Víkurfréttir - 24.01.2002, Blaðsíða 4
VIKUR
FRÉTTIR
Utgefandi:
Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319,
Grundarvegi 23, 260 Njarðvik
Simi 421 4717 (10 línur)
Fax 421 2777
Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sínri 893 3717 pket@vf.is
Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 898 2222 hbb@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri: Jónas Franz Sigutjónsson, franz@vf.is
Auglýsingar: Kristín Njálsdóttir kristin@vf.is,
Jófriður Leifsdóttir, jofridur@vf.is
Blaðamaður: Kristlaug Sigurðardóttir, kristlaug@vf.is, simi 691 0301
Hönnunarstjóri: Kolbrún Pétursdóttir kolla@vf.is
Hönnun/umbrot: Kolbrún Pétursdóttir kolla@vf.is,
Skarphéóinn Jónsson skarpi@vf.is, Hilmar Bragi Bárðarson hbb@vf.is
Skrifstofa: Stefania Jónsdóttir, Aldís Jónsdóttir
Útlit, umbrot og prentvistun (pdf): Vikurfréttir ehf.
Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. / Dreifing: íslandspóstur
Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og vikurfrettir.is
Aðrir fjölmiðlar Víkurfrétta ehf. eru: Timarit Vikurfrétta,
The White Falcon og Kapalsjónvarp Víkurfrétta.
Harður árekstur
Allharður árekstur varð á mótum Reykjanesbrautar og Hafnarveg-
ar um klukkan 07.30 sl. fostudagsmorgun.
Tildrög slyssins voru óljós en flytja þurfti ökumann annars bílsins
og farþega á sjúkrahús með sjúkrabíl og báðir bílamir vora dregnir
af vettvangi með kranabíl. Þorvaldur Benediktsson, hjá lögregl-
unni í Keflavík, segist ekki vita hvort hálka hafi valdið slysinu, en
það getur verið launhált í svona tíðarfari.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma,
dóttir, systir og mágkona
Sigurborg Jónsdóttir,
Heiðahvammi 8g,
Kefiavík
sem lést 16. janúar síðastliðinn,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 25. janúar kl. 14.
Stefán Hannes Ægisson,
Jón Ægisson, Súsanna Valsdóttir,
Ástþór Ingi Jónsson,
Berglind Jónsdóttir,
Jón B. Hannesson, Fanney Hjartardóttir,
Eðvarð T. Jónsson,
Karl Taylor, Ása Skúladóttir
Bjarnfríður Jónsdóttir, Pétur Vilbergsson.
GATNAMÓT VIÐ AÐALHLIÐ
Prófkjör Samfylkingar-
innar í Reykjanesbæ
Ég undirritaður hef ákveðið að
gefa kost á mér í eitt af efstu sæt-
um framboðslista Samfýlkingar-
innar fyrir bæjarstjómarkosning-
arnar í vor. Opið prófkjör um
skipan listans verður haldið 23.
febrúar næstkomandi.
Markmiðið með framboði mínu
er að taka virkari þátt í mótun
samfélagsins til hagsbóta fyrir
einstaklinga og fjölskyldur í bæj-
arfélaginu. Ég hef mikinn áhuga
á mennta- og atvinnumálum,
þannig að saman fari gerjun og
gróska í atvinnulífinu og upp-
bygging á traustu félagslegu um-
hverfi. A næstu vikum mun ég
gera betur grein fyrir hugmynd-
um mínum og áherslum í bæj-
arpól itíkinni.
Hér býr gott fólk og möguleik-
arnir til almennrar velmegunar
eru miklir. Reykjanesbær verður
að geta boðið umgjörð um ný-
sköpun atvinnulífs og félagslegr-
ar þjónustu í umhverfisvænu
samfélagi sem gerir það eftir-
sóknarvert að búa hér og starfa.
Fyrir því mun ég betjast og óska
eftir stuðningi bæjarbúa til þess.
