Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.07.2001, Qupperneq 14

Víkurfréttir - 26.07.2001, Qupperneq 14
Garðar Andrésson Fæddur 20. mars 1935 Dáinn 5.júlí2001 Hví ert þú horfinn, ó ástvinur minn? sem hjarta mitt áttir, nú söknuð ég finn. Því enginn í veröld það gæti mér veitt er veittir þú mér, ó við unnumst svo heitt. Og brosið þitt bjarta var fagurt og hlýtt er bauðstu mér faðm þinn, mér fannst allt svo nýtt. Þú hjarta mitt sigraðir hljóðlega þá. Þér helga ég líf mitt, uns fölnar mín brá. Frá mörgu er að minnast þó stutt væri stund er máttum við njótast á jarðneskri grund. Þær minningar geymi með gleði hjá mér því gleði og hamingju fékk ég hjá þér. Þó dauðinn nú kveði sinn kveljandi dóm á kyrrlátum degi við klukknanna óm. Við sjáumst samt aftur til eilífðar þá já sorganna myrkur þá hverfur mér frá. Ó pabbi minn kæri við kveðjum þig nú og kossa þér sendum með kærleik og trú, við þakka viljum þér pabbi minn er veikri hendi þú straukst okkar kinn, við kveðjum þig öll í hið hinsta sinn þú hjartkæri faðir og maðurinn minn. Við klukknanna óma við kveðjum þig hljótt. Með kossi við bjóðum þér góða nótt. Kveðja frá eiginkonu og börnuni. Innilegar þakkir færum vid öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa Sighvats Jóns Gíslasonar, Aðalgötu 5, Keflavík Sérstakar þakkir til starfsfólks á Garðvangi fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Ingveldur Hafdís Guðmundsdóttir Gísli Steinar Sighvatsson ÓlöfSteinunn Ólafsdóttir Sigrún Sighvatsdóttir Karl Georg Magnússon Steinunn Sighvatsdóttir Gunnar Þórarinsson Guðmundur Ómar Sighvatsson Kristín Haraldsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Keflavík og Grindavík slegin úr bikarnum! Grindvíkingar töpuðu heimaleik sínum gegn Fylki í 8 liðum úrslitum Coca-Cola bikarsins og féllu þar með úr keppninni. Við leikslok var staðan 1-1 en Ólafur Stígsson átti fyrsta mark leiksins fyrir Fylkismenn á 52. mínútu. Markið hleypti Grind- víkingum upp og einungis mín- útu seinna jafnaði Óli Stefán Flóventsson munin. I fram- lengingunni kom Gunnar Þór Pétursson gestunum yfir með skoti utan vítateigs á 97. mín- útu. Fylkismenn tryggðu síðan sigur sinn þegar Steingrímur Jóhannesson skoraði þriðja mark Fylkis á 119. mínútu leiksins. Öll Suðumesjaliðin em því dottin út úr keppninni um Coca-Cola bikarinn. KA sló út Keflavík Keflvíkingar eru fallnir úr keppninni um Coca-Cola bik- arinn eftir 2-1 tap gegn 1. deildarliði KA á Akureyri. Keflvíkingar voru sterkari í byrjun leiks en KA-menn rifu sig upp jtegar nokkuð var liðið á fyrri hálfleik. Þprvaldur Mak- an Sigbjömsson skoraði mark á 38. mínútu en það mark var dæmt af vegna hendi. I seinni hálfleik komu heimamenn sterkir inn á og Gunnleifur Gunnleisson mátti hafa sig all- an við í markinu. Þegar leið á leikinn komust Keflvíkingar að komast inn í leikinn og á 78. mínútu komust gestimir yfir með marki frá Hauk Inga Guðnassyni en stuttu seinna jafnaði Elvar Sigurþórsson. A 87. mínútu kom Þorvaldur Makan Sigurbjömsson heima- mönnum yfir þegar hann skor- aði sigurmarkið. Grétar Hjartarson í slag við Þórhall Dan um boltann í leik Grindavíkur og Fylkis fyrir síðustu helgi sem endaði með 0:4 sigri Fylkis. Bikarleikurinn endaði með 1:3 sigri Fylkis. Páll skaut 73 dúfun í blíðunni Fyrsta innanfélagsmót Skotdeildar Keflavíkur var haldið í blíðskapar veðri í síðustu viku á svæði félagsins. Menn komu vel undan vetri og skaut Páll Guðmundsson 50 dúfur en alls voru 75 dúfur skotnar. Urslit urðu þessi: Páll Guðmundsson 73 dúfur Guðni Pálsson 68 dúfúr Guðmundur B. Guðlaugsson 66 dúfur Ami Pálsson 65 dúfur Guðmundur Oskarsson 65 dúfur f Jafn leikur Grindavíkur og FÍI | Stelpumar úr meistaradeildarliði Grinadvíkur mættu ] FH-stúlkum í Grindavík fyrir helgi. Leiknum lauk ] með 1-1 jafntefli. i Erla Dögg Sigurðardóttir mark á 11. mínútu og kom Grindvík- ] ] ingum yfir. Eftir mark Grindvíkinga færðist heldur betur fjör í ] ] leikinn og á 31. mínútu náðu FH-stúlkur að skora með marki ] i Silju Þórðardóttur. í seinni hálfleik áttu bæði liðin nokkur færi i ] en ekkert þeirra endaði með marki. Grindvíkingar eru nú í 5. ] ] sæti Símadeildarinnar með 11 stig, næsti leikur liðsins er við ] ] Val miðvikudaginn 8. ágúst í Hlíðarenda. i_________________________________________________i 14

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.