Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 24.04.2002, Síða 9

Víkurfréttir - 24.04.2002, Síða 9
Skrifstofur á efri hæð Túngötu 1 Nú standa yfir miklar breytingar á efri hæð Túngötu 1 en iðnaðar- nienn hafa að undanfiirnu ver- ið að koma upp skrifstofum á efri hæð húsins.Að sögn Sverr- is Sverrissonar athafnamanns, og eins ciganda þá er gert ráð fyrir 12 skrifstofum á hæöinni. Hefur hann nú þegar samið um leigu á 9 þeirra sem áætlað er að verði afhentar um mánaðamótin. I húsinu verður sameiginlegur gangur milli skrifstofa ásamt kaffístofú sem er fullbúin öllum tækjum, en hún verður einnig sameiginleg. Inngangur inn á skrifstofúmar verður frá Tjamar- götu en þar er verið að koma upp stiga sem áætlað er að verði kominn upp á þriðjudag. Sverrir sagði í samtali við Víkurfréttir að þarna yrði einnig staðsett flettiskilti við hlið stigans sem flettir auglýsingum og að fram- kvæmdum við húsið yrði mjög líklega lokið rétt eftir mánaða- mót. Húsið er allt tæpir 600 fer- metrar en neðri hæðin er í leigu Kaupás hf. sem rekur Nóatúns verslun þar. Umhverfismál tekin föstum tökum í Vogum Þann 25.apríl næstkom- andi verður haldið upp á dag umhverfisins um allt land. Vogamenn ætla ekki að vera efdrbátar annarra í þeini efnum sem öörum og í samráði viö íbúana verður haldið upp á þennan dag. Besta leiðin til að halda slíkan dag er að gera eitthvað fyrir um- hverfið, okkar umhverfi. Hug- myndin er að hreinsa Qöruna, ganga fjöruna frá skólanum út að Stapa og hreinsa eins mikið af rusli í burtu og við getum þannig að fjaran verði snyrtileg og okkur og umhverfi okkar til sóma. Svo þegar búið verður að hreinsa verður boðið upp á pulsur og kók þannig að allir verði saddir og sáttir við sig og umhverfí sitt. Reiknað er með að þetta taki 2- 3 tíma, en nánari timasetning mun liggja fyrir þegar nær dre- gur. Vonast er eftir almennri þátttöku almennings til að gera sameiginlega umhverfið snyrti- legt og fallegt svo það verði enn snyrtilegra og meira aðlaðandi.. Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 4717 Á hátíðisdegi verkalýsins 1. maí býður Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis öllum félagsmönnum til kaffisamsætis í Samkomuhúsinu í Sandgerði frá kl. 15-17. Félagar fjölmennum og mætum öll í hátíðarskapi. 1. maí nefndin. Dagskrá: kl. 15. Kaffisamsæti í Samkomuhúsinu. Setning. Félagsmaður heiðraður. Einar Georg Einarsson flytur pistil og gamanmál. Tónlistaratriði. MERKJASALA Merki afhent á Víkinni, Hafnargötu 80, Keflavík kl.4j0.00. Andvirði merkjasölunnar rennur allttil sölubarna DAGSKRÁ1. MAÍ í STAPA Kl.13.45 Húsið opnar Guðmundur Hermannsson leikur létta tónlist Kl.14.00 Setningarávarp: Kristján Gunnarsson formaðurVSFK Ræða dagsins: Halldór Björnsson varaforseti ASÍ Grín og gamanmál: Helga Braga Jónsdóttir leikari Heiðrun félaga - Umsjón Guðrún Ólafsdóttir varaformaður VSFK Söngur: Karlakór Keflavíkur. Kynnir: Guðbrandur Einarsson formaðurVS. Kaffiveitingar í boði félaganna.Guðmundur Hermannsson leikur Ijúfa tónlist. Kl.14.00 Börnum boðið á kvikmyndasýningar í Nýja Bíó Félagar fjölmennið á 1. maí hátíðarhöldin. S.T.F.S. Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is 9

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.