Skúla Thoroddsen,
forstöðumaóur Miðstöðvar
simenntunar ú Suðurnesjum.
Miklar fjárfestingar
Fyrsta umræða um fjár-
hagsáætlun Sandgerðis-
bæjar fór fram nýlega
og önnur umræða var í gær.
Fjárhags- og starfsáætlanir
voru unnar sem rammaáætl-
anir og er það svipað fyrir-
komulag og viðhaft var á síð-
asta ári. Skuldir bæjarins
aukast ekki, og er jafnvel útlit
fyrir að tekjur aukist, þó ekki
sé gert ráð fyrir hækkun á
álagningaprósentu útsvars
sem verður óbreytt eða
12,6%. Þá er ráðgert að
lækka álagningahlutafall
fasteignaskatta niður í það
horf sem þeir voru í árið
2000. Skatttekjur ársins eru
áætlaðar rúmar 400 miiljónir
og í áætluninni er gert ráð
fyrir að 79% tekna bæjarins
renni til reksturs. Fræðslu-
mál eru fjárfrekasti útgjalda-
liðurinn, og áætlað er að lið-
lega 37,4% fari til þeirra eða
um 140 milljóniraf heildar-
tekjunum. Helstu fjárfesting-
arnar tengjast líka fræðslu-
málum, þannig verður 37,5
milljónum varið til fram-
kvæmda við grunnskólann
þannig að hægt verði að ein-
setja skólann og gera vinnu-
aðstöðu starfsmanna betri.
Til stækkunnar leikskólans
verður varið 24 milljónum,
en inni í þeirri tölu eru einnig
fjármunir til búnaðarkaupa
fyrir ieikskólann. Um það bil
25 milljónir fara í gatnagerð,
holræsagerð og til gerðar
gangbrauta.
SUMARLEYFI Á KRISTNIHÁTÍÐ FYRIR DÓMSTÓLA
Var heimilt að taka frí á kristnihátíð
Lögreglumaður sem starf-
aði við lögregluembættið í
Keflavík og var veitt á-
minning fyrir að mæta ekki til
vinnu kristnihátíðarhelgina 1.
til 2. júlí 2000 hefur fengið á-
minninguna fellda úr gildi.
Málsatvik eru þau að umræddur
lögreglumaðum hafði bókað sig í
sumarftí frá28.júní til 14. júlí og
hafði keypt sér ferð til útlanda
þennan tíma. Síðar fékk yfirmað-
ur mannsins þau boð að bannað
væri að fara í ffí á þessum tíma
og gerði maðurinn sem hann gat
til að flýta utanlandsferðinni og
vera kominn til baka fyrir kristni-
hátíðarhelgina en það gekk ekki
eftir.Yfirlögregluþjónninn í
Keflavik lagði fram íista í byijun
júní yfir þá lögregluþjóna sem
embættið ætlaðist til að yrðu við
vinnu þessa helgi og var nafn
mannsins þar á meðal. Sýslu-
maðurinn í Keflavík veitti mann-
inum svo skriflega áminningu í
ágúst og maðurinn kom sömu-
leiðis sínum sjónarhmiðum að
nokkrum dögum síðar. í málinu
sem var afgreitt í Hérðasdómi
Reykjavíkur fór maðurinn fram á
það að áminningin yrði felld úr
gildi og var það gert. Var því ekki
fallist á að sýslumanni hafi verið
stætt á að leggja bann við því
með svo skömmum fyrirvara að
stefnandi færi í leyfi umrædda
daga. Þar með var heldur ekki
fallist á að lögreglumaðurinn
hafi með háttsemi sinni óhlýðn-
ast löglegu banni yfirmanns síns.
Hafi því ekki verið lagaleg skil-
yrði til að veita stefhanda áminn-
ingu eins og gert var með á-
kvörðun sýslumanns ffá 8. ágúst
2000.
4