Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 24.04.2002, Síða 6

Víkurfréttir - 24.04.2002, Síða 6
Bátasýning opnuð í DUUS-húsum 11. maí Stefnt er að því að opna bátasýninguna í DUUS húsunum þann 11. maí nk. Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í húsunum í allan vetur og nú er að koma mynd á glæsilega sýningarsaii. Sigrún Asta Jónsdóttir forstöðumaður Byggöasafns Suðurnesja sýndi menningar- og safnaráði Reykjanesbæjar aðstæður í nýju húsakynnunum nýverið. Byggðasafnið fékk nýverið styrkveitingu að upphæð 1,9 milljónir kr. fiá Safnasjóði ríkis- ins. Menningar- og safnaráð fagnar þeirri styrkveitingu og undir það var tekið af Skúla Skúlasyni, forseta bæjarstjómar, á fundi bæjarstjómar síðdegis i gær. Bátasýningin, sem byggð er upp á bátasafni Gríms Karlssonar, mun vera stórglæsileg og verðugt að skoða hana þegar sýningin opnar. www.asberg.is Ásberg Fasteignasala Jón Gunnarsson, löggiltur fasteigna- og skipasali Hafnargata 27 • 230 Keflavík • Símar 421 1420 og 421 4288 Fax421 5393 • Netfang: asberg@asberg.is Ásabraut 9, Keflavík. Mjög góð 3ja herb. 74m- ibúð á efri hæð með 28m3 bílskúr og sérinngangi. Hiti í bílaplani. Mikið endumýjuð. Laus strax. 8.100.000.- Heiðarholt 32, Keflavík. 2ja herb. 61mJ íbúð á 1 hæð í fjölbýli. Eign í góðu ástandi á vinsælum stað. 6.400.000,- Lágmói 6, Njarðvík. Glæsilegt 144m2 einbýli með 4 svefnh. og 60m2 bílskúr. Eign í mjög góðu ástandi. 18.000.000.- Njarðvíkurbraut 20, Njarðvík. 12 lm2 einbýli með 3 svefnh. og 47m2 bílskúr. Búið að endurnýja eignina að hluta. Eign á góðum stað. Laus strax. 11.300.000.- Nónvarða 7, Kcflavík. 141m2 einbýli með 4 svefnh. og 28m2 bílskúr. Eign sem gefur mikla möguleika. 13.200.000,- Garðbraut 64, Garði. 145m2 einbýli með 5 svefnh. heitur pottur á baklóð. Hagstæð lán. Skipti á minni eign í Garði. 11.900.000.- Melteigur 21, Keflavík. Gott einbýlishús 96m2 með 2 svefnh. ájarðh. sjónvarph. í risi og 2 lítil herbergi 29m2 bílskúr. Eign á vinsælum stað. 13.500.000,- Austurbraut 4, Keflavík. 140m2 neðri hæð með sérin- ngangi og 4 svefnh. 40m2 bíl- skúr. Eign 1 góðu ástandi. 11.500.000.- Atli Már formaöur NFS Urslit kosninga i hin ýmsu ráð nemendaféiags Fjöl- brautaskóla Suðurnesja liggja nú fyrir. Atli Már Gylfa- son var kosinn formaður en hann sigraði með yfirburðum, fékk 71% atkvæða. Að sögn Ellerts Hlöðverssonar sitjandi formanns eru menn þar á bæ enn að ráða ráðum sínum hvað varðar hver verður varafor- maður en enginn af þeim sem bauð sig ffam fékk nógu mikið fylgi yfir aðra frambjóðendur, sem verður að vera 17% ef þrir eða fleiri bjóða sig frarn. Jón Marínó Sigurðsson, sem skipar 5. sæti á framboðslista ffamsóknarflokksins, var kosinn formaður skemmtinefndar, Sif Aradóttir var kosinn ritari og Skúli Steinn Vilbergsson var kos- inn íþróttameistari. NÝSKÖPUN í FERÐAMÁLUM í SANDGERÐI Sumarbústaðabyggð rís á Þóroddstöðum Nú stendur yfir fram- kvæmd við sumarbú- staðabyggð sem staðsett er á Þóroddstöðum, rétt fyrir utan Sandgerði. Ingimar Sum- arliöason er eigandi Þórodd- staða og hefur hann í sam- vinnu við Sandgerðisbæ verið að skipuleggja byggðina á landi sínu og Iandi við hliðina sem er í eigu Sandgerðisbæjar. Ingimar mun sjálfur eiga og leigja út 7 af 20 bústöðum sem skipulagt er að verði á svæðinu og er þegar búið að reisa þrjá sumarbústaði. Þá hefur Sand- gerðisbær verið að setja upp þjónustumiðstöð á svæðinu, en í það er notað húsnæði gömlu vigtarinnar í Sandgerði. Sandgerðisbær mun einnig reisa sumarbústaði og leigja út lóðir til byggingar bústaða á svæðinu. Ingimar sagðist í samtali við Vik- urfféttir vera bjartsýnn á að þessi hugmynd gæti laðað að ferða- menn til Þóroddsstaða og taldi möguleikana á ferðaþjónustu mikla á þessu svæði með tilliti til uppbyggingar bæði í Sandgerði og Garði. Skammt ffá Þórodds- stöðum er staðsettur golfvöllur Sandgerðinga. Ingimar stefhir á að heitt vatn verði lagt að bústöð- unum, en Hitaveita Suðumesja telur kostnað á því ekki arðbæran og hefúr því ekki gefið grænt ljós á slíkar ffamkvæmdir, þó segist Ingimar bjartsýnn á að það verði gert. Nú stendur yfir framkvæmd við sumarbústaðabyggð sem staðsett er á Þóroddstöðum, rétt lyrir utan Sandgerði. Ingimar Sumarliðason er eigandi Þóroddstaða og hefur hann {samvinnu við Sandgerðisbæ verið að skipuleggja byggðina á landi sínu og landi við hliðina sem er í eigu Sandgerðisbæjar. Texti og myndir: Snorri Birgisson 6

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.