Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 24.04.2002, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 24.04.2002, Blaðsíða 4
Stuðningur við staðsetningu íbúða aldraðra í Garði Aðalfundur Sjálfstæðisfé- lags Gerðahrepps var haldinn 18. apríl í Sam- komuhúsinu í Garði. Fund- urinn samþykkir stuðning við byggingu íbúða aldraðra í Garði og við staðsetningu fyr- irhugaðra bygginga í nágrenni Garðvangs, samkvæmt sam- þykktu deiluskipulagi af hreppsnefnd Gerðahrepps. Fundurinn skorar á alla fulltrúa í hreppsnefhd að vinna að því að afla stuðnings hjá öðrum eignar- aðilum Garðvangs til að hægt verði að byggja samkvæmt sam- þykktri staðsetningu af hrepps- nefnd Gerðahrepps. Tillagan var samþykkt sam- hljóða. Suðurnesjamenn reykja fyrir 8 milljónir kr. á viku Suðurnesjamenn reykja tóbak fyrir átta milljón- ir að jafnaði á viku. Tó- baksneysla hefur aukist und- anfarið á Suðurnesjum, and- stætt við það sem gerist ann- ars staöar á landinu. Eyjólfur Eysteinsson, útibússtjóri ÁTVR í Reykjanesbæ stað- festi þetta í samtali við Víkur- fréttir. Tóbakssala á Suðumesjum er um átta milljónir króna á viku en var mun meiri í marsmánuði því sölutölur Áfengis- og tó- baksverslunar rikisins sýna tó- bakssölu upp á 37 miiljónir kr. Á sama tíma var áfengissala upp á 34 milljónir. Að gefiiu tilefni skal taka fram að tóbaksreykingar eru hættu- legar heilsu manna. . Fréttavaktísíma VKUR 898 2222 frettir aBan sóiarhringinn GERÐAHREPPUR Tillaga að deiliskipu við Garðvang: ísamiæmi við 1. mgr. 25. gi. Skipulags- og byggingailaga m. 73/1997 ei héi með auglýst til kynningai tillaga að nýju deiliskipulagi við Gaiðvang. Tillagan verður til sýnis á skríístofu Gerðahrepps á Melbraut 3 frá og með 26 apríl til 24 maí 2002. Þeii sem telja sig eiga hagsmuna að gæta ei héi með gefinn kostui á að geia athugasemdii við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 7. júní 2002. Skila skal inn athugasemdum á skrifstofu Geiðahiepps Melbiaut 3 Gaiði. Hver sá sem eigi geríi athugasemdii við tillöguna fýríi tilskilinn frest telst samþykkja hana. Tillaga að deiliskipulagi við Réttarholtsveg: í samiæmi við 1. mgi. 25. gi. Skipulags- og byggingailaga m. 73/1997 eihérmeð auglýst til kynningai tillaga að nýju deiliskipulagi við Réttaiholtsveg. Tillagan verður til sýnis á skrífstofu Gerðahrepps á Melbraut 3 frá og með 26 apríl til 24 maí 2002. Þeii sem telja sig eiga hagsmuna að gæta ei héi með gefinn kostui á að gera athugasemdii við tiilöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 7. júní 2002. Skila skal inn athugasemdum á skrifstofu Geiðahiepps Melbiaut 3 Garði. Hver sá sem eigi gerír athugasemdii við tiilöguna fyríi tilskilinn frest telst samþykkja hana. Sveitarstjórí Gerðahrepps Tilboð komið í 50 metra stálþil í Sandgerðishöfn Utboð vegna byggingar stálþils í norðurgarð Sandgerðishafnar var opnað í síðustu viku og hafa alls borist 7 tilboö í verkið. Stálþilið sem ætlaö er að bæta 50 metrum við enda norður- garðs Sandgerðishafnar mun opna fyrir viðlögu stærri og dýpri skipa við höfnina. Kostnaðaráætlun Siglingarstofn- unar hljóðaði upp á 23.3 milljón- ir kr. en lægstbjóðandi í verkið var Guðlaugur Einarsson ehf. í Hafnarfirði og var það 91% af kostnaðaráætlun eða samtals 21,3 milljónir. Björn Arason hafnarstjóri sagðist í samtali við Víkurfréttir ekki vita hvenær gengið verði ffá samningum um verkið, en hann átti þó von á að tilboði lægstbjóðanda yrði tekið. Stálverksmiðja stærri en tvær Reykjaneshallir Frumdrög að lóðarleigu- og hafnarsamningi við International Pipe and Tube in Iceland ehf. hafa verið lögð fram í hafnarstjórn Hafnasamlags Suðurnesja. Fyrirhugað er að úthluta rúm- lega 39.800 fermetra lóð að Stakksbraut 1 undir 17.500 fermetra verksmiðjuhúsnæði. Til samaburðar má nefna að salur Reykjaneshallarinnar er 7.800 fermetrar. Fram kemur í fimdargerð Hafh- arsamlags Suðumesja að hafhar- stjóm er ánægð með stöðu mála, en endanlegur samningur verður tilbúinn á næstu dögum og mun hafharstjórn taka hann fyrir með lögfræðingum hafnarinnar og iðnaðarráðuneytis. Nauðsynlegt er að fara i miklar sprengingar til að gera lóðina byggingarhæfa og var hafnar- stjóra heimilað að fá Verkffæði- stofu Suðumesja ehf. að undir- búa forval vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Forvalið verður hins vegar ekki auglýst fyrr en undirritun samnings við International Pipe and Tube in Iceland ehf. hefur farið ffam. REYKJANESBÆR Kvennakórinn fær styrk frá bæjarstjórn Bæjarstjórn Reykjanes- bæjar samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að veita 300.000 kr. til menningar- og safnaráðs bæjarins, sem síð- an mun koma styrkveitingunni áfram til Kvennakórs Suður- nesja. Kvennakór Suðumesja er gest- gjafi á fimmta landsmóti kvennakóra sem fer fram í Reykjanesbæ helgina 3.-5. maí nk. Fjöldi þátttakenda er orðinn á fimmta hundrað konur. Það var Jónína Sanders sem lagði fram tillögu um að kórinn fengi þenn- an styrk ffá menningar- og safha- ráði og var styrkveitingin sam- þykkt 11-0. 4

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.