Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.07.2001, Side 9

Víkurfréttir - 26.07.2001, Side 9
í Grænadal eru komnir út í nýrri barnabók: nbalóog álfamir mnadal Bókin Álfamir í Græna- dal eftir Hólmfríði Snorradóttur úr Njarð- vík er komin út. Bókin fjallar um álfana í Grænadal en hel- stu hugarefni þeirra er dal- urinn og fjölskyldan. Hugmyndinn að Bambaló búálf, sem er aðalpersóna bók- arinnar, fæddist fyrir nokkrum ámm þegar Hólmfríður samdi ljóð um þennan káta álf. Seinna meir varð sagan um álfinn að leikriti. „Frændi minn var að gifta sig og vantaði skemmtiatriði fyrir bömin. Ég vissi af því að bróðir hans hafði verið að leika og ákvað að semja leikþátt um Bambaló búálf þó ljóðið um hann væri fyrir löngu týnt“, segir Hólm- fríður. Viðtökumar sem leik- þátturinn fékk voru mjög góðar og bömin spurðu sífellt um Bambaló. „Dóttir mín ýtti á mig að skrifa meira um Bambaló og ég skrifaði ýmsar sögur hér og þar í stflabækur.“ Það var þó ekki fyrr en veik- indi gerðu vart við sig að bókin fór að fæðast. ,,A meðan ég beið eftir að fara í uppskurð setti sonur minn söguna inn í tölvu. Síðan fór ég að mála en ég hafði farið á námskeið í Baðstofunni og teikninám- skeið“, segir Hólmfríður sem var þó ekki sátt við myndimar. „Mér fannst ég ekki nógu góð að teikna og var að tala um það við ffænda minn. Sonur hans sagði þá: ,JEg get teiknað, ég get teiknað.“ Eg ákvað að hugsa eins og hann og teikna mínar myndir eins og ég vildi hafa þær“, segir Hólmfríður sem hafði haft bókina í hugan- um í þrjú ár. Smátt og smátt varð síðan til bók. Sonur Hólmfríðar stakk þá upp á því að fá Víkurfréttir til að undir- búa bókina undir prentun. Vinnan við bókina var þó mun meiri en Hólmfríður hafði gert sér í hugalund. Boðskapur bókarinnar nær vel til barna í upphafi nýrrar aldar: Hugsaðu vel um náttúruna og fjölskyldu þína og hugsaðu já- kvætt. Það er það sem álfamir í Grænadal gera, álfamir í Langadal hafa hinsvegar hætt að hugsa um náttúmna og þar er umhverfíð ekki fallegt. Að lokum vinna allir saman og þá fær sagan skemmtilegan endir. Hólmffíður á sjálf þrjú upp- komin böm sem öll hafa tekið þessu uppátæki vel en þau fengu oft að heyra sögur hjá mömmu. Dóttursonur Hólm- fríðar hefur fengið að heyra söguna um Álfana í Grænadal og líkar hún vel. Bókin er nú þegar komin í verslanir á höf- uðborgarsvæðinu og er vænt- anleg í verslanir um allt land. Hólmfríður sér sjálf um útgáfu bókarinnar en texti og teikning- ar em eftir hana. Fleiri bækur em ekki á dagskránni í bráð hjá Hólmfríði en hún vill ekki loka alveg á þann möguleika, það er aldrei að vita hvað framtíðin ber í skauti sér. svandis@vfis www.lyfja.is in- þéttnimæling Griridvíkirigar Bjóöum upp á beinþéttnimælingu í Lyfju Grindavík mánudaginn 30. júlí og þriðjudaginn 31. júlí. Mælingin er framkvæmd af hjúkrunarfræðingi og tímapantanir eru í síma 426 8770. Beinþéttnimælingin erframkvæmd í samvinnu viö Beinvernd og rennur hluti af gjaldinu, sem tekið er fyrir mælinguna, til Beinverndar. Mælingin kostar 750 kr. í TVF um miðja næstu viku! Mikil verðlækun.... allt að 80% afsláttur galleryförðun K E F L A V I K Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is 9

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.