlum: Augun Fallegasta kona/karl fyrir utan maka: Systur mínar Spólan í tækinu: Engin eins og er Bókin á nátthorðinu: Draumaráðningabókin Uppáhalds blað/tímarit: Vikan og Séð og heyrt Besti stjórnniálaniaðurinn: Enginn yppáhaldssjónvarpsþáttur: Friends íþróttafélag: UMFN Upiiáhaldskenmitistaður: Fnginn sérstakur Þægilegustu liitin: Gallabuxur og peysa Franitíðaráform: Klára hárgreiðsluna Storleík frestað tíl morguns Ef ekki gengur í fyrstu tilraun, kannski tuttugustu og fyrstul Njarðvíkingar unnu öruggan sigur á Tindastól 88-72 í Ljónagryfjunni í vikunni í ein- um heilsteyptasta leik vetrar- ins. Fastur liður að sögn Vals Ingimundarsonar þjálfara Sauðkræklinga sem finnst hans menn almennt ekki koma suð- ur í Njarðvík með nægilegan sigurvilja í farteskinu. Fyrir einn leikmann var sigurinn afar sérstakur, hans íyrsti á tímabil- inu. Friðrik Stefánsson, mið- herji Njarðvíkinga, lék nefni- lega í fyrsta sinn í sigurliði eftir að hafa tapað tuttugu í röð með finnska liðinu Lappenranan fyrir áramót. Calvin hélt Keflavík á toppnum Keflvíkingar sátu þægilega á öxlum Calvins Davis í Hafnar- firði og unnu Hauka naumt 74-75. Hr. Davis ( 36 stig, 15 fráköst og 3 varin skot) átti enn einn stórleikinn en hlutfall hans í sóknarleik Keflvfkinga er ógnvænlegt. Það að einn leik- maður geri 48% stiganna og taki 45% frákastanna (75% varinna skota) er óhollt hlut- fall.Grindvíkingar áttu sér margan gagnrýnandann á síð- ustu leiktíð, meðal annars fjöl- marga Keflvíkinga, og var of stór þáttur Brentons Birming- hams í öllum aðgerðum liðsins helsta bitbeinið. Mér sýnast Keflvíkingar vera komnir í sömu stöðu. Aður en menn gnýsta tönnum þar á bæ yfir skotinu, þá minni ég á að Grindvíkingar urðu bikarmeist- arar og komust í úrslit deildar- innar. Persónulega, og ekki misskilja mig, segi ég:„ „Takið ráð Skúla og ríðið Sörla eins langt og þörf er því mestar lík- ur eru á að hann skili ykkur heilum heim þótt eitthvað verði hann orðinn tuskulegur á loka- sprettinum." Sá nýi tlugði vel gegn Val/Fjölni! Grindvíkingar hófu árið í dálít- illi óvissu þó ekki haft þeir far- ið hátt með það. Kim Lewis spilaði stórt hlutverk, bæði í sókn og vörn, og óvissa um hvemig Kevin Daley (óskyldur tugþrautarkappanum fræga) passaði í hlutverkið. Sigur vannst í Grafarvoginum 69-83 og Daley setti niður 24 stig, tók tólf fráköst og sendi 5 stoðsendingar. Skopparinn Daley VF hafði samband við Eyjólf Guðlaugsson, stjórnarmann kkd. Grindavíkur og föður Guðlaugs Eyjólfssonar, og fékk hann til að taka út sinn mann Kevin Daley eftir fyrstu leik- ina. „Hann er ekki í 100% formi miðað við þær kröfur sem við gerum til atvinnu- mannanna okkar en þetta er feykilegur iþróttamaður, hopp- ar og hleypur á við þá bestu sem hingað hafa komið. Hann stóð sig ágætlega gegn Val/Fjölni og var líka með fínar tölur í bikamum gegn Skagan- um þótt sá leikur hafi verið lítt marktækur. Hann er 197-8 cm og 93 kíló sem ágætt þótt hann sé frekar léttur. Hann minnir í mörgu á Rodney Dobart sem var héma fyrir nokkrum árum nema ef eitthvað er þá hoppar piltur enn hærra. Þetta er ungur strákur með mikla orku sem gaman er að fylgjast með.“ Síðasti leikur Alberts? Keflvíkingar og Grindvíkingar tryggðu sig í undanúrslit bikar- keppni KKI & Doritos með sigmm á Þór og IA. Eina mark- verða við leikina er Keflavíkur- megin en samkvæmt yfirlýs- ingu Alberts Oskarssonar í fjöl- miðlum lék kappinn þar sinn síðasta leik. Sjáum hvað setur en ef rétt er þá er missir af pilti bæði sem körfuknattleiksmanni og sem karakter. VF mun reyna að fylgjast með Albert í víking í Saudi en þangað heldur hann til vinnu innan skamms. Kærar þakkir KKÍ! Bikardráttur undanúrslita bik- arkeppni KKI og Doritos fóm fram í beinni á Sýn á þriðju- dagskvöld og gat hreinlega ekki farið betur. Kærar þakkir Pétur Hrafn og KKÍ af Suður- nesjum! Heimaleikir á línuna. I karlaboltanum mæta Keflvík- ingar Hamarsmönnum og Grindvíkingar fá ÍR í heimsókn en leikirnir fara fram sunnu- daginn 4. febrúar. Keflavíkur- stelpurnar mæta spútnikliði KFI laugardaginn 3. febrúar. Öll liðin í úrslit, engin spum- ing. Frestað vegna borgarafundar Leikið verður í Epson-deildinni í kvöld. Keflvíkingar áttu að leika við KR en þeim leik var frestað til annars kvölds, þ.e. á morgun, fóstudag kl. 20 vegna borgarafundarins. Umferð í Reykjanesbæ REYKJANESBÆR TJARNARGÖTU 12 230 KEFLAVÍK Samkvæmt tillögu bæjarráðs og aðfengnu samþyklii Sýshunannsins íKcflavík hafa verið ákveðnar eftirtaldar breytingará umferð í Reykjanesbæ: 1. Að Sunnubraut verði lokað við Holtaskóla, frá kl. 8:00 tilkl. 15:00 alla virka daga sem grunnskólarstarfa. 2. Að liámarkshraði á Sunnubraut milli SkólavegarogFaxabrautar verði 30 km/klst. 3. Að hámarkshraði á bifreiðastæði við Reykjaneshöll verði 15km./klst. Þessarbreytingartakagildi mánudaglS.jan. 2001 kl: 8.00 Bæjarstjóri. 30

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.