Víkurfréttir - 24.01.2002, Blaðsíða 13
HÖFUÐSTÖÐVAR DHLTIL KEFLAVÍKURFLUGVALLAR
mOÆSLAN
tougæsuh
Aðstaöa Flugþjónustunnar á
Keflavikurflugvelli er glæsileg.
DHL á íslandi og Flug-
þjónustan Keflavíkur-
flugvelli (IGS) hafa und-
irritað þjónustusamning sem
boðar nýja og spennandi tíma
fyrir DHL og viðskiptavini fyr-
irtæksins, segir Þórður Kol-
beinsson framkvæmdastjóri
DHL á ísandi.
Samningurinn sem tók gildi um
síðustu áramót felur í sér að
DHL flytur aðal vörudreifingar-
og móttökustöð sina frá Reykja-
vík í hina nýju og glæsilegu
Fraktmiðstöð Flugþjónustunnar á
Keflavíkurflugvelli og opnar
skrifstofu í Fraktmiðstöðinni en
áfram verður vöruafgreiðsla í
Reykjavík auk aðalskrifstofu.
Þórður Kolbeinsson, fram-
kvæmdastjóri DHL á Islandi,
sagði við undirritunina að á-
kvörðunin um að flytja starfsem-
ina til Keflavikurflugvallar boði
nýja og spennandi tíma fyrir fyr-
irtækið og viðskiptavini þess.
Framvegis yrði hægt að bjóða
hraðari þjónustu en áður enda
færu sendingar beint í dreifingu
til móttakanda frá Fraktmiðstöð-
inni á Keflavíkurflugvelli án við-
komu í öðru vöruhúsi i Reykja-
vík eins og áður var. Þetta spar-
aði viðskiptavinum DHL tíma og
byði upp á betri og öruggari
vörumeðferð. Þessi breyting geri
DHL einnig mögulegt að bjóða
upp á nýja virðisaukandi þjón-
ustuþætti, til dæmis TDD (Time-
Definite-Deliveries) sem felur í
sér tvo þjónustumöguleika þ.e
öruggar afhendingar fyrir kl
09:00 eða fyrir kl 12:00 daginn
eftir í helstu löndum Evrópu og
stæði til að innleiða þá þjónustu í
byijun næsta árs.
Gunnar Olsen framkvæmdastjóri
Flugþjónustunnar á Keflavíkur-
flugvelli sagði það mikið á-
nægjuefni að samningar hefðu
tekist við DHL. Þessi samningur
félli mjög vel að stefnu fyrirtæk-
isins um að byggja upp og efla
alla þjónustu við flugfélög, hrað-
flumingafyrirtæki og flutnings-
miðlara í Fraktmiðstöðinni. Þetta
væri annar samningurinn sem
væri undirritaður eftir að nýja
Fraktmiðstöðin opnaði í ágúst á
þessu ári en nú þegar hefði verið
gengið frá samningi við Flug-
Auglýsingasíminn
er 421 4717
leiðir Frakt um leiguhúsnæði og
vöruhúsaþjónustu í miðstöðinni.
Gunnar sagði að sýslumanns-
embættið væri búið að opna toll-
skrifstofur í miðstöðinni og byði
uppá að ganga frá öllum tollaf-
greiðslum þar. Nýja fraktmið-
stöðin er opin allan sólarhringinn
alla daga ársins.
Gunnar Olsen fram-
kvæmdastjóri Flugþjónust-
unnar á Keflavikurflugvelli
og Þórður Kolbeinsson,
(framkvæmdastjóri DHL á ís-
landi handsala samninginn.
Heilbrigðisstofnun Suðumesja
Eldhús, Keflavík
ATVINNA
Laus er til umsóknar 60% staða nú þegar
við eldhús Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
í Keflavík. Reynsla æskileg.
Laun samkvæmt kjarasamningi Verkalýðs-
og sjómannafélags Keflavíkur og nágr. og
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Eiríksson,
matreiðslumaður í síma 422 0500.
Umsóknir þurfa að berast sem fyrst til
skrifstofu HSS, Mánagötu 9,230 Keflavík.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og umhverfi
hennar er reyklaus vinnustaður.
Framkvæmdastjóri.
GOÐ LEIÐ ftÐ BETRI HEILSU
HVERNIC VfERI AÐ
PROFR EITTHVRÐ NYTT?
fl mánudögum, þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 18.45 standa
til boða æfingar í Sundhöllinni
sem skiptast í vatnsleikfimi
og sundæfingar.
Gott tækifæri til að bæta
sundkunnáttuna og læra
almennilega skriðsund o.fl.
Hörkugoð lxkamsrækt
fl sömu dögum kl. 20.15 f
sundmiðstöðinni eru svo æfingar
fyrir fyrrverandi sundmenn.
Gott tækifæri til að rifja upp
gamla takta og taka duglega á.
Innritun verður föstudaginn
25. JANUAR 2002 MILLI KL. 17 OG 19
í K-HUSINU VIÐ Skolaveg.
UPPLYSINGAR í SÍMA 849 9039.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Eldhús,Víðihlíð Grindavík
ATVINNA
Laus er til umsóknar 65% staða við eldhús í
Víðihlíð, Grindavík frá og með I .mars 2002.
Laun samkvæmt kjarasamningiVerkalýðsfélags
Grindavíkur og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Nánari upplýsingar veitir Bylgja Björk
Guðmundsdóttir verkstjóri, í síma 426 7602.
Umsóknir þurfa að berast fýrir 15.febrúar 2002.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og
umhverfi hennar er reyklaus vinnustaður.
Framkvæmdastjórl.
Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is
13