Alþýðublaðið - 13.12.1919, Page 4
4
álÞýðubláðið
cflllar jólavörur
fáið þér beztar og ódýrastar í
cyHaupfélacji verfiamannaf
Laugaveg 22 A. Sími 728.
X. O. O. T.
Umdæmisstúkan nr. 1
heldur fund á morgun kl. 5 e. h. í G.t.-húsinu í
Reykjavík. Auk venjulegra mála verður rætt um
næstu bæj arstjórnarkosnin gar.
Sitt hvað úr
sambandsríkinu.
Fríhöfnin I Kaupm.höfn.
í fyrra mánuði voru liðin 25
ár síðan Fríhöfnin í Kaupmanna-
höfn var opnuð til notkunar fyrir
skip, og var þá mikið um dýrðir
þar, því jafnftamt áttu margir
starfsmenn hennar 25 ára em-
bættisafmæli.
Ljótar aðfarir.
Daginn eftir að járnbrautarslys-
ið varð hjá Vigerslev kom í ljós
að stolið hafði verið af sumum
þeim er orðið höfðu fyrir slysun-
um. Af einum, sem var í andar-
slitrunum þegar hann var borinn
burt frá vagnarústunum, var stol-
ið 2000 kr., sem hann hafði á sér.
Böndin bárust brátt að manni,
sem Verhein hét, og var allþekt-
ur sem kappreiðamaður á hjóli.
Dýrt hrennivín.
Maður nokkur, Harald Jensem
að nafni, stal brennivínsflösku
sama daginn og honum var hleypt
út úr betrunarhúsinu, en þar hafði
hann verið í 18 mánuði, dæmdur
fyrir þjófnað.
Nú er álitið að hann verði
dæmdur í minst 18 mánaða betr-
unarhússvist á ný, fyrir brenni-
vínsstuldinn. Það má því segja,
að þetta sé dýrt brennivín, og
það ekki eingöngu fyrir manninn,
þeldur einnig fyrir danska ríkið,
sem verður að kosta uppihald
og gæzlu hans í betrunarhúsinu,
sem á 18 mánuðum nemur varla
minna en 2000 kr. Hvenær ætli
að menn hætti annars að „betra"
afbrotamenn á þann hátt, sem
nú tíðkast?
Smámynt úr nihhel.
í ráði er að danska ríkið gefr
út smámynt (10, 25 og 50 eyr-
inga) úr nikkel í stað silfurs.
Komið hefir til mála, að slá þá
nýja smámynt, 15 eyringa; er
talið að þeirra sé mikil þörf, til
þess að flýta fyrir afgreiðslu, nú
eftir að alment burðargjald í Dan-
mörku og sporvagnagjöld í Khöfn
hafa verið hækkuð upp í 15 aura.
Dm iagjfln og ?egian.
Ný kvæðabók. Margir kannast
við Davíð Stefánsson frá Fagra-
skógi, vegna kvæða þeirra, er
birzt hafa eftir hann nú síðustu
árin, og er engin furða, þvíkvæð-
in hans hafa vakið eftirtekt. Mjög
bráðlega, jafnvel fyrir jólin, kem-
ur út heil kvæðabók eftir þetta
unga, en mjög efnilega skáld, sem
sagt er að Stephán G. Stepháns-
son hafi sagt um, að kvæðin hans
væri líkari kvæðum þaulæfðs skáld-
mærings, en ungs manns á lista-
brautinni. Vafalaust verður kvæða-
bókin hans Davíðs kætkomin öll-
Linnr flókahattur fund-
inn á götunni. Vitjist á afgr. Alþbl.
Fyrír jólin þurflð þér að
láta „lakkera" olíuofnana yðar á
Laugaveg 27.
Jólagjaiir. Stofuprýði.
Myndir
— innrammaðar — af Jóni Sig-
urðssyni forseta, Matth. Joch-
ums8yni, Jónasi Hallgrímssyni,
Yaldimar Briem o. fl. eru til
sýnis og sölu á afgreiðslu Alþýðu-
blaðsins. — Verðið lágt. — Heppi-
Jegar jólagjafir við hvers manns hæfi.
um, einkum þó unga fólkinn, og
jólagjöf verður hún hin bezta.
Stúdentafélag Háskólans hélt
fund í gær til þess að íæða um
stúdentabústað. Hóf Ingólfur Jóns-
son, stud. juris umræður og benti
á þörfina á því, að reisa náms-
fólki yfirieift bústað eða bústaði.
Var auðhoyrt á fundarmönnum,
að áhuginn fyrir því, að þetta
afarnauðsynlega mál komist sem
fyrst í framkvæmd, er þegar vakn-
aður. Enda er það varlá furða,
þar sem nú mun svo ástatt, að
sumir stúdentar eru svo að segja
á götunni, Nefnd var kosin í mál-
ið til þess að halda því vakandi,
og verður það vonandi til þess,
að hrinda málinu áleiðis á ein-
hvem heppilegan hátt.
»(xulifoss<( kom í morgun og
hefir hann tafist furðulengi á
Vestfjörðum, og er það að von-
um, þegar litið er á hve afgreiðsla
er oft léleg, þar sem skip koma
sjaldan.
í Hafnarfirði hefir fólkinu
fjölgað um 100 siðastliðið ár, og
lítur út fyrir að bærinn sé að
byrja að stækka aftur eftir kyr-
stöðuna á stríðsárunum. Nú sem
stendur er næg atvinna í bænuni
og er meðal annars verið að smíða
þar allmörg hús. Kaupgjaldið mun
pað sama og hér.
Riös tjóri og ábyrgðarmaður:
Ólafur Friöriksson.
P.tntsmiðjau Gutenberg.